Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Qupperneq 20
20
LANDSTJÓRN.
því er komustaði snerti, nema að því, að á leiðinni frá Reykja-
vík til Kajipmannahafnar var skipið eigi látið koma við á Skaga-
strönd (nje á Raufarhöfn). Yiðstaðan í Reykjavík átti í hvert
skipti að vera rúmir 10 dagar, en á millistöðvunum 12 stundir
á Seyðisfirði, Akureyri og ísafirði, en að eins 6 stundir á Stykk-
ishólmi, og 3 á Skagaströnd og Raufarhöfn. Farargjald er á-
kveðið ýmislega, eptir því hvort farþegi býr í 1. eða 2. lyptingu
eða á þilfari, og eptir því, hve löng er ferðin. pannig er t. d.
farargjald milli Reykjavíkur og Akureyrar 27 kr. í 1. lyptingu,
18. kr. í 2. lyptingu, en 12 kr. á þilfari. Fyrir börn frá 2—12
ára greiðist hálft farargjald, fyrir yngri börn ekkert. Hver full-
orðinn farþegi má ókeypis liafa með sjer 100 punda þunga, en
börn 10 punda; en borga skal, er meira er flutt. Fœði kostar
fyrir fullorðinn mann í 1. lyptingu 4 kr. 66 aura, í 2. lyptingu
2 kr. fessar fyrstu ferðir skipsins gengu að mestu greiðlega,
og urðu að talsverðum notum. í fyrri ferðinni til Reykjavíkur
var þó lítið bæði um farþega og vöruflutninga, er virðist eink-
um hafa komið af því, að ferðaáætlun skipsins var þá eigi full-
kunnug orðin, enda hafði og skipstjóri sums staðar af ofurkappi
eða misskilningi tekið sig upp fyr en til stóð. Aptur voru í
ferðinni frá Reykjavík margir farþegar. í síðari ferðinni voru
farþegar fjölda margir báðar leiðir, svo að skipið hafði varla
rúm fyrir þá. Aðbúnaður á skipinu þótti góður, en fœðið ó-
þarflega dýrt. }>að hafa menn helzt fundið að póstferðum þess-
um, að skipið skyldi eigi vera látið koma viðlS'orveg, þar sem Norð-
menn eiga nú orðið nokkur verzlunarviðskipti við landsmenn og
kunningsskapur milli þeirra og íslendinga er að fara í vöxt. Aptur
hefur sumum þótt minni nauðsyn á, að láta skipið koma við
Skotland. Hinar venjulegu 7 póstferðir milli Kaupmannahafnar
og Reykjavíkur hjeldust sem áður, en sú breyting varð að eins
á því, að gufuskipafjelagið í Kaupmannahöfn tók þær að sjer
fyrir 5 ára tíma, gegn 40000 króna gjaldi úr ríkissjóði. Ekki þótti
póstskip þetta fylgja vel áætlun sinni, og brá það út af því að
koma á Seyðisfjörð, sem til var ætlazt. Til stendur og að leggja
þá ferð niður, og sömuleiðis ferð þess til Stykkishólms.
Embættaskipunin var áþessa leið:
Tvær sýslur voru veittar á árinu: f>ingeyjarsýsla