Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 31
Ljósmynd/Friðþjófur
Mat á umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkjunar með veitu úr jökulsá í Fijótsdal
Vinnuferill 2ooo 2001
! 7" ; mai | júní j júlí ág. sept. okt. nóv. des. jan. feb. mars apríl maí júní
Tillaqa að matsáætlun (E
Vinna við rannsóknir
Blaðamannafundur 7. júní l ;
Kynning á matsáætlun ÍHl
Matsáætlun send Skioulaqsstofnun I
Umfjöllun Skipulaqsstofnunar (4 vikur) L
Kvnninq Skipulaqsstofnunar I I m
Vmna við matsskvrslu _
Úrvinnsla úr rannsóknum (|
Dröq að matsskýrslu kynnt. óskað eftir athugas. E
Matsskýrsla send Skipulaq istofn inJL
Umfjöllun Skipulaqsstc fnuna (2 vik
Skipulaqsstofnun auqlvsir m atsský rslu (6 i vikur) cz m ■_
KynnincLá framkvær idoq •natsskyrslu ■ -
Úrskurður Skipulaqss tofnur ar (4 vikur + 2viku hMSBL.
Svör 'ið ath jgasemdum (1 Vik; a)Q
jan. feb. mars apríl maí júní NBMM
hópum um fimmtíu sérfræðinga. Verkefninu er
ætlað að leggja mat á virkjunarkosti og flokka
þá með tilliti til orkugetu og hagkvæmni, gildis
fyrir þjóðarhag, atvinnu og byggðaþróun í
landinu, svo og áhrif á náttúrufar og umhverfi,
hlunnindi, náttúru, útivist og menningar- og
búsetuminjar. Áætlunin tekur hins vegar ekki
til þeirra virkjana sem þegar hafa verið leyfðar.
Hugmyndin á bak við rammaáætlunina var
að hætta að einblína aðeins á einn eða fáa virkj-
unarkosti í einu, en kanna frekar og bera saman
allar fyrirliggjandi virkjunarhugmyndir á sk.
forathugunarstigi. Með því verði reynt að gefa
ákveðna vísbendingu um hvaða virkjunarkostir
eru vænlegastir til framtíðar út frá sjónarhóli
hvort tveggja hagkvæmni og umhverfis.
Fram hefur komið að fyrir liggi um eitt
hundrað hugmyndir að virkjunum, sextíu með
vatnsafli og 40 í jarðvarma. Stefnt er að því að
búið verði að meta 20-25 virkjunarhugmyndir í
árslok 2002. Áætlað hefur verið að þegar hafi
um 20% mögulegra virkjunarhugmynda þegar
verið hrint í framkvæmd með virkjunum af
ýmsu tagi, eða sem svarar um 7 teravattstund-
um. Það er því nóg eftir hvað möguleikana
áhrærir, en fjölmargir hafa þó bent á að vegna
umhverfissjónarmiða sé óráðlegt að meira en
tveir af hverjum þremur nýtanlegum virkjun-
arkostum verði teknir til raforkuframleiðslu í
framtíðinni.
Aðeins upp á punt?
Hjörleifur Guttormsson hefur gagnrýnt um-
ræðu um virkjunarkosti vegna frekari upp-
byggingu stóriðju nú, þar sem rammaáætlunin
sé of skammt á veg komin. Segir hann allt
benda til þess að rammaáætlunin sé aðeins upp
á punt.
