Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 37

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Side 37
MENNTUN. 37 er líka ónýtt, enda vantar og í það sum af betri kvæðum Sig- valda, því hann hafði ort mörg guðrækileg og lagleg kvæði, en stúlkuvísum og beinakerlingavísum er þar raeira helgað sæti en við á; þar bera þær annað ofurliði. Það er líkt með þetta kver og kvæðabókina sælu hans Jóns á Víðimýri, að einn af prestum vorum hefir stjórnað kvæðavalinu, röð þeiira og útgáfu, og er slíkt daufur vottur um smekkvísi þeirra Þá voru og gefin út Ljóðmœli Steingríms Tliorsteinsonar, og eru þau hin eina bók, er að kveður í þá átt. Svo sem flestum mun kunnugt, hafa kvæði Steingríms unnið sjer mikla hylli meðal íslendinga, og var því af öllum tekið fegins hendi við henni. Sumir af hin- um yngri menntamönnum amast að sönnu heldur við henni, og þykir hún eigi fylgja vel tímanum, og segja sem svo, að Steingrímur sje að sönnu gott skáld, en það sje að honum, að hann sje svo sem 50 árum á eptir tímanum, og þykir hann eigi svara til þeirrar stefnu, sem umbótasýki (radicalismus) þeirra krefur. En hvað sem um það er að segja, er kver þetta jafnágætt fyrir það, fullt af fegurð, djúpsæjum lífsskoð- unum og hreinum siðgæðishugsunum, og heldur jafnan skildi uppi fyrir hugsjón fegurðarinnar og hins góða. Jafnvel beztar eru eptir hann smávísur og kýmni, því að þar er opt samfara djúp lífsskoðun á bak við, og bitrasta spott um rembilæti mann- anna í öllum þeirra eymdarskap. Og hvað sem skipast í sögu hins íslonzka skáldskapar, má ætla, að seint muni fyrnast mörg af ljóðum hans, þar sem þau nú þegar eru orðin eign hinnar íslenzku þjóðar. Nokkuð kom út af íslenzkum ritum erlendis, og er það því að þakka að þar er orðið svo almennt að stunda hinar fornu bók- menntir vorar. í*ar kom út hið fyrra hepti af þriðja bindi af Eddu Snorra Sturlusonar, er Árna Magnússonar nefndin gaf út 1848 -52. Hepti þetta hefir verið nærri 30 ár á leiðinni, enda er margt fróðlegt í því. Þar eru skýringar á vísum í Eddu, og á Háttatali Snorra sjerstaklega, og svo sháldatal hið forna, og æfisögur nokkurra þeirra framan af; er það ritað af mikl- um lærdómi, allt á latneska tungu. Skýringarnar eru eptir Sveinbjörn Egilsson, en skáldaæfirnar víst að mestu eptir Jón Sigurðsson. IJá var þar og gefin út Gyðingasaga Brands bysk- ups Jónssonar; er það vönduð útgáfa, öldungis stafrjett. I

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.