Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 42

Morgunblaðið - 14.11.2000, Side 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 43s. STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Arvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. ALÞÝÐUSAMBAND ÍSLANDS Á TÍMAMÓTUM RÍTUGASTA og níunda þing Al- þýðusambands Islands var sett í gær. Meginverkefni þingsins verður að gera yfirgripsmiklar skipu- lagsbreytingar á sambandinu, sem munu leiða til þess, verði þær^ sam- þykktar, að þetta er síðasta ASI-þing með því sniði, sem þar hefur tíðkazt. I stað þess koma ársfundir ASÍ, sem munu leysa af hólmi árlega sambands- stjórnarfundi. Stóru þingin á fjögurra ára fresti munu því heyra sögunni til. „Nú er svo komið að við getum ekki lengur beðið með að taka á skipulagi og starfsháttum heildarsamtaka okkar, ASI, ef við viljum áfram búa að þessu verkfæri og sameiningarafli íslenzks verkafólks;“ sagði Grétar Þorsteinsson forseti ASI á síðastliðnu vori, er fjallað var um tillögur til skipulagsbreyting- anna á sambandsstjórnar- og for- mannafundi Alþýðusambandsins. Mikil vinna hefur verið lögð í skipu- lagsbreytingar Alþýðusambandsins á undanförnum misserum og hefur for- ysta sambandsins unnið ötullega að þeim. Róttækasta breytingin lýtur að því að nú skulu aðildarfélög Alþýðu- sambandsins gera með sér samstarfs- samning um samningssvið, skarist þau milli félaga. I slíkum samningi er gert ráð fyrir gerðardómi, takist félögunum ekki að leysa deilumál sín innbyrðis. Þá er gert ráð fyrir að fækkað verði í mið- stjórn sambandsins. I henni hefur setið 21 maður, en munu verða 15, nái breyt- ingarnar fram að ganga. A þessu þingi er gert ráð fyrir að kjörinn verði for- seti ASI og sex aðrir miðstjórnarmenn til tveggja ára, og varaforseti ASI og sjö miðstjórnarmenn til eins árs, en á fyrsta ársfundi ASI að ári verði endur- kjörið í þessar stöður til tveggja ára. Þá er gert ráð fyrir því að stéttarfélög, sem eru landssamtök, geti átt beina að- ild að Alþýðusambandi íslands. Vinnan að þessum skipulagstillögum hefur m.a. farið þannig fram að tillög- urnar hafa verið ræddar á fjölmörgum sambandsstjórnarfundum og ennfrem- ur hefur forystan heimsótt nær öll að- ildarfélög sambandsins og kallað eftir viðhorfum í sambandi við þær. Þá var gerð yfirgripsmikil könnun á viðhorfi meðal almennings til skipulagsmál- anna og hópur forystumanna kynnti sér skipulagsmál alþýðusambanda á hinum Norðurlöndunum. Þetta Alþýðusambandsþing, sem hófst í gær, er mjög mikilvægt fyrir alla framvindu kjaramála í þjóðfélag- inu. Alþýðusambandið hefur undanfar- in ár sýnt mikinn faglegan þroska og hefur með kjarastefnu sinni átt þátt í að auka hérlendis kaupmátt í ríkari mæli en áður hefur þekkzt í íslenzku þjóðfélagi. Þetta er árangur sem for- ysta Alþýðusambandsins á drjúgan hlut í. Grétar Þorsteinsson forseti ASÍ sagði í setningarræðu sinni er hann setti 39. þing ASI: „Við sjáum teikn um vaxandi verðbólgu sem gæti stefnt í hættu þeim markmiðum um stöðug- leika og aukinn kauþmátt sem lágu til grundvallar kjarasamningum aðildar- félaga og sambanda ASI sl. vor. Verka- lýðshreyfingin þarf á öllum styrk sín- um að halda til að fylgja eftir markmiðum samninganna. Gangi markmiðin ekki eftir, reynir á hvort samkomulag næst um viðbrögð. Þá skiptir höfuðmáli að hvert samband og félag hafi styrk og burði til að takast á við viðfangsefnið og að allir þessir aðil- ar beri gæfu til að standa þétt saman.