Fréttir frá Íslandi - 01.01.1876, Síða 35
ATVINNUVEGIR,
35
hlaðið, þar sem hinir íslenzku fiskimenn á smábátum sínum
hafa varla orðið varír. Og þá er fiskur hefur verið á djúpmið-
um, hafa þeir, sem báta hafa eingöngu eða smáskip íslenzk, opt
eigi komizt þangað, en þilskipin hafa þá aflað vel. Sömuleiðis
hafa þilskipin ein komizt í aðrar veiðistöður, þar sem afli hefur
verið góður, og aflað vel á þann hátt, þar sem ekkert var að
hafa heima fyrir. Svo var nú, þá er fiskilaust var í Faxaflóa;
þá voru þilskip þaðan send austur fyrir land, þar sem fiskimergð
var, og aflaðist þar ágætlega, en fæstir höfðu þilskip og gátu
því eigi notið þessa. J>ó er þilskipum allt af að smáfjölga, og
önnur sjómennska tekur að því skapi nokkrum framförum. Mál-
ið um sjómannaskóla hefur þó farizt fyrir til þessa. par á mót
hafa nokkrir lært sjómannafrœði á annan hátt. Nú tók íslend-
ingnr einn, Jón Bjarnason að nafni, próf í sjómannafrœði við
farmannaskólann í Kaupmannahöfn, og íjekk þar cinn hinn á-
gætasta vitnisburð, sem þar hefur gefinn verið, eptir rúmlega
eins árs nám.
Ve r z I u n i n gekk nú nokkuð misjafnlega. Aðalverzlunin
í kauptíð var þó víða fremur dauf, einkum í Keykjavík, þar
sem þó mætti virðast að fjör og keppni væri mest í verzluninni,
er Reykjavík er stœrsti verzlunarstaður á landinu, og liggur
flestum stöðum fremur hjer í landi vel við verzlun. pað sem
hjer hefur spillt fyrir, virðist einkum vera samtök, þau er kaup-
menn hafa um verðlag á vörum, þó að þau sje misjafnlega hald-
in. í þetta skipti hefur og óáran það, sem gekk í mörgum hjer-
uðum þar í kring, nokkuð gjört til. Af fiskileysinu í Faxaflóa
leiddi það, að sjóvara öll var mjög lítil, en í helztu landvörunni,
eða ullinni, virtist þá eigi mikifl fengur, með því að hún var þá
í lágu verði erlendis, og auk þess var töluvert af henni skemmt
af hinum iðulegu böðunum íjárins á kláðasvæðinu. Ull var í
kauptíð í Reykjavík metin 80 aura pundið (baðull minna); hún
seldist illa erlendis, en er hún var nær uppseld, hækkaði hún
þar aptur í verði að mun, svo að í reikningum kaupmanna varð
hún á 90 aura pundið. Fiskur var nú aptur í háu verði, eink-
um saltfiskur; í Reykjavík seldist hann almennt á 60 krónur
skippundið, en harðfiskur 80 kr. Að því er aðrar íslenzkar
vörur snertir, má geta þess, að mislit ull var á 60 aura pund-
3*