Morgunblaðið - 14.11.2000, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 65 1
Slökkviliðsmenn
Vegna samnings um slökkvilið á Akureyrar-
flugvelli eru lausar til umsóknar nokkrar stöður
slökkviliðsmanna hjá Slökkviliði Akureyrar.
Störfin eru vaktavinna og fela í sér ýmis störf
vegna slökkvi-, sjúkraflutninga- og flugvall-
arþjónustu liðsins . Útkallsskylda er utan vinnu-
tíma.
Umsækjendur þurfa að uppfylla ákveðin skil-
yrði sbr. „Reglugerð um réttindi, menntun og
skyldur slökkviliðsmanna" nr. 195/1994 og
samþykkt um Slökkvilið Akureyrar. Helstu atriði
þeirra eru:
• Vera á aldrinum 20 til 28 ára, reglusamir og
háttvísir.
• Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og
líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og
heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir
lofthræðslu eða innilokunarkennd.
• Hafa aukin ökuréttindi til að stjórna a) vöru-
bifreið og b) leigubifreið.
• Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkvi-
liðsmanna eða sambærilega menntun og
reynslu.
• Hafa góða almenna þekkingu, þ.m.t. nokkra
tungumálakunnáttu og gott vald á íslenskri
réttritun.
Með iðnmenntun er átt við sveinspróf, en vél-
stjórapróf eða stúdentspróf getur talist sam-
bærileg menntun í þessu sambandi.
Umsækjandi þarf að skila sakavottorðum með
umsókn. Nóg er að umsækjendur hafi aukin
ökuréttindi þegar þeir hefja störf, eftil ráðning-
ar kemur. Umsækjendur mega búast við að
vera kallaðir í viðtöl, próf og læknisskoðun
trúnaðarlæknis. Ráðning er áætluð eigi síðar
en 1. mars nk.
Laun samkvæmt kjarasamningi Landssam-
bands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
og launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar gefa slökkviliðsstjórar á Slökkvi-
stöð Akureyrar, Árstíg 2, og í síma 461 4200,
en þar fást jafnframt umsóknareyðublöð.
Umsóknarfrestur er til 27. nóvember
2000.
Slökkviiiðsstjóri.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
HÁSKÓLABÓKASAFN
Reykholt
Hluti skólahússins í Reykholti í Borgarfirði hef-
ur verið gerður upp og mun í framtíðinni hýsa
varaeintök íslenskra rita sem eru í eigu Lands-
bókasafns íslands - Háskólabókasafns.
Bókasafnið óskar að ráða tvo starfsmenn til
að hafa umsjón með flutningi á ritunum og
annast skráningu þeirra og frágang.
I fyrsta lagi er óskað eftir bókasafnsfræðingi
eða starfsmanni með sambærilega reynslu
og menntun, og mun hann stjórna verkinu.
I öðru lagi er óskað eftir aðstoðarmanni til að
vinna að ofangreindum starfsþáttum. í því til-
viki kæmu hlutastörf til greina.
Um tímabundnar ráðningar er að ræða, og má
aetla að verkið taki tvö til þrjú ár.
Nánari upplýsingar um störfin veitir landsbóka-
vörður í síma 525 5600
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra
Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns,
Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, merkt
„Reykholt" fyrir 3. desember.
LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
HÁSKÓLABÓKASAFN
Rafrænt bókasafn
Nýlega var undirritaðurfyrsti samningur
íslands um landsaðgang að fjölda gagnasafna
og rafrænna tímarita, og var Landsbókasafni
íslands - Háskólabókasafni falið að annast
framkvæmd samningsins, og fleiri samningar
munu fylgja í kjölfarið.
Af því tilefni leitar bókasafnið að starfsmanni
til að sjá um samninga við seljendur, samskipti
við notendur og fræðslu. Starfsmaðurinn mun
alfarið helga sig þessu viðfangsefni, og heyrir
starfið beint undir landsbókavörð.
Starfssvið:
• Samskipti við seljendur aðgangs að raf-
rænum gögnum og framkvæmd samninga.
• Samskipti við notendur gagnanna.
• Umsjón með vefsíðu sem veitir upplýsingar
og leiðbeiningar um aðgang að hinum
rafrænu gögnum.
• Kennsla og þjálfun í notkun gagnanna.
Hæfniskröfur:
• Próf í bókasafns- og upplýsingafræði eða
sambærileg menntun og reynsla.