“ Það skiptir ekki bara máli fyrir verkalýðshreyfinguna heldur þjóðfé- lagið allt, að samtök launafólks nái að styrkja stöðu sína á þann veg, að á milli þeirra og Samtaka atvinnulífsins verði eðlilegt jafnvægi. Grétar Þorsteinsson í setningarræðu á 39. þingi Alþýðusambands Islands V erðbólga stefnir mark- miðum samninga í hættu A Grétar Þorsteinsson, forseti ASI, sagði í setningarræðu á þingi sambandsins í gær að teikn væru um vaxandi verðbólgu sem gæti stefnt í hættu markmiðum um stöð- ugleika og aukinn kaupmátt, sem lágu til grundvallar kjarasamningum í vor. Lagði hann einnig áherslu á að setja þyrfti niður deilur undanfarinna ára innan verkalýðs- hreyfíngarinnar. Morgunblaðið/Þorkell Rúmlega 500 þingfulltrúar af öllu landinu eru saman komnir áþingi Alþýðusambandsins sem hófst í íþrótta- húsinu í Digranesi í Kópavogi í gær. Miklar umræður eru um skipulags- mál ASI á þinginu í Kópavogi Efling vill ge ra breytingar á tillögunum Isetningarræðu sinni á 39. þingi ASÍ í gærmorgun, sagði Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands ís- lands, að meginverkefnið á þinginu væri m.a. að svara þeirri spurningu hvort Alþýðusambandið væri í stakk búið að takast á við síbreyti- leg verkefni nútímans. Á sjötta hundrað þingfulltrúar og gestir voru viðstaddir setningu þingsins, sem hófst kl. 10 í gær- morgun. Þingið er haldið undir kjörorðunum „Nýtt afl - nýir tím- ar“ og stendur yfir í fjóra daga. Meginviðfangsefni þingsins er um- fjöllun um breytingar á skipulagi sambandsins. Setja niður deilur undanfarinna ára Grétar sagði að fyrir þinginu lægi tillaga um skipulag og starfs- hætti ASI og fundarmenn hefðu því einstakt tækifæri til að gera tvennt í einu: Setja niður deilur undanfar- inna ára og byggja upp enn skil- virkari og öflugri verkalýðshreyf- ingu. Grétar sagði að brýna nauðsyn bæri til að fundarmönnum tækist vel upp við að móta áherslur, skipu- lag og starfshætti heildarsamtaka íslensks launafólks. „Við komum saman til þings við aðstæður sem eru að mörgu leyti erfiðar. Við sjáum teikn um vaxandi verðbólgu sem gæti stefnt í hættu þeim markmiðum um stöðugleika og aukinn kaupmátt sem lágu til grundvallar kjarasamningum að; ildarfélaga og sambanda innan ASI sl. vor. Verkalýðshreyfíngin þarf á öllum styrk sínum að halda til að fylgja eftir markmiðum samning- anna. Gangi markmiðin ekki eftir, reynir á hvort samkomulag næst um viðbrögð. Þá skiptir höfuðmáli að hvert samband og félag hafi styrk og burði til að takast á við við- fangsefnið og að allir þessir aðilar beri gæfu til að standa þétt saman. Eitt mikilvægasta framlag okkar til þess að svo geti orðið, og jafn- framt skýrustu skilaboðin um að heildarsamtök íslensks launafólks- hyggist taka virkan þátt í mótun samfélagsins á næstu árum, með hagsmuni launafólks að leiðarljósi, er að við náum sáttum um breyt- ingar á skipulagi og starfsháttum Alþýðusambandsins,“ sagði Grétar. Mikil gerjun og endurnýjun Hann sagði einnig að mikil gerj- un og endurnýjun hefði átt sér stað innan verkalýðshreyfingarinnar á undanförnum árum og sé raunar stöðugt í gangi. Þar mætti nefna öldu sameiningar stéttarfélaga, stofnun nýrra landssambanda, sameiginlegar þjónustuskrifstofur stéttarfélaga, hugsanlega aðild fleiri félaga að Alþýðusambandi