Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 36
ATVINNUVEGIR.
36
ið, smjör á 70 anra punclið, tólg á 35 aura pundið. Á útlend-
um vörum var verðlag hjer um bil sama og árið áður, en korn-
vara var þó heldur í lægra verði, einkum í lausakaupum gegn
peningum. Annars staðar á landinu virðist hafa verið nokkuð
meira l]ör í verzluninni. Raunar töfðu ísar nokkuð fyrir um
vorið nyrðra og eystra, en eigi varð þó mein að því til muna,
því að skip sluppu gegnum ísinn, og náðu sum höfnum áður en
hann varð landfastur. Á kauptið mun verðlag á vörum víðast
hafa verið líkt því í Reykjavík, og þó öllu betra. pannig komst
ull þá þegar í kaupstöðum norðanlands á 90 aura pundið, eða
jafnvel hærra; og saltfiskur á ísafirði komst upp í 75 krónur
skippundið. Haustverzlunin varð allfjörug víða, og fjár-
taka mikil, einkum í Stykkishólmi vestanlands, í flestum kaup-
stöðum nyrðra og á Austíjörðum. J>angað sendu Englendingar
2 eða 3 skip til að sœkja sláturfje, hjeldu fjármarkaði og borg-
uðu sauðinn með 18 til 20 krónum. — Hrossaverzlun
sinni hjeldu Englendingar og Skotar áfram, og hjeldu hrossa-
markaði víða, bæði á suðurlandi og norðurlandi. Meðalverð á
meðalhestum var nálægt 80 krónum. Frá Reykjavík einni voru
fluttir 3 skipsfarmar eða um 1100 hesta.
Af verzlunarfjelögunum má einkum nefna Gránufje-
lagið, sem sífellt er í miklum uppgangi og blóma. Nú hefur
það keypt 4 verzlunarstaði: Vestdalseyri, Raufarhöfn, Oddeyri
og nú síðast Siglufjörð. Fjelagshlutir munu uú hafa orðið nær
2 þúsundum; íiestir þeirra voru í Múlasýslum, þ>ingeyjarsýslu og
Eyjafjarðarsýslu. Hver íjelagshlutur, er upphaflega var 50 krón-
ur, var nú stiginn upp í 80 krónur, þrátt fyrir hinn háa arð
(6°/o), er fjelagið hefur gefið eigöndum hlutabrjefanna; má af
því marka vöxt og álit fjelagsins. Fjelagið hafði að þessu sinni
fleiri skip í förum en nokkru sinni fyr, og flutti vörur í milli
fyrir svo hundruðum þúsunda króna skipti. þ>essi mikli upp-
gangur fjelagsins á svo fáum árum er að miklu leyti að þakka
hinum staka dugnaði og ósjerplœgni framkvæmdarstjóra þess,
Tryggva Gunnarssonar. Nú lagði hann það sjálfur til af eigin-
livötum, að laun sín væri lækkuð, og er slíkt nálega einsdœmi
á þessari öld. — Af hinum öðrum verzlunarfjelögum hafa að
þessu sinni litlar sögur farið.