„í stað þess að staldra við og móta vitræna
orku- og umhverfistefnu til frambúðar er látið
vaða á súðum,“ skrifaði hann í grein nýlega á
heimasíðu sinni, Grænum vettvangi (www.eld-
horn.is/hjorleifur/). „Vegna umhverfissjónar-
miða er óráðlegt að gera ráð fyrir að meira en
20-25 teravattstundir raforku geti verið til ráð-
stöfunar hérlendis á fyrrihluta 21. aldar að
meðtöldum þeim 7 teravattstundum sem nú eru
framleiddar. Meini menn eitthvað með tali um
vetnissamfélag og geri ráð fyrir hóflegum vexti
raforku til almennra nota, veitir ekki af þessu
svigrúmi. Eftir sem áður verður vandasamt
verk að samræma slíka orkuöflun umhverfis-
sjónarmiðum. Hugmyndir stjómvalda um að
binda 10-15 teravattstundir í hefðbundinni
stóriðju næsta áratuginn ganga bæði gegn um-
hverfisvemd og hugmyndunum um vetnissam-
félag. Meirihluti raforkuframleiðslunnar er
þegar bundinn álmarkaði og það hlutfall stefnir
í að verða 80% eða meira samkvæmt stefnu
stjómvalda og Landsvirkjunar. Slíkt væri mik-
ið óráð. Frekari samningaviðræðum um stór-
iðju ætti að slá á frest, að minnsta kosti þar til
langsæ orkustefna hefur verið mótuð og staða
Islands innan loftslagssamningsins liggur
skýrt fyrir.“
Sitt hvað viðræður og framkvæmd
Sá sem hvað ákafast hefur talað máli vetnis-
samfélagsins er Hjálmar Amason, þingmaður
Framsóknarflokksins og formaður iðnaðar-
nefndar Alþingis. Hann bendir á að viðræður
Norðuráls og Reyðaráls um frekari uppbygg-
ingu stóriðju og orkukaup séu aðeins viðræður
og ekkert meira en það. „Sagan sýnir það að frá
því að viðræður hefjast og þar til þeim lýkur er
oft himinn og haf á milli. Sagan segir einnig að
oftar en ekki hafa þær viðræður ekki leitt til
neins," segir hann.
„Ég lít svo á að það sé skylda stjórnvalda að
ræða við þá sem em áhugasamir, en í því laga-
og alþjóðaumhverfi sem uppi er hverju sinni.
En viðræður og framkvæmd er sitt hvað.“
Hjálmar hefur bent á að þriðjungur alls þess
koldíoxíðs sem fellur til hér á landi komi frá út-
blæstri bifreiða og annar þriðjungur frá fiski-
skipaflota landsmanna. „Þarna era því sýnilega
sóknarfæri og svo vill til að bflaframleiðendur
og fleiri hafa nú margir veðjað á vetnið út frá
umhverfissjónarmiðum og ekki síður til að
skapa sér sjálfstæði frá ægivaldi olíuríkjanna
fyrir botni Miðjarðarhafs.
„Hækkanir á olíuverði að undanförnu hafa
leitt til þess að milljörðum hefur verið veitt til
að hraða rannsóknum og þróun tengdri vetnis-
tækninni, en menn hafa einmitt veðjað á ísland
í þeim efnum.“
Aðspurður um þá grandvallarspumingu
hvort í Ijósi þessa sé ekki betra að iara með
orku okkar í vetnisframleiðslu frekar en ál, seg-
ir Hjálmar: „Það liggur fyrir staðfest af sér-
fræðingum Orkustofnunar, að nýtanleg orka
hér á landi sé um 50 teravattstundir. Til þess að
framleiða vetni fyrir allan bíla- og skipaflota
landsmanna þarf ekki nema 4,5 til 5 teravatt-
stundir, eða á milli 8-10% af nýtanlegri orku á
íslandi. Það má aldeilis segja að þar sé borð
fyrirbára.
Af þessum sökum hlýt ég að taka umræðunni
um orkusölu til álframleiðslu með nokkrum fyr-
irvara. Ég tek henni með fyrirvara um lögform-
legt umhverfismat, hvað koma muni út úr
Kyoto-umræðunni og hugsanlegri verslun með
losunarkvóta auk þess sem eftirspurn á
heimsmarkaði ræður hér miklu.“
Mikið úrval göngu- og hlaupabrauta ásamt mesta úrvali landsins
af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
PR0-F0RM 525EX
Rafdrifin göngu- og hlaupabraut
Hraði 0-16 km/klst.
Fjaðrandi bretti sem minnkar álag á liöamót.
Rafstýrður hæðarstillir (3-10%), vandaður
tölvumælir, statíf fyrir vatnsbrúsa og handklæði.
2ja hestafla mótor.
Hægt að leggja saman og því hentug fyrir heimili
og vinnustaöi.
Stgr. 158.075.
Kr. 166.394.
Stærð: L. 161 x br. 80 x h. 135 cm
ÖPN/NNF*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588 9890