Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1865, Side 1
KRISTILEG SMÁRIT
HANDA ÍSLENDINCUM.
JVi 4.
MONIKA.
í sögu guðs ríkis koma fyrir mörg eptirtekta
verð dæmi þess, að miklir guðs-menn, sem með kenn-
ingu og lifnaði hafa eflt sannan kristindóm, og leitt
marga á guðs veg, liafa átt, — næst guði, — guð-
hræddum mæðrum að þakka þá stefnu í hugarfari þeirra
og líferni, sem síðan bar svo mikla og blessunarríka á-
vexti fyrir sjálfa þá og aðra. í tölu slíkramæðra, sem
verðskulda ást og þakklátsemi allra alda, vegna þeirra
áhrifa, sem þær höfðu á sonu sína, á engin framar
lieima, en hin guðhrædda Monika, móðir hins mikla
kirkjuföður Árelíusar Ágústínusar.
Monika var fædd árið 332 eptir Iíristsb. í Norður-
Afríku, líklega í Tagasteborg í Númidíu, þar sem hún
hjó síðar með manni sínum. Foreldrar hennar voru
kristin, og veittu henni kristilegt uppeldi í guðrækniog
góðum siðum. I*egar Monika talaði um æskuár sín,
minntist hún, auk foreldra sinna, með elsku og þakk-
látsemi gamallar vinnukonu, sem verið hafði fóstraföð-
ur hennar, en dvaldi síðan ávalt í húsi hans, fremur
sem vinkona en vinnukona, og var virt og elskuð af
öllum á heimilinu. Þessum gamla kvennmanni var á
liendur falið að hafa umsjón hinna ungu dætra, og
leysti hún það einka vel af hendi; því hún lðt hvorki