Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Page 12
12
4- Berserkjahraun.
í Árbók fornleifafél. 1893, bls. 21—23, hefir S. V. ritnð um Ber-
serkjahraun, og hefi eg litlu þar við að bæta. I krika þeim fyrir sunnan
hraunið, sem aðskilinn er frá túninu þannig, að bæjarlækurinn rennur þar
fram á milli, eru leifar af 2 fornum girðingum, sem þvergarður skilur
hvora frá annari. Það er efri girðingin, sem S. V. lýsir. En af hinni
neðri hefir lækurinn brotið alla þá hliðina, sem að honum veit, því hefir
S. V. ekki tekið þetta fyrir gerði. Sést þó vel, að garðurinn, sem er
hraunmegin við efra gerðið, heldur áfram niður með hraunjaðrinum alt út
að læknum; og hinumegin sér fyrir stuttum garðspotta frá norðaustur-
horni garðsins fram á lækjarbakkann, sem brotnað hefir. I neora gerðinu
er stekkjartóft, mjög götnul og niðursokkin. Og önnur, dáiítið nýlegri,
er upp við þvergarðinn, sem skilur gerðin. S. V. telur nú víst, að efra
gerðið sé hið sama, setn >>hyrgií« er berserkirnir hlóðu. En þá verður að
gera ráð fyrir því, að þeir hafi haft nægan tíma, og gætu þeir þá hafa
gjört báðar þessar girðingar. Svo er líka að sjá af Eyrbyggju, að Styr
hafi ekki sett berserkjunum tímatakmark; þess þurfti ekki, þeir voru sjálfir
nógu ákafir að komast sem fyrst að kaupi við hann. En sé nú hitt samt
sannara, sem Gruunavíkur-Jón segir í Ágripi sinu, að Styr hafi sett ber-
serkjunum þröngt tímatakmark, og að þeir hafi átt að gjöra »byrgit« frá
morgni til dagmála, þá kemur ekki til mála, að það hafi verið gerðiþessi,
annað oða bæði, sem berserkirnir gjörðu. Þá kynni það heldur að vera
hin svo nefnda Krossrétt, sem þar er neðar í hraunjaðrinum. Hún virðist
hafa verið fjárrétt, en er nú eigi notuð og lítur fornlega út. Mundi ærið
berserkjaverk að lilaða !iana frá rnorgni til dagmála. Þess er að gæta, að
Grunnavíkur-Jón ritaði upp eftir minni einu, og má ekki ætlast til, að engu
skakki. Hann nefnir t. d. ekki hagagarðinn, sem Eb. segir að berserkirn-
ir hafi hlaðið og stendur enn í dag.
Eigi er vegurinn, sem berserkirnir ruddu, jafn-mikið tröllaverk og
mirgir ókunnugir hafa ímyndað sér. Hann er lagður í króka, til þess að
nota þá bletti í hrauninu, sem ekki þurfti að ryðja. En satt er það, að
milli þessara bletta er verkið víða allmikið mannvirki. Dys berserkjanna
er í djúpurn dal í hrauninu við veginn, eins og sagan segir. Sagt er að
oftar en einu sinni hafi verið grafið í það; ber það og þess merki. Má
þó nærri geta, að Styr hefir hvorki lagt vopn né fé í haug með berserkj-
unum. Áður en berserkirnir lögðu veginn yfir hraunið, hefir eigi inátt kom-
ast með hesta milli Hrauns og Bjarnarhafnar utan að fara fjörur og sæta
sjávarföllum. Þó skaga 2 hraunranar þar fram í veginn, er of djúpt hefir
verið fyrir framan, svo yfir um þá hefir þá orðið að fara. Hafa verið
ruddar götur yfir um þá þvera, hvorn um sig, og .sér enn glögglega
fyrir þeim.