Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 33
ATVINNUVEGIR.
33
ekkert bœttist við úr sjó lengi fram eptir vetrinum, og örðugt
var og að fá lán hjá kaupmönnum, því að skuldir við þá voru
orðnar svo miklar. J>ar á ofan bœttist það, að nokkrar skips-
bafnir úr landi urðu þar veðurteptar svo að mörgum vikum
skipti. Um haustið liafði verið fengið 1000 króna lán úr lands-
sjóði; fyrir það hafði verið keypt korn, og dró það nú drjúgast
eyjabúum. Kaupmaður nokkur í Edinborg, að nafni Róbert
Smith, er hafði heyrt getið um hallærið þar á eyjunum, sendi
eyjabúum að gjöf 20 sekki af hveitimjöli, og var því útbýtt
meðal hinna fátœkustu þeirra. Seinni hluta vetrarins tók dá-
lítið að fiskast, og greiddist þá nokkuð úr; sumarið varð þeim
aptur gott, eins og fleirum, og bjargfuglaveiðin varð í betra
lagi. — Fiskileysið við Faxaflóa gjörði þröngt í búi hjá mörg-
um, er þar áttu hlut að. Fáir fengu þar uin veturinn og vorið
iisk svo mikinn, að hann gæti orðið verzlunarvara að nokkrum
mun, og þótti gott, ef að eins fjekkst í soðið til hvers máls;
öðru liverju fjekkst það og, og um tíma um vorið bjargaði það
mikið, að vel veiddust hrognkelsi, pó kom þar um síðir, að
algjörð þrot urðu hjá mörgum hinna miður efnuðu, og horfði
til stórra vandræða. J>á gat sýslunefndin loksins eptir talsverð-
an rekstur útvegað sýslunni lán úr landssjóði, sem svaraði 250
korntunnum, og kom það í góðar þarfir. J>á urðu og nokkrir
út í frá til að rjetta hinum bágstöddustu hjálparhönd. j'annig
sendu Grímsnesingar Álptnesingum, er þóttu einna lakast stadd-
ir, nokkuð skurðarfje fyrir jóhn, bæði hreppnum í heild sinni
og eiiistökum mönnum; og í annan stað sýndu Ísfirðingar það
rausnarbragð, að gjöra samskot handa hinum bágstöddu hjeruð-
um í Gullbringusýslu; voru þau samskot orðin 2000 kr. um
árslokin.
Erlendir aflamenn hafa enn sem fyrri lcgið hjer við
land til fiskjar. J>ar á meðal lágu Færeyingar á nokkrum skip-
um fyrir Austfjörðum; öfluðu þeir vel, en með því að þar var
þröngt á fiskimiðum, þóttu þeir spilla veiðinni fyrir landsbúum
sjálfum, einkum í Norðfirði og Seyðisfirði. Yfir þessu hafði einn-
ig verið kvartað fyrirfarandi ár, og kom það fyrir síðasta al-
þingi; tókst þá landshöfðingi á hendur að flytja málið við ráð-
gjafann, en það kom fyrir ekki, því að ráðgjafinn eyddi öllum
Fejettie feá íslandi. 3