Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1900, Síða 21
21
brott þaðan Saxa Alfvarinsson, Válasonar, ok bjó hann síðan at Hrauni
hjá Saxahváli«. Bærinn Hraun »hjá Saxahváli« tnun vera Saxahvoll, sem
nú er bygður, i daglegu tali er hann nú ávalt nefndur »Saxhóll«. Rústir
hins forna Saxahváls eru svo sem stekkjarvegi norðar. Er þar talsvert
graslendissvæði milli fjalls og hrauns Heíir það hraun komið úr Ond-
verðanesshóluin, og mun vera það, sem Lndn. kallar Neshraun. Rúsdrn-
ar eru tvær saman, báðar miklar ummáls, en svo ógiöggar, að eg gat ekki
með vissu ákveðið, hvor er bæjarrústin, eða hvor er fjóss- og hcystæðis-
rústin. Fleiri smárústir eru þar, enn óglöggari, og fornar girðingar eru
urn kring. Hefir túnið, eða hið umgirta land, verið all-viðlent. Skamt
þaðan er í hraunbrúninni gömul fjárborg af grjóti og girðingarbrot hjá
(nátthagi ?); en það mun vera yngra og hafa verið notað frá bænum sem
nú er bygður, eftir að hann var einn orðinn. A örnefnið »Kornahaugur«
kunni enginn að vísa.
Beruvík. Beruvíkurhraun, sem Lndn. nefnir, er án efa hin ný-
lega hraunkvísl fyrir sunnan Hólahóla, er gengur að sjó báðumegin
Dritvíkur. Er langur spölur suður þangað frá Beruvíkur-bæjunum. Nafnið
Beruvik bendir til þess, að þar hafi búið kona, er Bera hét. Nú er nafn-
ið ávalt borið fram: »Bervik« í daglegu tali. Sagnir eru þar um Beru.
Bygð hennar er sýnd upp undir fjallinu, gildurn stekkjarvegi fyrir ofan
Beruvíkur-bæina. Þar eru viðir grasvellir og sjást þar rústir, fornlegar og
óglöggar, einnig er þar túngirðing allvíð. Skamt suður þaðan er önnur
rúst og túngirðing. Þar heita Austmannsstaðir. Er sagt, að Bera hafi gef-
ið austmanni sinum þar land. Þar niður frá eru hólar þeir, er bærinn
Hólahólar hafði nafn af. Þeir eru forn eldvörp. I einum þeiria er gíg-
ur allviður með hamrabarmi í kring nerna að norðanverðu, þar er enginn
barmur. Alt er þar grasgróið og gígurinn orðinn að dal I þeim dal er
sagt að Bera hafi kosið sér legstað og sagt, að hún vildi eigi að sól né
tungl næði að skína á leiði sitt. Hefir leiðí Beru verið sýnt í dalnum til
skamms tíma. En »móða«, sem gengur ofan litlu norðar, hefir fyrir fám
árum hlaupið í dalinn og fylt hann af skriðu, svo leiðið sést nú eigi
lengur. — Bærinn Hólahólar hefir nú verið í eyði um 20 ár. Virðist þar
þó tún grasgefið og sauðfjárhagar góðir. En sjávarafli hefir mjög brugð-
ist vestan á og sunnan á nesinu nú i niörg ár; hefir hið forna afgjald þá
orðið of vaxið. Nafnið »Hólahólar« er einkennilegt, líkt og »Staðastað-
ur«. Er óvíst, hvernig slík tvítekning hefir upp komið.
11. Ýmislegt í landnámi Sigmundar Ketilssonar.
o o
Dritvík. Þess er fyr getið, að hraunkvísl sú, sem Lndn. nefnir
Beruvíkurhraun, gengur í sjó fram báðumegin Dritvíkur, og er vikin