• Þekking á tölvuvinnslu og notkun Netsins
við upplýsingamiðlun.
• Hæfni til samskipta og sjálfstæðrar vinnu.
Starfsmaðurinn á náið samstarf við verkefnis-
stjórn menntamálaráðuneytisins um rafrænt
aðgengi, svo og þá starfsmenn bókasafnsins,
sem sjá um innkaup safnefnis og notenda-
fræðslu.
Nánari upplýsingar veitir Einar Sigurðsson,
landsbókavörður, í síma 525 5600.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra
Landsbókasafns íslands - Háskólabókasafns,
Arngrímsgötu 3, 107 Reykjavík, merktar:
„Rafrænt bókasafn", fyrir 3. desember.
GARÐABÆR
www.gardabaer.is
*
Flataskóli - Agæti kennari
Garðabær auglýsir lausar til umsóknar stöður
grunnskólakennara við Flataskóla.
Vegna forfalla í fæðingarorlofí vantar:
Bekkjarkennara í 2. bekk, 100% starf.
Bekkjarkennara í 5. bekk, 100% starf.
Á haustönn fengu allir grunnskólakennarar
Garðabæjar fartölvu til eigin afnota í skólastarfi.
Árlega er varið rniklu fjármagni til
endurmenntunar og umbóta á faglega sterku
skólastarfi.
Upplýsingar um störfin veita Sigrún Gísladóttir,
skólastjóri í vs. 565 8560 / 565 7499,
og Helga María Guðmundsdóttir
aðstoðarskólastjóri í vs. 565 8560
Umsóknir með upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist Flataskóla v/ Vífilsstaðaveg.
Einnig eru upplýsingar um störfin á vefsvæði
Garðabæjar www.gardabaer.is.
Laun em samkvæmt kjarasamningi Launaneíhdar
sveitarfélaga og Kennarasambands íslands.
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og menningarsvið
KÓPAV OGSBÆR
FRÁ SMÁRASKÓLA
Tónlistarkennari óskast!
Tónlistarkennari óskast að skólanum.
Um er að ræða heila kennarastöðu,
frá áramótum til vors.
Launakjör skv. kjarasamningum KÍ og Launa-
nefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar veita Valgerður Snæland Jónsdóttir,
skólastjóri og Elín Heiðberg Lýðsdóttir, aðstoðar-
skólastjóri í síma 554 6100.
Starfsmannastjóri
Fasteignasala
— sölumaður
Leitum að röskum einstaklingi sem getur
starfað sjálfstætt og sýnt frumkvæði. Þarf að
hafa reynslu af sölu fasteigna. Fjölbreytt starf
í góðu umhverfi.
Skriflegar umsóknir, um nám og fyrri störf,
sendist auglýsingadeild Mbl., fyrir 17. nóvem-
ber merkt: „Þjónustulipurð — 10324".
Farid verdur med allar umsóknir sem
trúnaðarmál.
Blikksmiðja Einars
óskar eftir að ráða blikksmiði og menn vana
blikksmíðavinnu.
ilalBmJeíNM&K
Smiðjuvegi 4 b S: 557-1100
www.simnet.is/ble ble-@simnet.is
ATVIIM IM A ÓSKAST
Mötuneyti/ráðskona
Ráðskona, mjög vön hverskyns kokkamennsku,
óskar eftir starfi. Er ekki bundin við höfuðborg-
arsvæðið og getur byrjað mjög fljótlega.
Áhugasamir leggi inn upplýsingar og fyrir-
spurnir á auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir
17. nóv. merkt: „M - 10325".
FUIMOIR/ MAIMIMFAGIMAOUR
Aðalfundur
!(þFf;! Þjóðræknisfélags
■izzv' Islendinga
verður haldinn í Borgartúni 6 fimmtudaginn
30. nóvember nk. kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Þjóðræknisfélag islendinga vinnur að því að efla samskipti við fólk
af íslenskum ættum í Vesturheimi.
Stjórnin.
Félag einstæðra foreldra
heldur aðalfund á Grand Hótel, Sigtúni, Reykja-
vík, laugardaginn 18. nóvember kl. 14.00.
Stjórnin.
ATVIIMIMUHÚSIMÆOI
Til leigu 570 m2 iðnaðar-
húsnæði á Smiðjuveqi 36
Laust fljótlega.
Upplýsingar gefur
Kristinn í símum
554 6499 og
893 0609.