Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Blaðsíða 4
20_______________________________________________ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Rúmlega 0,30 m frá vesturenda fjalanna stóð hæll í gólfinu við
bakhlið þcirra. Hann náði upp á móts við efri brún bekkhliðarinnar,
upp í 0,91 m hæð, br. A-V 0,05 m, þ. 0,04 m. Má vera að fjalirnar hafi
verið negldar á hann, en ekki var hægt að ganga úr skugga um það
vegna fúaskcmmda. Að neðan var bekkhliðinni lyft frá gólfi. Litlu
vestar en á móts við hælinn á bak við fjalirnar var undir henni tréhæll,
sem rekinn hafði verið ofan í gólfið og hvíldi neðri rönd bekkhliðar-
innar á efri enda hans. Austar lá steinn á gólfinu undir sömu fjöl. Varð
því allt að 0,12 m loft undir bekkhhðina.
Ekki náði bekkhliðin alveg vestur að þilleifunum að vestan, vantaði
um 0,15 m á þann enda. Hefur líklega fúnað af endanum ef til vill vegna
þess að hann hafi verið festur á tré, sem hefur þá einnig eyðst.
Framan við næstu stoð, A.N. II, voru leifar af fjöl. Hún hafði verið
negld á stoðina, en brotnað um naglann. Hún var mikið fúin og óheil,
1. 1,13 m, br. 0,10 m mest, þ. mest 0,025 m. Af upphaflegum (efra)
jaðri voru aðeins eftir 0,30 m og af afstöðu jaðarsins má sjá að fjölin
hefur ekki verið mjórri en 0,12 m þegar hún var heil. Þarna var gólf-
hæðin 0,51 m og hæð efri jaðars 0,70 m. Hafi nú fjölin verið 0,12 m
breið hefur neðri jaðar aðeins verið 0,09 m frá gólfi og má þá gera ráð
fyrir að þetta sé neðri fjöl, því líklega hafa verið tvær fjalir í bekkhlið-
inni, hvor um sig allt að 0,15 m breið eða bekkhliðin öll um 0,30 m líkt
og var vestur við dyraþil. Ekki var fjölin negld beint á stoðina heldur
var önnur lóðrétt fjöl og líklega auk þess hellublað á milli. Við þetta
færist fjölin 0,05 m lengra fram á gólfið. Ef til vill er þetta gert til þess
að mynda lengri beina bekkhlið en ella, þar eð stoðaröðin er sveigð út
um miðju. Benda má á að framhlið stoðanna A.N. I og A.N. III ásamt
viðaukanum framan við A.N. II Hggja svo til í beinni línu, en þó er
stefna þeirrar línu ekki alveg sú sama og á bekkhliðinni vestan við A.N. I.
í nánd við A.N. III liggja leifar af tveimur fjölum á gólfi, önnur rétt
framan við stoðina, en hin nær veggnum og undir bekkstæðinu. Ef til
vill er fremri fjölin leifar af bekkhlið. í stoðinni er naglagat, sem sýnir
að eitthvað hefur verið neglt á hana. Þýðing hinnar fjalarinnar er óljós.
í stefnu frá A.N. IV, sem raunar vantaði að mestu leyti, og upp að
vegg, lá fjöl og var suðurendinn brotinn af, en brotið lá rétt við fjalar-
endann; 1. 0,45 m + 0,06 m, samtals var fjölin því 0,51 m, br. mest 0,06
m, þ. um 0,06 m. í styttra brotinu var bútur og haus af trénagla, sem
sýnir að fjölin hefur verið negld á eitthvað. Fjölin er mjög fúin og óheil
raunar aðeins klofningur úr stærra tré. Austan við suðurcnda þessarar
fjalar Hggur önnur fjöl, sem stefnir austur—vestur (eins og bekkurinn),
1. 0,25 m, br. 0,14 m, þykkt óljós vegna fúa. Freistandi er að halda að