Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 49

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Page 49
MANNALÁT. 49 íslendingum og öðrum vinum hans í Garnisons kirkjugarði í Kaupmannahöfn; þegar eptir dauða hans var farið að safna fje til minnisvarða á leiði hans. Jón Jóhnsen etazráð var fæddur 24. dag febrúarmánaðar 1806 á Drumboddsstöðum í Árnessýslu, var útskrifaður af Árna stiptisprófasti Helgasyni 1826, og fór þá þegar til háskól- ans. Embættispróf tók hann í lögvísi 1830 með bezta vitnis- burði. 1836 varð hann assessor og jústizsekreteri í landsyfir- rjettinum í líeykjavík; en sótti þaðan 1848, og varð þá bæjar- fógeti í Álaborg. í*ar hafði hann og ýms önnur störf á hendi; þessu embætti sínu hjelt hann þar til 1873, að hann sagði af sjer sökum sjóndepru. Hann var alla æfi mesti elju- og starfsemdarmaður, ljet sjer mjög annt alla jafna um hag ís- lands, og hjelt uppi rjetti þess af öllum mætti á hinum fyrstu þingum hjer. Embættisfærslu alla vandaði liann mjög; hann hefir ritað Hugvekju um þinglýsingar, jarðakaup, veð- setningar og peningabrúkun hjer á íslandi, ágæta bók, og svo Jarðatalið, er kom út 1847, sem er í alla staði vandað og ágætt rit. Hann var heiðursíjelagi bókmenntafjelagsins yfir 20 ár. Hann ljezt 7. dag júlímánaðar.

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.