Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 78

Morgunblaðið - 14.11.2000, Page 78
78 ÞRIÐJUDAGUR 14. NÓVEMBER 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLKí FRÉTTUM MYNPBÖND Einfölduð 2001 Björgun á Mars (Mission to Mars) Vísindaskáldsaga ★★ Leikstjóri: Brian De Palma. Hand- rit: Jim Thomas, John Thomas og Graham Yost. Aðalhlutverk: Tim Robbins, Gary Sinise, Connie Niel- sen, Don Cheadle, Jerry O’Connel. (120 mín) Bandaríkin. Myndform, 2000. Myndin er öllum leyfð. 2020 fer fyrsta mannaða geim- farið til Mars. Jim McConnell (Gary Sinise) átti að vera leiðang- urstjórinn en vegna persónulegs harmleiks varð Luke Graham (Don Cheadle) lát- inn taka við af honum. Allt virð- ist ganga vel hjá leiðangrinum og ganga rannsóknir á rauðu plánet- unni mjög vel þar til að einn daginn að leiðangurs- menn telja sig hafa fundið vatn samkvæmt mælingum sínum. Þau fara að upptökum mælinganna og ræðst þá hvirfilbylur á þau, drepur þrjú en Graham kemst til baka og nær að senda út neyðarkall. Sá sem á að stjórna björunarleiðangr- inum er Woody Blake (Tim Robb- ins) og biður hann um að fá McConnell sér til aðstoðar þar Íem McConnell skrifaði reglurnar um björgun á Mars. Það er eins og hugmyndin að handriti þessarar myndar hafi sprottið upp úr sam- tali um andlitið á Mars. Síðan til að búa til einhverja sögu í kring- um það hafa handritshöfundarnir lesið aftan á spólu af 2001, nýtt sér vandamál Appolo 13 áhafarinnar og fórnfýsi „Armageddon" hetj- anna. Utkoman er algjör vitleysa en nær þó meðallaginu vegna tón- ; listar Ennio Morricone sem er ein sú besta sem snillingurinn hefur samið um langt skeið. Ottó Geir Borg *. t HAFNARFJARÐARLEIKHÚSIÐ * * í Símonarson sýn. fim. 16. vöj. örfá sæti laus sýn. fös. 17. ncw. uppselt sýn. lau. 18. nóv. uppsett fös 24. nóv. uppsett lau 25. nóv. uppsett fös 1. des. örfá sæti laus lau 2. des. örfá sæti laus fös 8. des. örfá sæti laus Jólaandakt fnjmsvnd lau 2. des kl. 14.00 Sýnlngar hefjast kl. 20 Vitleysingarnir enj hluti af dagskrá Á mörkunum, LeikJistarhátiðar Sjálfstæðj leikhúsanna. Miðasala i síma 555 2222 og á www.visir.is M pOljc I mÉTTUii, | mUt Qrrtr »Uf. j ) TDPP PO Vinsældalisti þar sem þú hefur áhrif! Eddan er til frambúðar SUNNUDAGINN 19. nóvember verða Eddu-verðlaunin afhent í Þjóðleikhúsinu. Húsið verður opnað gestum kl. 19, en bein út- sending hefst í Sjónvarpinu kl. 20. Edduverðlaunin eru nú veitt í annað sinn af IKSA, Islensku kvikmynda- og sjónvarps- akademíunni. Þau voru stofnuð í fyrra í þeim tilgangi að kynna með jákvæðum hætti það starf sem unnið er innan kvik- mynda- og sjónvarpsgeirans hér á landi og vera hvatning til þeirra sem í geiranum starfa að leggja sig fram tii allra góðra verka. Ásgrímur Sverrisson, fram- kvæmdastjóri Eddu-verðlaunanna, segir ekki nokkra spurningu að verðlaunin séu strax orðin hluti af ísienska sjónvarps- og kvik- myndaheiminum. „Hátíðin gekk mjög vel í fyrra og áhuginn á henni er enn meiri nú í ár og verður því mun glæsilegri og viðameiri. Ég held að það sé ekki nokkur vafi á að hátíðin er komin til að vera.