Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 43
MENNTUN.
43
um Gylfastrauminn ug lönd [>au er að lionum liggja, eptir |>or-
vald Thoroddsen; um mjólk, smjör og osta, eptir Svein Sveins-
son (líka prentað sjer og fyr minnzt); þá nokkur kvæði, forn og
ný; brjef Eggerts Ólafssonar og hæstarjettardómar. pá gaf og
þjóðvinaQelagið út almanak sitt með viðbœti sem fyrri. Önnur
tímarit, er út komu, voru frjettarit bókmenntaljelagsins og
stjórnartíðindin.
Frjettablöðin voru flest hin sömu og árið áður, og rit-
stjórarnir hinir sömu. Að eins má geta þess, að íslendingur
hætti að koma út, en aptur var gefið út nýtt blað í Reykjavík,
er nefndist Útsynningur. Af þessu blaði voru að eins gefin út
4 tölublöð á árinu, og var þeim sumpart útbýtt ókeypis. Blað
þetta var gefið út af verzlunarmanni porláki Johnson.
Prentsmiðjurnar hjer á landi voru nú 3 eins og árið
áður. Norðlenzku prentsmiðjurnar prentuðu fátt annað en frjetta-
blöðin. þ>að af bókum, sem eigi var prentað erlendis, var því
prentað í landsprentsmiðjunni í Reykjavík. pess er áður getið,
að hún var undir árslokin seld einstökum manni, og hugðu
menn hana þar betur komna en undir umsjón stiptsyfirvaldanna.
Tveir menn fengu á árinu konunglegt leyfi til þess að stofna
prentsmiðjur. Annar þeirra var Björn Jónsson, ritstjóri ísafold-
ar, en hinn alþingismaður Páll Ólafsson á Hallfreðarstöðum í
Norður-Múlasýslu. Hvorugur þeirra notaði þó leyfið að svo
komnu.
Um vísindaleg söfn er fátt kunnugt. Bókasöfnin
hafa cnn nokkuð aukizt, sumpart fyrir gjafir, en sumpart fyrir
styrkþann, er þeim er veittur af opinberu Qe. Um forngripa-
safnið má hið sama segja. Eptir fráfall Sigurðar málara Guð-
mundssonar hefur Jón Árnason, umsjónarmaður í latínuskólan-
um, veitt því forstöðu. Fornleifar nokkrar fundust nú um
sumarið í Byskupstungum. J>að voru spjótsoddar tveir, annar
stœrri en hinn minni, axarblað, skjaldarbóla, liverfisteinn einn
lítill, hnöttóttur steinn með hvítum og rauðum ró&um greyptum,
og voru fjórir steinar með sljettum hliðum og ýmislega litir
greyptir inn í hann á íjóra vega. I>ar voru og nokkur smærri
steinabrot einkennileg, og smátölur silfraðar. Mannsbein fund-
ust einnig á sama stað, nokkuð sundurlaus; yfir höfuðskelinni