o.fl. Hann sagði að breytingar á starfsumhverfi verkalýðshreyfing- ar yrðu stöðugt hraðari, sama hvort litið væri til stöðunnar hér innan- lands eða á alþjóðavettvangi. Þá tæki atvinnulífið sífelldum breyt- ingum og nýjar starfs- og atvinnu- greinar yrðu til á meðan aðrar hyrfu. Eignarhald atvinnutækja breyttist og atvinnurekendur hefðu þjappað sér saman í ný heildarsam- tök. Þörf fyrir menntun og sérhæf- ingu ykist og félagsmenn stéttarfé- laga gerðu auknar kröfur um faglegt starf og þjónustu. Þá sagði Grétar að kjör og að- stæður réðust í æ ríkara mæli af því sem gerðist í hinu alþjóðlega efna- hags- og atvinnulífi. Virk þátttaka í alþjóðastarfi yrði því stöðugt mikil- vægari fyrir verkalýðshreyfinguna. Vangeta alþjóða- væðingarinnar Bill Jordan, framkvæmdastjóri alþjóðasambands frjálsra verka- lýðsfélaga, Tom Saxén, fram- kvæmdastjóri Norræna verkalýðs- sambandsins, Sæmundur Ámason, formaður Félags bókagerðar- manna, Ögmundur Jónasson, for- maður BSRB, og Benedikt Davíðs- son, formaður Landssambands aldraðra, fluttu ávörp við setningu þingsins. Bill Jordan fjallaði í sínu ávarpi um alþjóðavæðinguna og stöðu verkalýðshreyfingarinnar. Sagði hann alþjóðavæðinguna hafa sann- að getu sína til að skapa auð, en hún hefði einnig sýnt með óhugnanlega skýrum hætti fullkomna vangetu sína til að tryggja sanngjarna skiptingu þess auðs. Tom Saxén fjallaði um samstarf norrænna launþegasamtaka og sameiginleg norræn málefni á sviði vinnumark- aðar, atvinnu- og velferðarmála og um nauðsyn þess að tryggja rétt- indi launafólks í þeirri stækkun Evrópusambandsins sem framund- an er. Sæmundur Árnason sagði m.a. að haldið hefði verið uppi stanslaus- um áróðri gegn verkalýðshreyfing- unni á undanförnum árum og alltof oft verið innbyrðis deilur í hreyf- ingunni. „Nú hafið þið tækifæri til að kveða niður þennan áróður,“ sagði hann. Ögmundur Jónasson hvatti til samstöðu verkalýðshreyf- ingarinnar í baráttu fyrir bættum kjörum og mannréttindum einstak- ra þjóðfélagshópa. Meirihluti ellilífeyrisþega fær 10 þúsund úr lífeyrissjóðum Benedikt Davíðsson fjallaði um kjör og málefni aldraðra. Fram kom í máli hans að meira en helm- ingur ellilífeyrisþega sem fá greitt úr lífeyrissjóðum almennu verka- lýðsfélaganna eða um 6.000 manns, hafi einungis um 10.000 kr. í greiðslur á mánuði frá lífeyrissjóð- unum. Sagði hann að þetta væri meira en helmingur allra ellilífeyr- isþega. „Við viljum taka upp mál- efnalega, sameiginlega vinnu með stjórnvöldum til lausnar vanda þessa fólks, sem vissulega er mikill fyrir fólkið en ekki stórt fjárhags- legt úrlausnarefni fyrir ríkið, nú í góðærinu," sagði Benedikt. Meðal annarra gesta við setn- ingu þingsins voru fulltrúar frá dönsku, norsku, sænsku og finnsku alþýðusamböndunum, formenn BHM, Kennarasambandsins, Far- manna- og fiskimannasambands- ins, Sambands ísl. bankamanna, fulltrúi Iðnnemasambandsins og framkvæmdastjóri Öryrkjabanda- lagsins. 