Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 31

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 31
ATVINNUVEGIR. 31 endurbœttar, og ýms ný aðferð verið inn leidd í sumum greinum búskaparins, o. s. frv. Búnaðarfjelög þau, er sums staðar hafa myndazt, hafa meðfram stutt að þessu, og ekki sízt búnaðarfje- lag suðuramtsins. Búfrœðingur Sveinn Sveinsson hefur og all- mikið gagn gjört, þar sem liann hefur ferðazt um. í þetta sinn ferðaðist hann um sumarið um Rangárvalla- og Árnessýslur; á þessari yfirferð sinni leitaði hann að mó á mörgum jörðum og fann víða, þar sem menn höfðu eigi áður af honum vitað; þá sagði hann og bœndum til með vatnsveitingar á tún og engi, meðferð á áburði, lögun ijdsa, meðferð mjólkur, ostgjörð og ým- islegt fleira, sem allt gat komið að góðum notum, þar sem hvorki vantaði framkvæmd nje efni til að fara eptir fyrirmælum hans. |>á ritaði hann og margt þarft í blöðin um ýmislegt, er búnað snerti. Eitt af því var nm moðsuðu, eða aðferð til þess að geyma sjóðandi mat í moðbing, þar til er maturinn væri full- soðinn; var sú aðferð sums staðar upp tekin, og varð til sparn- aðar, bæði á verkatíma og eldivið. Anna Pálsdóttir Melsteð úr Keykjavík, er lært hafði meðferð mjólkur, ostgjörð og smjörgjörð á mjólkurbúi erlendis, veitti og tilsögn í þessum greinum á nokkr- um stöðum með góðum árangri. M tók það og að tíðkast, sem gjört hefur verið stöku sinnum fyr, að senda unga og efnilega menn til búnaðarskólanna í Norvegi. Fje því, er í fjárlögunum 1875 var veitt til jarðabóta, var sumpart varið til að styrkja sveina þessa til náms, sumpart til launa handa Sveini búfrœð- ingi, sumpart til styrktar fyrir búnaðarfjelög og jarðbótaflelög, þau er mest kvað að,. sumpart til verðlauna fyrir gjörðar jarða- bœtur o. fl. Ritlingar um ýmislegt, er landbúnað snertir, voru nokkrir gefnir út á árinu. |>ar til má telja: Um jarðrœkt og garð- yrkju á íslandi eptir Alfred Lock, þýtt úr ensku af Jóni Hjalta- lín í Edinborg, og gefið út af pjóðvinafjelaginu; um meðferð mjólkur og smjörsog um ostatilbúning eptir Svein búfrœðing Sveinsson, prentað í tímaritinu Andvara, og einnig sjerstaklega gefið lit af pjóðvinafjelaginu. Lýsing fjárkláð- ans, eptir Snorra dýralækni Jónsson. Umóþrifá sauðfje, eptir sama; um bráðapestina, eptir Guðmund prófast Ein-

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.