“ Ásgrímur segir aðstandend- ur verðlaunanna hafa orðið vara við keppn- isskap 1 kringum kosningar. „Geirinn er allur mjög áhugasamur um þetta og þátttak- endum er mjög í mun að fóik kjósi. Okkur finnst mjög mikilvægt að leyfa almenningi að taka þátt og leggjum mikið upp úr því að þeir kjósi, en vægi þeirra er ■ MorgunbJaðið/Jim Smart » 30% amoti 70% vægi fag- t manna. Og viljum sérstak- I lega benda á að eingöngu al- f menningur fær að kjósa f sjónvarpsmann ársins, en kosningarnar fara fram á mbl.is fram til 17. nóvember. Einnig finnst okkur nauðsynlegt að minna á að almenningur get- ur keypt sér miða á hátíðina. Margir halda að hún sé bara fyr- ir fólk úr bransanum, en við tag^^^ viljum endilega fá á tatiYr1*' _ hátíðina sem fjölbreyttastan hóp áhorfenda." Áðstandend- ur Eddu- verðlaunanna eru mjög ánægðir með árangurinn, enda hafa allir sýnt þessum fyrstu íslensku kvik- mynda- og sjónvarpsverðlaunum áhuga; fagmenn innan geirans, al- Edduverðlaunin eru hönnuð af Magnúsi Tómassyni og gefin af Morgunbiaðinu, aðalstyrktar- aðila hátíðarinnar. Morgunblaðið/Jim Smart Ingvar E. Sigurðsson var valinn besti leikarinn fyrir myndina Slurpinn og Co. í fyrra, og er til- nefndur í ár til sömu verðlauna fyrir hlutverk sitt í Englum al- heimsins. Friðrik Þór, María Ellingsen, Halldóra Geirharðsdóttir, Stein- unn Ólína Þorsteinsdóttir, Krist- in Jóhannesdóttir og Markús Örn Antonsson glöddust á góðri stund á fyrstu Eddu-vcrðlauna afhendingunni. mcnningur og auðvitað allir þeir sem koma að verkerfninu sem sam- starfs- eða stuðningsaðilar. Eins og eðlilegt er sker reynslan úr um ým- is framkvæmdar- og fyrirkomulag- satriði, en í ár hafa bæst við þrenn ný verðlaun sem eru kona og karl í aukahlutverki og sjónvarpsmaður ársins. „Við vorum ánægð með hvernig hátíðin rúllaði í fyrra og formið á hátíðinni verður svipað í ár, en ef eitthvað er þá verður léttara yfir henni í ár. Við erum enn að þreifa fyrir okkur með rétta tóninn, en há- tíðin er bara í eðlilegri þrúun,“ seg- ir Ásgrímur að lokum. Sveitaballa- A stemmning í Is- lensku óperunni Tónlist ÍJ tgáfutón I ei kar ÍSLENSKA ÓPERAN Utgáfutónleikar hljómsveitarinnar Buttercup I ísiensku óperunni fimmtudagskvöldið 9. nóvember 2000 kl. 211 tilefni af útkomu plöt- unnar Buttercup.is. SÍÐASTLIÐINN fóstudag hélt hljómsveitin Buttercup tónleika í ís- lensku óperunni, vegna útgáfu nýrrar plötu frá sveitinni, Buttercup.is. Það verður nú eiginlega að segjast að nafngift nýju plötunnar er ekki ýkja frumleg, þar sem eitthvað.is hefur flætt hömlulaust yfir landann um dá- gott skeið. Ég bjóst við að á tónleik- unum yrðu áheyrendur fyrst og fremst unglingar, en raunin var önn- ur. Fjölskylda, vinir og velunnarar Buttercup, á öllum aldri, fylltu húsið. Andrúmsloftið var afslappað og heimilislegt. T.d. sögðu söngvaramir stöðuga brandara sem allur salurinn hló að, brandara sem í mínum eyrum voru með öllu óskiljanlegir. Á vondri íslensku mætti segja að stemningin hafi verið „lókal“. Enda minntist Iris (söngkona) oftar en einu sinni á hversu vænt henni þætti um alla í salnum. Að loknum tónleikunum var svo