Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Síða 38
38
MENNTIJN.
Lundi komu út Riddararímur frá 15. öld, Filipórímur, Her-
burtsrímur og Konráðsrímur keisarasonar, og er það allvel
vönduð útgáfa: meginmálið er að sönnu víða augsýnilega af-
bakað, en allur hinn merkasti orðamunur er tekinn upp neðan-
máls, svo að það er auðgjört að leiðrjetta það eptir því. í for-
málanum eru ýmsar athugasemdir um braga' hát.tu á rímum og
myndun þeirra, og braglýti þau, sem á rímum þessum eru, og
er það mjög óljóst, og sumt algjörlega rangt, og er auðsjeð af
því, að útgefandinn (Th. Visén) er ófróður í íslenzkum rímna-
kveðskap. Möbius í Kiel gaf og út ágæta og mjög vandaða
útgáfu af Háttatali Snorra Sturlusonar, með nákvæmum skýr-
ingum. Svo kom og út Elissaga og Rósanmndu, útg. af Evgen
Kölbing, með þýzkri útleggingu; svo gaf og W. H. Carpenter,
er hjer var veturinn áður að læra íslenzku, út Nikolásardrápu
Halls prests í Halle, og ávann sjer fyrir það doktors nafnbót.
Útgáfa drápu þessarar er mjög ófullkomin, einkum orðasafn það,
er með henni er.
Ar þetta hefi r því verið harðærisár í bókmenntalegum efn-
um, en þegar harðæri og óáran kemur upp, er við því að bú-
ast að menn gjörist ófúsir að kaupa mikið af bókum, en til
lítils er að prenta ef engir verða til að kaupa. Úá ganga helzt
út ódýr smákver, en því miður eru þau þá optast líka ónýt.
J>á er að minnast á aðgjörðir fornleifafjelagsins. A þessu
ári kóm út Árbók þess, hin fyrsta fyrir 1880—1881, og voru
þar í greinilegar skýrslur um rannsóknir Sigurðar fornfræðings
Vigfússonar á þingvelli, lögbergi og hjeruðunum þar í kring.
Sömuleiðis var og skýrsla um fund og uppgröpt lilóthússins
mikla á J>yrli í Hvalfirði, og í sambandi við það skoðun og
rannsókn á Geirshólmi, og öðrum örnefnum í sögu Harðar
Grímkelssonar. |>ar var og ritgjörð um hof og blótsiðu í forn-
öld og var henni þá eigi lokið; er það ein hin bezta ritgjörð,
er samin hefur verið um það efni að minni vitund. Allt þetta
hefur ritað Sigurður Vigfússon. Auk þess var ýmislegt smá-
vegis í Arbók þessa árs; fylgdu henni uppdrættir góðir af Júng-
velli, sem eru miklu rjettari en uppdrættij Sigurðar Guðmunds-
sonar í Alþingisstað hinum forna, svo og af grunni blótliússins
á þyrli. Arið 1880 rannsakaði hann þessa staði, sem hjer er