Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 2
2
LANDSTJÓRN.
enn ítarlegar búin undir alþingi. Slíkt hið sama gjörði og ping-
vallafundur, sá er lialdinn var 2 júlí. En hvorki áskoranirnar
í blöðunum nje heldur áskorun fundarins hrifu, og jók það eigi
allítið tortryggni manna. Loksins tóku nokkrir alþingismenn
sig saman nyrðra og gjörðu cnn að nýju áskorun, og þá leyfði
ráðherra Islands um síðir, að frumvörpin yrði prentuð, og var
það gjört um árslokin. Á mál þessi mun nokkuð minnzt síðar
sjerstaklega. pá var og fjárkláðamálið eitt aðalmál, ermikið
var um fjallað á þessu ári; varð það nú enn sem fyrr mikið
þrætumál og vandræðamál, og eigi varð það enn leitt til fullra
lykta. Á það mun og stuttlega minnzt síðar.
Árið 1876 var ekki þingár, svo að þaðan er eigi tíðinda að
vænta. Af þúngvallafundi, þeim er á var minnzt, er og lítið að
segja; því að bæði var hann mjög svofámennur og stóð skammt,
enda hafði hann og mestmegnis eitt mál til meðferðar, en það
var ijárkláðamálið, og varð eigi heldur þar við það ráðið. Hjer
verður því einkum að minnast á ýms einstök atriði, sem standa
í meira eða minna sambandi við stjórn landsins.
Lög, þau er alþingi 1875 samdi, voru ílest það sama ár
samþykkt af konungi. Nokkur þeirra voru eigi samþykkt fyr en
1876, og skal þeirra hjer getið:
1. Lög um skipströnd, samþykkt 14. jan.
2. Lög um tilsjón með flutningum áþeimmönnum, sem
íiytja sig úr landi í aðrar heimsálfur, samþ. 14. jan.
3. Lög um stofnun læknaskóla í Eeykjavík, samþ. 11. febr.
4. Lög um stofnuu barnaskóla á Ísaíirði, samþ. 11. febr.
5. Lög um að leggja skatt á útmældar lóðir á Ísaíirði,
samþ. 11. febr.
6. Lög um að afnema alþingistollinn, samþ. 11. febr.
7. Lög um breyting á tilskipun um gjald á brennivíni
og öðrum áfengum drykkjnm 26. febr. 1872, samþ. 11.
febr.
8. Lög um aðflutningsgjald á tóbaki, samþ. 11. febr.
9. Lög um þingsköp handa alþingi íslendinga, samþ. 7.
apríl.
10. Viðaukalög við Jónsbókar landsleigubálks 56. kapítula, um
friðun á laxi samþ. 11. maí.