518 þingfulltrúar 76 þúsund félagsmanna í ASI Við undirbúning þingsins voru 111 aðildarfélögum Alþýðusamban- dsins send kjörbréf um að heimilt væri að kjósa allt að 539 fulltrúa á þingið. Við upphaf þingsins í gær- morgun samþykkti kjörbréfanefnd þingsins alls 518 kjörbréf frá rúm- lega 100 aðildarfélögum, en þessir 518 þingfulltrúar eru fulltrúar fyrir rúmlega 76 þúsund félagsmenn í Alþýðusambandinu. Rafrænar kosningar í fyrsta sinn hér á landi VIÐ kosningar á þingi Alþýðusambandsins verður notað rafrænt kosninga- kerfi, í fyrsta skipti hér- lendis, að sögn for- svarsmanna ASÍ. Komið hefur verið upp tölvuskjám í 20 kjörklefum í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi, þar sem þingið fer fram. Að sögn Halldórs Grön- vold, skrifstofustjóra ASÍ, fór fram tilraunakosning sl. sunnudag, sem gekk vel. Síðdegis í gær var svo þing- fulltrúum boðið að kynnast kosningakerfinu og notkun þess með því að taka þátt í sérstakri æfingakosningu. Kosningar um forseta, varaforseta og miðstjórn Kosningar á þingi ASÍ fara fram samkvæmt dag- skrá síðdegis á miðvikudag og á fimmtudag. Kjósa á í embætti forseta og varafor- seta, miðstjórn og stjórn og varastjórn Menningar- og fræðslusambands alþýðu. Einnig er talið hugsanlegt að tekin verði afstaða til frumvarps að nýjum lögum Alþýðusambandsins og ein- stakra ályktana á þinginu með rafrænni kosningu. Úrslit liggja fyrir strax að loknum kosningum Kosningar á þingum ASÍ eru flóknar f framkvæmd þar sem mismunandi vægi er á bakvið atkvæði þing- fulltrúanna eftir félögum. Við rafrænu kosningarnar bera þingfulltrúar strika- merki, sem er á barmmerki þeirra, að lesara í kjörklef- anum. Kosningakerfið at- hugar hvort viðkomandi hafi kosið áður, færir í kjör- skrá og birtir kjörseðil á skjánum með réttu vægi at- kvæða. Kosningakerfið stemmir sfðan af kjörskrá og reiknar út niðurstöður kosninganna strax að þeim loknum, þannig að enginn tími á að fara í talningu atkvæða- seðla eins og verið hefur á fyrri þingum ASI. SIGURÐUR Bessason, for- maður Eflingar, telur að í tillögum að nýjum lögum fyrir ASÍ felist að mið- stjóm ASÍ fái of mikil völd á kostnað almennra aðildarfélaga. Hann lagði fram breytingartillög- ur við fyrirliggjandi lagafrumvarp, sem fer nú til umfjöllunar í nefnd. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, fylgdi skipulagstillögunum úr hlaði og sagði að mikil vinna lægi að baki þeim tillögum sem liggja fyrir þinginu. Forsetar ASÍ hefðu heimsótt nánast hvert einasta að- ildarfélag. Aflað hefði verið upp- lýsinga um skipulagsmál verka- lýðshreyfingarinnar í Noregi og Danmörku. Búið væri að ræða þetta ítarlega í sambandsstjórn og á formannafundum. Grétar lagði áherslu á að þing ASI gæti ekki komið sér hjá því að taka á málum og ekki væri hægt að vísa ábyrgð- inni annað. „Einstök stéttarfélög hafa brugðist við breyttum aðstæðum að undanfömu með því að samein- ast og stækka einingar, með sam- eiginlegum þjónustuskrifstofum og auknu samstarfi. Ekki hefur hins vegar verið tekið á skipulagi og starfsþáttum heildarsamtakanna, Alþýðusambands Islands. En nú er svo komið að það má einfaldlega ekki dragast lengur ef Alþýðusam- bandið á áfram að vera sameining- arafl og sameiginlegur vettvangur íslensks launafólks," sagði Grétar. Grétar sagði að tillögumar mið- uðust að því að einfalda skipulag sambandsins og að starfshættir ASÍ yrðu meira í takt við líðandi stund. Hann sagðist gera sér grein fyrir að tillögurnar væm kannski ekki óskatillögur eins eða neins, en hann sagðist vera sannfærður um að með samþykkt þeirra yrði stigið stórt framfaraskref fyrir Alþýðu- sambandið. „í heimi sem er í stöðugri þróun er óbreytt ástand ekki til sem val- kostur. Sá sem reynir að standa kyrr við slíkar aðstæður verður einfaldlega eftir. Ekkert