Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 8

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 8
8 LANDSTJÓRN. nú er venjulega talað um toll, nl. gjald, sem lagt er á verzlun- ina. I>ó er enn að eins að tala um aðflutningsgiald af ölföngum og tóbaki. Gjaldið af ölföngunum var fyrst í lög leitt með tilskipun 26. febr. 1872, en brátt reyndust ýmsir agnúar á þeirri tilskipun og var henni aptur breytt með lögum 11. febr. 1876. J>á var og aðflutningsgjald af tóbaki í lög leitt sama dag, og nokkru síðar (16. febr.) gaf ráðgjafi íslands út auglýsingu um það, hvernig framfylgja skyldi þeim lögum, með því að lögin sjálf ekki höfðu tekið það fram. Með því að hjer er engin regluleg tollgæzla, veitir ervitt að sjá um, að tollalögum þessum sje fyllilega hlýtt og að eigi sje farið í kringum þau, cinkum meðan þeir eru óvanir, sem um eiga að sjá, og sumt í lögunum ekki fullskýrt. 1 fyrsta sinn gjörði og birting lag- anna nokkurn rugling. Svo virðist sem sums staðar hafi þau verið þinglesin á fyrstu þingum, en aptur annars staðar hafi verið hyllzt til, að þinglesa þau sem síðast. Hvort rjettara hafi verið, getur menn greint á um, en þessi mismunur, eða það, að þau urðu eigi birt alls staðar jafnsnemma, leiddi til þess, að skip með tollaðar vörur, er áttu að fara á þann stað, er búið var að þinglýsa lögunum, fóru fyr á annan stað þar nærri, þar sem lögin voru óþinglesin, og lögðu þar upp vörurnar; en að því er ölfangatollinn snertir, þá er í tilskipun 26. febr. 1872 til tekið, að þar skuli greiða toll af öllum farminum, er skipsskjöl- in eru sýnd eða sýna skal, en eigi þar sem affermt er, sje það annars staðar. Sífelldar kvartanir hafa komið frá kaupmönnum, ýmist yfir því að tollur væri ranglega tekinn, cða yfir því, að hinar tollskyldu vörur hafi rýrnað eða skemmzt, svo að endur- gjalda þyrfti tollinn eða nokkurn hluta hans; hafa þær sumar reynzt á rökum byggðar, en sumar ekki. Misjafnlega vinsæl eru þessi tollalög hjá landsmönnum; sumir líta mest á hag landssjóðsins, og gróða þann, er hann hefur af lögum þessum; aptur aðrir á það, að gjöldin komi maklega niður á óhófsmönn- unum; og enn aðrir, að þau eyði óhófi, með því að minna sje keypt, er dýrara verði; en sumum þykja allir tollar óeðlilegt hapt á verzluninni. J>að hefur og nokkuð spillt fyrir tollinum, að hinar tollskyldu vörur hafa sums staðar verið hækkaðar meira í verði en tollinum hefur numið, um leið og tollhækkunin komst

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.