Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 1

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 1
I. |»ing og stjórn. l^ess var getið í fréttunum frá íslandi 1880 að kosningar til alþingis hefðu farið fram í íiestum sýslum landsins í septem- bermánuði 1880 svo sem lögákveðið er, nema í Norðurmúlasýslu; þar fórust þessar kosningar fyrir af einhverjum ástæðum, og fóru því kosningar þar fram í maímánuði. Sömuleiðis reynd- ust kosningar í Árnessýslu ólöglega framkvæmdar, og voru þær því gjörðar ómerkar, og kosið upp aptur í maímánuði. Marg- ir höfði verið óánægðir með kosningarnar til þings þessa, og spunnust út úr því allmiklar deilur í blöðunum, en þá vildi reynast satt sem sagt er, að «seint er að byrgja brunninn, er barnið er í hann fallið», enda sat við það, sem komið var, nema í Árnessýslu einni, sem fyrr er ritað. Út úr þessu kosninga- kappi var samt allmikill áhugi og eptirvænting landsmanna um það, hvernig þessir nýju fulltrúar þjóðarinnar myndu reynast, er þeir ættu að taka til að skapa mönnum lög innan veggja og vebanda hins nýja þinghúss. Alþingi kom saman eins og lögskipað er, 1. dag júlímán- aðar; voru þá allir komnir þeir, er þing skyldu sitja, og voru þeir þessir: A. ]?eir, er konungur hafði kvadda til þingsetu. 1. Pétur Pétursson, biskup yfir íslandi. 2. Bergur Tliorberg, amtmaður yfir suður- og vesturum- dæminu. 3. Jön Pétursson, háyfirdómari. 4. Magnús Stepliensen, yfirdómari. 5. Árni Thorsteinson, landfógeti yfir íslandi. FBBTTIK FBÁ ÍSLANDI 1881. 1

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.