Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Blaðsíða 40
40
neinar upplýsingar um höfðaletrið: uppruna þess, nafn, aldur né sðgu þess;
og þeir, sem kunnugastir eru handritum í Landsbókasafninu, svo sem
ritstjórarnir Hannes og Valdimar, Pálmi Pálsson og Jón Jakobsson, hafa
ekki séð þar neitt um þetta efni.
Það er þvi engin furða, þó eg hafi fundið til þess, að þekking mín
á þessu máli er mjög svo ónóg til að geta skrifað um það. En af þvi
dr. Valtýr Guðmundsson skoraði á mig að gjöra það, þá vildi eg ekki
skorast undan, einkum þar eð eg hafði lengi hugsað mér sjálfur að gjöra
það, nær sem eg þættist fær um, en á ekki víst, að til batnaðar sé að
bíða. Að minsta kosti vona eg, að þessi tilraun mín geti orðið til þess,
að aðrir, sem fróðari kunna að vera i þessu efni, taki sig nú til og skýri
það betur.
Bæði stafrófin hefi eg dregið upp og læt þau fylgja hér með. Skal
þess getið, að mynd þá, sem stafuriun k hefir hér, hefi eg sjálfur hugsað
upp, og er hún sniðin eftir því, sem eg áleit, að samsvaraði myndum
hinna stafanna. Hvorki er hér né z; fyrir j og i er sama mynd í öllu
því höfðaletri, sem eg hefi séð.
Einnig fylgir sýnishorn »bandleturs«, sem nægja mun til að sýna,
eftir hvaða reglum það letur var myndað.
Þá fylgir og sýnishorn aukamyndanna, og er flest sýnt af myndum
þeirra stafa, sem hafa þær fjölbreyttastar, án þess þó að sýndar séu allar
myndir nokkurs stafs. Það hefði verið óvinnandi verk.
Loks fylgir sýnishorn spónaleturs þess, er eg gat um í öndverðri
grein þessari. Það eru að eins fáeinir stafir, til að gefa hugmynd um
það letur. Stafrófið hefi eg ekki séð nærri alt. Þessu letri álít eg eigi
rétt að blanda saman við höfðaletur, en veit þó til, að það hefir verið
gjört. Því vildi eg taka það með.
Brynjúlýur Jónsson.