Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Qupperneq 23
LANDSTJÓRN.
23
lionum fyrst um sinn falið að gegna nokkrum hluta 10. læknis-
hjeraðs (eða þeim 3 prestaköllum í SkagaQarðarsýslu, er getið
var); 13. læknishjerað (Svalbarðs- og Sauðanessprestaköll í fing-
eyjarsýslu og Skeggjastaða og Hofsprestaköll í Norðurmúlasýslu)
kandídat Einari Guðjohnsen; 14. læknislijerað (hinn hluti Norð-
urmúlasýslu og Vallaness- og Hallormstaðarprestaköll í Suður-
múlasýslu) settum hjeraðslækni J>orvarði Kerúlf; 17. læknis-
hjerað (Vestur-Skaptafellsýsla) settumhjeraðslækni Sigurði Olafs-
syni, og var honuin einnig falið á hendi að gegna fyrst um
sinn hjeraðslæknisstörfum í 18. og 19. læknishjeraði (Kangár-
vallasýslu og Arnessýslu). Skyldi hann til skiptis dvelja í Hörgs-
dal á Síðu í Vestur- Skaptafellssýslu og á Eyrarbakka í Arnes-
sýslu, en milli þess vera á ferðalagi um Kangárvallasýslu. En
með því að það var auðsætt, að þessi tilhögun var með öllu ó-
nóg og mundi koma að litlum notum, þar sem um var að gjöra
svo víðáttumikið hjerað með mörgum stórvötnum, var »prakti-
serandi» læknir A. Tegner fenginn til að gegna hjeraðslæknis-
störfunum í Árnessýslu, og skyldi hann taka við af hinum um
nýár 1877.
Lögtignan í 2. flokki var veitt amtmönnum á íslandi,
og forstöðumanni prestaskólans í 4. flokki. — Heiðursmerki
kommandöra í 2. flokki orðu Olafs helga var byskupi landsins,
doktor Pjetri Pjeturssyni, voitt af konungi Norðmanna og Svía. —
Heiðursgj afir úr styrktarsjóði Kristjáns konungs níunda voru
veittar Helga Magnússyni, sýslunefndarmanni og sjálfseignar
bónda í Birtingaholti fyrir 25 ára ágætan búskap, og Jakobi
Guðmundssyni, presti að Sauðafelli í Dölum, fyrir mjög vand-
aðar og miklar húsa- og jarðabœtur á ábúðarjörð sinni 2 síðustu
ár, — 160 krónur hvorum þeirra.
Um dómsmál og annað, er þar að lýtur, er fátt til frá-
sagna. Síðan dómasafnið hætti að korna út og blöðin hættu að
birta flesta dóma landsyfirrjettarins, er fátt kunnugt um þess-
konar öðrum en þeim, er eitthvað hafa verið við málin riðnir,
eða sökum stöðu sinnar hafa haft fœri á að kynna sjer þau.
Nú er í ráði, að farið verði að gefa út nýtt dómasafn, og annist
landsyíirrjetturinn sjálfur um útgáfu þess. — í landsyfir-
rjetti voru nú alls dœmd 43 mál. Af þeim voru 24 einka-