Tímarit - 01.01.1873, Blaðsíða 88
88
a, GuUormur í Sunnudal átti Guðrúnu dótt-
ur síra Einars á Skinnastöðum og mörg
börn.
b, Petur áBrúá Jökuldal, tvígiptur, átti börn.
c, Helga, kona síra Eriendar á Hofteigi.
d, Póra barnlaus.
e, Elisabet.
5. Níels.
6. Jens.
7. Gísli.
8. GuSmundur.
Um uppvöxt og ungdóm Jens Víums veit eg
ekki; hann var fyrst undirkaupmaður áReyðar-
flrði; 1716 varð hann aðjungeraður sýslumaður
Bessa, og fékk konunglegt vonarbréf fyrir sýsl-
unni eptirhann; hann fékk þá og hálft Skriðu-
klaustur, og gaf 300 rd. fyrir lénið1. Við dauða
Bessa tók hann algjörlega við sýslunni 1723.
Árið 1740 bar svo við að Jens Wíum var flutt-
ur sjóveg með sveini sínum Jóni Þorleifssyni
frá Reykholti og einni konu, 5 voru aðrir á
skipinu; það skip fannst seinna og þeir 5 menn
í því dauðir; voru stíngir tveir á formanninum
hjá viðbeininu, sem vera raundi eptir korða;
voru gátur, að þeim og sýslumanni mundi hafa
borið til, er þeir voru nokkuð ölvaðir, og sýslu-
maður mundi hafa unnið á þeim með Jóni Þor-
leifssyni og hrundið hásetunum útbyrðis, því
hvorki fannst sýslumaður Wíum, Jón eða konan
þar eptir, og vita menn þar ekki fremur um.
1] Sjá lier Eeiuna vilbætir vib æflsiign ágrip porsteins sýslumanns
Sigurbssonar.