Tímarit - 01.01.1873, Blaðsíða 3
3
frá Guðmundi þessum ofan til síra Sigurðar,
sem hann segir, að þá, er hann reit ættartölu-
bók sína 1723, sé í skóla — síra Sigurður út-
skrifaðist 1725 — en ættartölubók Jóns Magn-
ússonar er mjög áreiðanleg, bæði var hann sér-
lega fróður maður, og kveðst líka hafa vandað
hana sem best hann mátti; auk þessa lifði hann
nærri þeim tima, er Guðmundur og son hans
Jón í Vík hafa lifað á; og loksins má ætla, að
hann hafi verið s é r 1 e g a kunnur þ e s s a r i
ætt, því Jón í Vík var bróðir Hallgríms prests
Guðmundssonar í Mývatnsþingum, en síra Hall-
grímur var afi í’oriáks á Sólheimum, dóttur-
manns Jóns Magnússonar, og sem Jón var hjá,
er hann samdi ættartölubók sína, og það er
óhugsandi um svo ættfróðan mann, sem Jón
Magnússon var, að hann hefði ruglast í syst-
kinum afa nefnds tengdasonar síns eður af-
komendum þeirra.— Og 2. er enginn vafi á því,
að Guðmundur á Laugum, maður Sesselju
Árnadóttur frá Grýtubakka og faðír þeirra bræðra
síra Hallgríms og Jóns í Vík, hafi verið son
Jóns Illugasonar prests Guðmundssonar, bæði
segir það síra Jón Ólafsson í Sauðlauksdal, er
skrifaði ættartölubók sína 1681, og eins þeir
Espólín og Ólafur Snógdalín, þó þessir 2
síðastnefndu eigi reki ætt síra Sigurðar Beni-
diktssonar niður frá honum. Steingrímur bisk-
up nefnir föður Guðmundar Jón, en rekur
ekki ættina upp, svo eg hafi getað séð; og loks-
ins telur Ilallgrímur djákni, sjálfsagt eptir Mag:
Hálfdáni Einarssyni, í prestatali sínu, síra Ha!l-
1*