Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 03.01.1986, Qupperneq 11
KÚABÓT í ÁLFTAVERI I
27
konar pallur, en önnur merki þess en þessi óvenjulega hæð á grjótinu og
staurinn úti á gólfinu sáust þó ekki.
Á bak við stoðina A.S. I var vænn steinn á gólfi út við vegg, 1,18 m
frá vesturþili, þvm. 0,32 x 0,26 m h. 0,79 m. Austar í 2. stafgólfi, 1,93
m frá vesturþili cr vænn steinn, þvm. 0,32 x 0,30 m, lt. 0,74 m. Hann
er ekki fastur í gólfi, en er þó stöðugur að sjá. í 3. stafgólfi, 2,64 m frá
vesturþili er ferstrendur steinn á gólfi, þvm. 0,20 x 0,16 m, h. 0,80 m.
Hann er 0,10 m frá suðurvegg og á bak við hann nær veggnum eru
nokkru hærri smásteinar. í 4. stafgólfi eru saman tvcir vænir steinar, sá
vestari 4,02 m frá vesturþili, þvm. 0,25 x 0,22 m, h. 0,69 m, liinn 4,29
m frá vesturþili, þvm. 0,24 x 0,18 m, h. 0,72 m. 1 5. eða austasta staf-
gólfi er stór ferskeyttur steinn gólffastur, 5,23 m frá vesturþili, þvm.
0,33 x 0,32 m, h. 0,66 m. Ekki er fleiri stafbæra stcina að sjá í þessu
stafgólfi, en austar, í suðausturhorni hússins, eru hærri steinar, en um
þá verður rætt í sambandi við austurenda hússins.
Það vekur athygli að hæstu steinarnir, eða þeir sem hærri eru en
gerðist hæst við norðurvegg eru smáir og flestir svo nærri suðurveggn-
um að þeir gætu hafa vcrið á bak við þil eða annars verið undir sjálfri
bekksetunni, en hún var ekki lægri en í 0,91 m hæð við norðurvegginn.
Hafi bekkir verið jafnbreiðir báðum megin í húsinu, en að norðan var
bekkhliðin um 0,45 m frá vegg, þá hefur verið um 0,13 m skot á rnilli
þils og veggjar að sunnan.
Svo sem hér að framan greinir (bls. 19) hefur verið pallur við austur-
gafi. Áður hefur verið lýst trjám þeim, sem standa á milli framhliðar
palls og veggjar og eru þau næsta óreglulega sett. Sama má raunar segja
um grjótið innan í eða undir pallinum. Það er óreglulega dreift og er
þar hvergi að finna hleðslu né heldur steina, sem tengja mætti stoðum
né syllum. Tré er þar allt að 0,93 m hæð og annað jafnvel 1,02 m, en
raunar kynni það að hafa staðið á bakvið gafiþil, hafi þar verið þil, en
einnig cru þar steinar, sem ná liátt upp, allt að 0,98 m undir miðjum
palli og í suðausturhorni 1,06 m og er eftirtektarvert að steinar eru því
hærri sem nær dregur suðurvegg og er hæðarmunurinn allt að 0,16 m.
Nú má teljast óhugsandi að pallurinn hafi hallast, þó annars verði fátt
fullyrt um hann. Hann mun hafa verið um 0,80 m breiður og líklegust
hæð hans 1,00—1,08 m, þ.e. hann hefur verið helmingi breiðari en
nyrðri bekkurinn og 0,10—0,15 m hærri.
B. (skáli)
Næst vestan við A var stórt hús og er tvíhlaðinn grjótveggur á milli,
1,80 m þykkur. Dyrnar á milli húsanna eru sem næst á miðjum vegg,