Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Page 13
*3
j. Borgarholt o. fl. i Bjarnarhöfn.
Svo segir Eyrb. k. 6: »Björn bjó í Borgarholti í Bjarnarhöfn« og
Lndn. (II. P. n. k.) heíir nálega sömu orð: »ok bjó a Borgarholti i
Bjarnarhöfn«. Hér munar að eins því, að Eb. segir: »í Borgarholti«.
Lndn. segir: »á Borgarholti«. Verður að taka þetta til greina, er ákveða
skal, hvar bær Bjarnar muni hafa verið. Það er auðséð, að nafnið»Bjarn-
arhöfn« heíir í fyrstu eigi verið haft um bæinn, heldur um víkina, þar
sem Björn tók höfn. Var ástæða til að gefa bænum sérstakt nafn eftir
því, hvar hann stóð við víkina, því hún er ekki all-lítil. Nú er hvergi
við víkina staður, sem ber nafnið: »Borgarholt«. En fyrir austan grund-
ina, sem bærinn stendur nú á, gengur dálítill ásahryggur frá fjallinu fram
að víkinni, og er klettaborg efst á honum, sem kölluð er Kjötborg. Eng-
in borg er þar önnur, sem Borgarholt geti verið kent við. Liggur líka
beint við, að [ á haíi ásahryggurinn verið kallaður holt, því fremur sem
hann hefir óefað verið skógi vaxinn í þá daga. Bærinn helir þá staðið
annaðhvort á þessu holti eða í því, nfl. utan i því. Hefði hann staðið
upp á því, mundi þar sjást grjótrúst eflir. Þar var og vatnsból fjær. En
kunnugt er, að landnámsmenn settu jafnan bæi sina við læki, ef þess var
kostur. Hér rennur lækur milli »holtsins« og grundarinnar, sem bærinn
nú stendur á. Það er án efa Borgarlækur. Við hann hetir Björn því
verið heygður. En nú sjást þó engin merki til haugsins. Og það er
mjög eðlilegt. Lækurinn helir brotið bakka sinn holts-megin, svo það
munar allmiklu sumstaðar, sem sjá má af uppgrónum eyrum hinumegin
hans, sem áður hefir verið farvegur þans. Lækurinn hefir þvi án alls efa
brotið hauginn burtu. Sama mun nú vera með bæinn: Hann mun hafa
staðið í vesturjaðri holtsins við lækinn og mun lækurinn hafa brotið bæj-
arstæðið x burtu. En hvar við lækinn mun bærinn hafa staðið? Eg leit-
aði eftir verksummerkjum, er gæti gefið bendingu um það. En þau sáust
engin, utan það eitt, að rétt fyrir ofan ós lækjarins var eyrin vestanmegin
hans breiðust. Þar hafði hann brotið mest; enda er bakki hans aust-
anmegin hæstur þar á móts við. Þar getur gott bæjarstæði verið afbrot-
ið. Gera má og ráð fyrir, að áður en lækurinn bar aur í sjóinn fram
undan ósnurn, hafi þar verið góð lending, og lá þá beint við að velja
bæjarstæði sem næst henni, svo heimflutningur frá sjó væri sem hægast-
ur. Milli sjávarins og þess staðar sem eg hugsaði mér bæjarstæðið gengur
fram dálítið klettanef; neðst í því standa 3 stórir steinar, jarðfastir, og
grasgeirar milli þeirra. Þætti mér ekki undarlegt, þó heiðnum manni
hefði komið í hug, að þar byggi landvættir, og hefði nokkuð slíkt vakað
fyrir Birni, þá gat honum þótt þess fýsilegra að búa sem næst þeim.
Þetta segi eg nú til gamans, en dettur auðvitað ekki í hug að nota það
til að styðja getgátu mína um bæjarstæðið. Hana byggi eg á þeirn lík-
inda-ástæðum, sem eg var búinn að taka fram. (En getgáta er samt get-