Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 41

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1881, Blaðsíða 41
MENNTUN. 41 fram í henni hina óbifanlegu sannleiksást, sannfæringu, prek og rjettlætistilfi nningu Jóns Sigurðssonar, haráttu hans fyrir frelsi og sjálfsforræði íslendinga, kapp pað, sem hann lagði á, að losa um öll óstjórnar- og ófrelsisbönd sem lágu pyngst á oss, t. d. í verzlunarmálum, og m. fl. Enn fremur, að hann hefði lagt alla stund á að kenna íslendingum að kannast við sjálfa sig sem menn, sem pjóð, og vekja pá af peim drunga og dauða- svefni aðgjörðaleysis og ódugnaðar, er peir hefði sjálfir svæft sig. Svo tók hann og fram aðgjörðir hans að pví er snertir sögu íslands á öllum tímum, og pekkingu hans á högum pess, hæði á fyrri og síðari tímum. Síðast minntist hann skyldu landsmanna við hann á hina hliðina, og gat pess hve peir hefði nú fagurlega minnzt hennar með pví, að reisa honum laglegan bautastein, sem hjer væri að sjá, og 1 peim svifum var steinninn sviptur blæjunni, og var honum fagnað með drynjandi lúðrapyt. Að endaðri ræðunni var sungið kvæði er Benidikt Gröndal hafði orkt. þaðan gengu meðlimir bók- menntafjelagsins til pinghússins, og hjelt Jón |>orkelsson, rektor lærða skólans, fróðlegan fyrirlestur um vísindalega starfsemi Jóns Sigurðssonar. Minnisvarðinn er pannig, að fyrst er fót- stallur, er myndar 3 rið af granitsteinaröðum; ofan á peim stalli er steinn ferstrendur, 13 puml. á hæð, 1 al. 15 '/* puml. á breidd en 1 al. 4 puml. á pykkt. A honum hvílir annar steinn, 23 puml. á hæð, 1l/* al. á breidd, en 1 alin á pykkt. Ahon- um hvílir aðalsteinninn; er hann 4 álnir á hæð, 1 alin og 6 puml. á breidd og 18 puml. á pykkt að neðanverðu, en dregst nokkuð upp, og endar í burstmynduðum toppi. Framan á hon- um er greypt inn bronceplata, og er á henni andlitsmynd Jóns í lágskurði. Yfir myndinni er gylt stjarna, en undir henni stendur með gyltu letri: «JÓN SIGUEÐSSON» og litlu neðar pessi orð: «Stein penna reistu landar hans 1881». Auk pess er við minnisvarðan marmarahella með nöfnum peirra hjóna, fæðingardögum og dánardögum. Alls er minnisvarði pessi hinn veglegasti.

x

Fréttir frá Íslandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.