hlutskipti get ég hugsað mér nöturlegra fyrir það róttæka framfaraafl, sem sam- tök launafólks hafa verið alla 20. öldina,“ sagði Grétar. Ástráður Haraldsson, lögmaður ASÍ, gerði grein fyrir einstökum atriðum tillagnanna. Hann sagði að gildandi lög ASI væru eins og stagbætt flík og líkja mætti þeim við minjasafn um skipulagshug- myndir liðins tíma. Tillögurnar gera ráð fyrir að skipulag ASÍ byggist annars vegar á lögum sambandsins og hins veg- ar á samstarfssamningum milli að- ildarfélaga. Ástráður sagði að það væri að sjálfsögðu óljóst hvernig gengi fyrir félög að koma sér sam- an um samstarfssamninga, en það yrði eitt af meginverkefnum for- ystu ASI að koma á þessum sam- starfssamningum. Ef það tækist ekki yrði að setja í lög sambands- ins atriði sem í dag væri ætlunin að yrðu í samstarfssamningi. Ástráður sagði að eitt af skipulagslegum vandamálum ASI væri að það vantaði vettvang fyrir nýjar atvinnugreinar og það væri áberandi að stéttarfélagaþátttaka í nýjum atvinnugreinum væri minni en í gömlum greinum. Stefnt væri að því að tekið yrði á þessu í sam- starfssamningum. Hann sagði mikilvægt að stétt- arfélögin ákvæðu sjálf skipulag sitt, en létu ekki atvinnurekendur hafa áhrif á það eins og verið hefði þegar atvinnurekendur tækju ákvörðun um við hvaða félög þau gerðu kjarasamninga um einstök starfssvið. Verið að færa áhrif frá aðildarfélögum til ASÍ? Margar athugasemdir komu fram við tillögurnar í almennum umræðum, meðal annars frá stjóm Eflingar. Sigurður Bessason, for- maður félagsins, gerði grein fyrir þeim á þinginu. „Meginástæðan fyrir athuga- semdum Eflingar - stéttarfélags var sú að við töldum að di'egið væri verulega úr vægi stéttarfé- laganna og ábyrgðum þeirra í lagafrumvarpinu eins og það lá fyrir. Með þeirri framsetningu sem er í lagafrumvarpinu töldum við að verið væri að færa ákvarð- anatöku frá stéttarfélögum og það fæli í sér miðstýringu frá hinum almenna félagsmanni. Við teljum að í frumvarpinu sé fólgin ákveðin áhætta," sagði Sigurður. OVISSAI BANDARIKJUNUM VIKU eftir að forsetakosningar voru haldnar í Bandaríkjunum eru menn engu nær um það hver niðurstaða kosninganna var. Að vissu leyti má segja að sú staða, sem nú er komin upp, sé til komin vegna nokkurra ótrúlegra tilviljana. Frambjóðendurnir tveir, A1 Gore og George W. Bush, eru nánast hnífjafnir á landsvísu hvað atkvæðafjölda varðar og að auki raðast kjörmenn þeirra þannig að eitt ríki, Flórída, ræður úr- slitum en þar er fylgi þeirra einnig nær jafnt. Við þetta bætist að í Flórída hafa komið upp nokkur mál, sem gera að verkum að erfitt hefur reynst að ljúka talningu í ríkinu. Þrátt fyrir að tvívegis hafi verið endurtalið með vélum í nokkrum sýslum er enn deilt um niður- stöðuna og yfirvöld í sýslunum hafa ákveðið að grípa til handtalningar, þar sem hvert atkvæði er grandskoðað. Það vekur furðu að við endurtalningu jafnt í Flórída sem í Nýju Mexíkó ber mörg hundruð og í sumum tilvikum mörg þúsund atkvæði á milli í fyrstu og annarri talningu. Þannig virðist nú sem Bush hafi sigrað í Nýju Mexíkó þótt svo virtist í fyrstu sem Gore hefði þar um tíu þúsund atkvæða meirihluta. Bandaríska stjórnkerfið byggist á mikilli valddreifingu og á það við um fyrirkomulag kosninga rétt eins og annað. Þannig eru mjög ólíkar aðferðir viðhafðar við framkvæmd kosninga, uppsetningu kjörseðla og skipulag talningar