Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 24

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 24
24 ÁRFERD 06 ATVINNUVEGIR. gjört liofir verið. Frá öðrum afloiðingum af þessari ferð Trolles verður sagt í frjettum frá næsta ári. Hvalrékar urðu nokkrir um vorið, og komu þeir sem vant er að vera með ísnum, og sprungu í honum; má hér geta hinna helztu þeirra. Nálægt 10. marz náðist hvalur í ísnum undan Harastaðakoti á Skagaströnd, var hann 50 álnir milli skurða. Sömuleiðis sprungu tveir í ísnum undan Breiðabólstað í Fells- hverfi, og urðu skornir hálfir, en hitt hvarf aptur í ísrekið. Svo rak og 3 við ísafjarðardjúp og 2 eða 3 í Sæmundarvík á Ströndum um páskaleytið. þ>á sprakk og hvalur í ísnum á Eyjafirði innarlega, nálægt Grenivík, um 260 faðma frá austur- landinu; fundu hann menn, er heima áttu annars staðar, og vildu þeir eigna sjer fundinn, en hinir, er land áttu þar að sjó, vildu láta hvalinn vera í landhelgi, og telja hann sína eign. Varð að lyktum sá endir á, að hvalurinn var skorinn, og hlutu báðir nokkuð, en samt var allmikill málatilbúnaður út af hvaln- um, og spratt það allt af hinum ónákvæmu ákvörðunum um landhelgi og landfestu. í október rak hvalræfil á Naustabrekku, á Bauðasandi, og varð hann að nokkru gagni. Með ísnum komu birnir margir og gengu á land, mest í Eyjafirði og Beyðarfirði; engum gjörðu þeir mein; nokkrir þeirra, sem komu á land í Eeyðarfirði, urðu unnir. TrjáreJd var nokkur, og einkuin í ísnum sjálfum nyrðra. Undir og um haustið rak og í Vesturskaptafellssýslu afarmíkið af tegldum eða köntuðum trjám, flöskum og fl. og var á þeim letur, er benti til að það væri frá Ameríku. í einni flöskunni var brjef, dagsett fyrir 16 árum. fað má og geta þess með höppum af sjó, að um sumarið í júlí rak afarstórt seglskip í Höfnunum, alhlaðið timbri; skipið liðaðist þar sundnr á skerj- um en mestu varð samt. bjargað eða rak til lands Skip þetta var mastralaust og ekkert mannsbarn á því, og ekkert er bar vitni um að menn hefði verið á því nýlega; leit helzt svo út að skipverjar hefðu höggvið möstrin og síðan flúið skipið. Eng- inn vissi hvaðan það var, en öll líkindi voru til að það væri frá Ameriku. Á því voru um 30000 planka, og var það allt selt við opinbert uppboð. Keyptu þeir Vídalín og Eggerz kaup- menn í Eeykjavík mikið af þeim, og seldu síðan út aptur og þóttu það góð kaup.

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.