Ársritið Gestur Vestfirðingur - 01.01.1849, Síða 107
107
niður urn, er látinn stokkur (skúfiá), sem festur er
með krókum við tréð, sem undir kvörnina er neglt.
5ó að eg viti, að flestuin sé kunn aðferð sú,
hversu herða skuli stálbori og klöppur, vil eg samt
geta hennar um leið, ef svo kynni til að bera, að
einhverr sá, er læsi línur þessar, og vildi búa sér
til kaffikvörn, vissi ekki herzlu- aðferðina á stáli;
því bezt fer, að brúka einsamalt stál í klöppurnar,
vegna (>ess stálið linast optast, þegar það er soðið
á annað járn, og er sú eina fyrirhöfnin, að slá flat-
an annan enda stálsins, og beygja svo stóran hríng,
sem nægir fyrir skapt, og fer bet.ur að laga oddinn
eins og bor, en ekki eins og meitil. En herzlu-
aðferðin á stálinu er jiessi: borinn eða klappan er
heitt að framan, og nokkuð upp eptir, svo að járn-
ið verði vel ljósrautt; en um leið og þvi er kipt
úr eldinum, er í skyndi skafið af því í oddinn alt
gjall; síðan er það látið svo sem hálfan þumlúng
niður í vatnið, og haldið ekki leingur en svo, að
það, sem niðrí vatninu er, sé að sönnu kælt og hert,
en þó skal góður eldslitur vera á járninu fyrir of-
an, er því þá kipt upp úr vatninu, rennur þa hit-
inn fram eptir því til oddsins aptur; en á því auga-
bragði, þá oddurinn er að eins grár, en blár fyrir
ofan, er járnið kælt til fulls.
Til leiðbeiníngar og samanburðar vil eg geta
stærðar og þýngdar kvarnar þeirrar, er eg hefi búið
til: efri steinninn er ein alin og fimm þumlúngar að
hríngmáli; þýngd lians 16 pund; augað á honum
lakir þrir þuml. að þvermáli. Neðri steinninn er
léttari, og auga hans minna.
Svo má að orði kveða, að kvörn þessi mali bæði
fljótt og vel. Er það víst, að ekki þarf leingri tírna
til að mala kaffi pund í henni, en 12 til 15 min-
útur.