ekki einungis á milli ein- stakra ríkja heldur einnig milli sýslna. Greinilegt er að þessar aðferðir eru mjög ólíkar hvað áreiðanleika varðar. Þegar 100 milljónir manna ganga til atkvæða og talningu er lokið á nokkrum klukkustundum er óhjákvæmilegt að einhver skekkja eigi sér stað. Til þessa hefur það hins vegar ekki haft úrslita- áhrif á lokaniðurstöðuna. Þegar jafn naumt er á munum og nú getur hins vegar minnsta skekkja ráðið úrslitum. Að auki virðist ljóst að skekkjumörk eru í sumum sýslum langt umfram það sem eðlilegt getur talist. Mál virðast nú komin á það stig að engin vænleg lausn sé í stöðunni. Sama hver niðurstaðan verður mun næsti for- seti Bandaríkjanna taka við skertu um- boði og klofinni þjóð. Eftir því sem lengri tími líður mun klofningurinn magnast. Ari Skúlason býður sig fram á móti Grétari Þorsteinssyni Mikil spenna vegna yfirvofandi forsetakosninga Morgunblaðið/Þorkell Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, og Ari Skúlason, framkvæmdastjéri sainbandsins, ræðast við á fyrsta degi þings ASÍ. Þeir hafa nú báðir lýst yfir framboði til embættis næsta forseta sambandsins. ARI Skúlason, fram- kvæmdastjóri ASÍ, lýsti yfir á þingi sam- bandsins í gær að hann hefði ákveðið að verða við áskor- unum margra félaga sinna og gefa kost á sér sem forseti sam- bandsins, fari kjörnefnd fram á það, eins og hann orðaði það í tii- kynningu sem hann las upp á þinginu. Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, segir að tilkynning Ara komi sér ekki á óvart og breyti engu um þá ákvörðun sína að gefa kost á sér til endurkjörs og sagðist hann telja að yfir- gnæfandi líkur væru nú á að kosningar færu fram um næsta forseta ASÍ. Skv. dagskrá þings- ins er gert ráð fyrir að þær fari fram síðdegis á morgun. 9 manna kjörnefnd falið að leggja fram tillögu Mikil spenna og óvissa var meðal þingfulltrúa á fyrsta degi þings ASÍ í gær vegna yfir- vofandi kosninga. Var níu manna kjörnefnd falið að leggja fram tillögu um uppstillingu til æðstu embætta. Kom nefndin saman til fyrsta fundar kl. 17 í gær. „Þegar þessi umræða kom upp fannst mér bæði skylt og rétt að gera grein fyrir því hvað ég hygðist fyrir og gerði það, það er að segja að ég gæfi kost á mér áfram. Á því er engin breyting," sagði Grétar Þorsteinsson í sam- tali við Morgunblaðið. Hann sagði að breytingar á lögum ASI væru meginmál þings- ins og það sem mestu skipti. „Eg treysti því og hef engar efasemd- ir um að þingfulltrúarnir hafa alla burði til þess að mæta því þótt kosið sé á milli manna og uni svo niðurstöðunni, hver sem hún er, og standi óskaðaðir eftir,“ sagði hann. Segir stöðu verkalýðshreyf- ingarinnar hafa veikst Ari las upp tilkynningu um framboð sitt skömmu eftir hádegi á þinginu í gær. „Það hefur kom- ið fram og ég get staðfest það hér að til mín hafa leitað full- trúar mjög breiðs hóps innan Al- þýðusambandsins og kynnt mér að unnið sé að víðtækri sátt um að skilja deilur síðustu ára að baki og snúa sér að upp- byggingarstarfi. Liður í því er sátt um að setja saman sterka og samhenta miðstjórn með aðild helstu forystumanna hreyfingar- innar og margir hafa hvatt mig til þess að gefa kost á mér til að taka forsætið í þeirri stjórn," sagði Ari. „Ég hef unnið nær all- an minn starfsferil fyrir ASI og finnst mjög miður hvernig staða hreyfingarinnar hefur veikst á undanförnum árum. Við