Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 15

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Blaðsíða 15
LANDSTJÓRN. 15 kunnagefningu við prólin. pað má sjá, að nefndin býst við að svonefndur gagnfrœðis- eða realskóli verði innan skamms stofn- aður samhliða latínuskólanum, en hún hefur þó að öðru leyti engar ákveðnar bendingar gefið um það efni. j>;í hefur og nefndin gjört uppástungu um stofnun þjóðskóla á norðurlandi, eða skóla þess, er alþingi 1875 ætlaðist til að stofnaður yrði á Möðruvöllum í Hörgárdal, og veitti fje til í fjárlögunum. Hefur nefndin hugsað sjer, að eigi ætti við, eptir því sem hjer til hagar, að skóli þessi yrði realskóli í venjuleg- um skilningi, heldur miklu fremur skóli í verklegri kunnáttu, eða með öðrum orðum búnaðarskóli. Skólanefndin hefur þannig kveðið upp álit sitt um þessa 8 skóla, er hjer hafa verið nefndir, en eigi hefur hún tekið með lagaskólann og læknaskólann, nje heldur alþvðuskóla yfir höfuð og barnaskóla. Svo hefur hún og látið ótalað um skólamál landsins í heild sinni, og aðra menntunarvegi. Læknaskóli með fastri skipun var nú loksins stofnaður með lögunum 11. febr. sem fyr er sagt. Frá efni þessara laga er stuttlega greint í frjettum fyrra árs, þar sem sagt var frá aljiingi. Samkvæmt lögunum samdi ráðgjafi Islands reglugjörð fyrir skóla þenna, og var hún gefin út 9. ágúst. j>ar er gjört ráð fyrir, að kennslutíminn verði 4 ár, og að skólaárið verði hið sama, sem að undanförnu hefur verið við prestaskólann og lat- ínuskólann. Kennslugreinirnar eru: líkskurðarfrœði, líffœra- frœði, efnafrœði, grasafrœði, lyfjafrœði, almenn veikindafrœði og lækningafrœði, sjerstakleg kírúrgisk veikindafrœði og lækn- ingafrœði, sjerstakleg medisínsk veikindafrœði og lækningafrœði, lagaleg læknisfrœði, heilbrigðisfrœði og yfirsetufrœði. Einkum skal þó leiða athygli að þeim atvikum, sem einkennileg eru fyrir Island. Iðka skal lærisveina í þekkingu og lækningu sjúkdóma bæði á spítalanum í Hcykjavík og utan spítala. Fyrir ofdrykkju eða aðra óreglu skal lærisveinum vísað burt úr skóianum, ef þeir skipast ekki við áminning forstöðumanns í þriðja skipti. Til þess að hafa vakandi auga með iðni þeirra og framförum, skulu kennararnir halda próf að minsta kosti tveim sinnum á skólamissiri. Kirkjumál landsins er varla að minnast á. Synodusar

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.