hersingunni boðið að þiggja léttar veitingar á Sportkaffi. En svo við snúum okkur að tónlist- inni sjálfri, þá fannst mér lögin öll mjög grípandi en um leið fyrirsjáan- leg. Stíllhm er samt breyttur frá því sem ég hef áður heyrt frá hljómsveit- inni. Tónvefnaðurinn er þynnri og út- setningamar auðveldari í eyru. Reyndar má hugsanlega rekja þynnri tónvefnað nokkuð til vöntunar á raf- hljóðum í tónleikaútgáfunum (sem söngvaramir minntust á). En eins og íris tjáði mér sjálf, þá er stefnan á Taktu þátt í vali Topp 20 á mbl.is fyrir 16. nóv. Vinnur þú helgarferð fyrir tvo til Edinborgar? © ik XYis mbl.is i 'irfMnttNw tmitrrhi Morgunblaðið/Björg Það var mikil og vinaleg stcmmning í íslensku óperunni. nýju plötunni að draga aðeins úr rokkinu, svo platan fái einhverja spil- un í útvarpi, en þannig geti krakkam- ir lært lögin og „fríkað“ síðan út með þeim á böllum þar sem hljómsveitin rokki miklu meira. Mér þykir þessi stefna vera bara mjög heiðarleg og í fullu samræmi við hversu vel hljóm- sveitin skemmtir sér á sviði. Það er sko ekkert stress eða tilgerð í gangi. Sjálfri finnst mér tónlistin þeirra ekki vera skemmtileg, enda hef ég aldrei og mun sennilega aldrei á ævi minni stíga fæti inn á sveitaball. En mér finnst það virðingarvert hvað hljómsveitin er hrein og bein í því að skemmta sér og öðrum. Þess fyrir ut- an mátti ekki heyra annað en að tón- leikadagskráin væri vel æfð. Lögin voru öll nokkuð vel til þess fallin að verða verslunarmannahelgarslagar- ar, enda var það með ólíkindum hvemig smám saman fór að myndast sveitaballastemning í íslensku óper- unni! Hámarkinu var þó náð þegar hljómsveitin hafði lokið við að kynna lögin á plötunni og var kiöppuð upp til að spila fjögur lög. Þá sungu áhorf- endur og klöppuðu með gömlum slög; urum eins og t.d. „meira dóp“. í minningunni styður það reyndar mjög við það sem íris sagði sjálf um að fólk lærði lögin og „fríkaði“ síðan út með þeim á böllum. Mér þótti það nokkuð til lýta að ekld heyrðist nægi- lega vel í söngvurunum sem annars skiluðu sínu af miklum krafti. Á köfl- um lá það nefnilega við að allt drukknaði í trommunum. Ég gat glögglega heyrt að þegar kom að aukalögunum var samspilið betra hjá hljómsveitinni. Söngurinn heyrðist betur og textaframburðurinn var líka skýrari hjá söngvurunum. Best væri að segja að nýju lögin hefðu verið vel æfð, en eigi eftír að verða kraftmeiri eftir svolítinn tíma. Um flutning þeirra vil ég helst segja að hann hafi verið næsta hnökralaus en því miður vantaði svolítið broddinn í hann. Sennilegast er þetta útsetningar- atriði en það bara gerðist aldrei neitt í hljóðfæraleiknum sem beinlínis heill- aði, aldrei neitt krassandi. Buttercup-meðlimirnir eru leynt og ijóst atvinnuskemmtikraftar. Oft þurfa atvinnuskemmtíkraftar að fóma ýmsu fyrir bransann, eins og t.d. rokkinu. Þess ber t.d. að geta að tveir meðlima Buttercup voru í rokksveitinni Dos Pilas. En ef at- vmnuskemmtikraftar geta heillað fólk með sér og átt eftirminnilegar stundir á sviði þá er það kannski þess virði. Ólöf Helga Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.