þurfum nýjar áherslur og nýja ásýnd og ég vil gjarnan taka þátt í því að vinna að slíkum breytingum," sagði hann. Framboð Ara á sér töluvert langan aðdraganda Ari sagði í samtali við Morgun- blaðið að framboð hans ætti sér tiltölulega langan aðdraganda. „Ég hef í langan tíma á skrifstofu Alþýðusambandsins verið frekar ósáttur við aðferðir og áherslur Alþýðusambandsins og hef rætt um það við forystuna. Fyrir um mánuði var svo farið að nefna við mig hvort ég væri tilbúinn að taka að mér forystu Alþýðusam- bandsins. Þessi þungi hefur síðan aukist og í síðustu viku var mér sagt frá því að stór hluti for- ystumanna í hreyfingunni væri þeirrar skoðunar að ég ætti að gera þetta. Þá fór ég að hugsa al- varlega um þetta og tók reyndar þessa ákvörðun fyrir þó nokkru en mér fannst rétt að kynna hana á þinginu sjálfu," sagði Ari f sam- tali við Morgunblaðið. Aðspurður sagðist Ari telja að hann ætti stuðning injög víða í hreyfingunni, m.a. í Starfs- greinasambandinu, iðnaðar- mannasamböndunum, meðal sjó manna og víðar. Ari var spurður á hvern hátt hann teldi að staða verkalýðs- hreyfingarinnar hefði veikst á undanförnum árum. „Fyrir það fyrsta finnst mér að rödd okkar hafi ekki heyrst eins mikið og áður var. Það er ekki tekið eins mikið mark á því sem við segjum," sagði Ari, og benti m.a. á samskipti verkalýðshreyf- ingarinnar við stjórnvöld því til staðfestingar. Ari sagðist m.a. vilja bæta mjög starfsaðferðir innan sambandsins frá því sem verið hefði. „Mér finnst hafa ver- ið allt of langt bil á milli for- ystunnar í samböndunum og fé- lögunum og Alþýðusambandsins. Ég hef mikinn áhuga á að brúa það bil,“ sagði hann. Talið óvíst að kjörnefnd nái samkomulagi um eina tillögu Níu manna kjörnefnd fær það verkefni að gera tillögu til þings- ins um næsta forseta ASI en skv. upplýsingum Morgunblaðsins var talið óvíst í gær hvort kjörnefnd myndi skila samhljóða tillögu eða klofna í afstöðu til frambjóðend- anna, þannig að fram kæmu tvær tillögur frá meirihluta og minni- hluta nefndarinnar. í nefndinni eiga sæti Ágúst Óskarsson frá Verslunarmannafélagi Húsavík- ur, Guðbrandur Einarsson frá Verslunarmannafélagi Suður- nesja, Guðrún Erlingsdóttir, Verslunarmannafélagi Vest- mannaeyja, Halldór G. Björnsson, Efiingu, Haraldur H. Jónsson, Félagi ísl. rafvirkja, Konráð Al- freðsson, Sjómannafélagi Eyja- fjarðar, Kristján Gunnarsson, Verkalýðs- og sjómannafélagi Keflavflcur, Þorbjörn Guðmun- dsson, Trésmiðafélagi Reykjavík- ur, og Þórður Ólafsson, Verka- lýðs- og sjómannafélaginu Boðanum. Reynt að ná jafnvægi við val í 15 manna miðstjdrn Engin framboð höfðu komið fram til varaforseta ASÍ á þing- inu í gær. Skv. breytingum á skipulagi Alþýðusambandsins, sem til stendur að afgreiddar verði á þinginu, fækkar í mið- stjórn úr 21 fulltrúa í 15. Var mikið rætt meðal þingfulltrúa í gær hvernig skipa ætti í nefndina svo hún endurspeglaði sem best styrkleikahiutföll landssambanda og félaga og tryggði að hlutdeild karla og kvenna yrði sem jöfnust. Forseti og varaforseti sam- bandsins eiga sjálfkrafa rétt til setu í miðstjórn en skv. upp- lýsingum blaðsins hefur m.a. ver- ið rætt um að landssamböndin sex fái hvert um sig einn mið- stjórnarfulltrúa og tvö stærstu aðildarfélögin, Verzlunarmanna- félag Reykjavíkur og Efling, tvo fulltrúa hvort félag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.