Alþýðublaðið - 16.03.1960, Blaðsíða 10
iiiiiiiiiiliiiiiiliiiiiuiillillluiiiiiiiiiliiliiiiiiiiiiiuuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiawtiriiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiHiKra
Körfuknattleiksmótið:
íþróttömenn undir smásjá: \
Jón Pétursson I
Um síðustu helgi bar nafn
Jóns Péturssonar hæst hér á
íþróttasviðinu. Hann sigraði
með miklum glæsibrág í há-
stökki á innanhússmótinu á
nýju meti, 1,98 m„ sem er 1
sm. hærra en íslandsmet
Skúla Guðmundssonar (utan
húss).
Okkur langar til að kynna
Jón lítillega. Hann er aðeins
23 ára, fæddur 19. júlí 1936
í Gruridarfirði. Þar ólst hann
upp til 10 ára aldurs, en
fluttist þá til Stykkishólms.
— Jón hóf fyrst að æfa
frjálsíþróttir 14 ára gamall
og lagði stund á millivega-
Iengdir og langhlaup. Fyrsta
alvarlega keppni hans var á
Landsmóti Ungmennafélag-
anna á Eiðum 1952, þá 15
ára, hann varð 11. í 1500 m.
hlaupi og 7. í víðavangs-
hlaupi. Skömmu eftir Eiða-
mótið varð Jón að hætta að
æfa langhlaup samkvæmt
læknisráði, en hann hafði
mikipn íþróttaáhuga og fór
nú að æfa stökk og köst. Jón
æfði einnig mikið „þjóðar-
íþróít“ Hólmara, badminton,
og náði nokkuð langt í því.
Það var árið 1954, sem Jón
Péturssón „sló í gegn“ eins
og sagt er, þá stökk hann
hæst 1,80 m. og varð bæði
drengja-, unglinga- og ís-
landsmeistari, aðeins 18 ára |
gamall. |
Næsta skrefið á íþrótta- |
ferli Jóns var, að hann flutti §
til til Rvíkur haustið 1955 i
og gekk í KR. Stjarna hans §
á himni íþróttanna hækkaði i
stöðugt úr þessu, hann kepp- j
ir í landsliði íslarids bæði í =
hástökki og þrístökki og §
árangurinn batnar stöðugt |
undir leiðsögn Benedikts Ja |
kobssonar. Að vísu leit §
heldur illa út veturinn 1956, =
en þá varð Jón að ganga §
undir allmikinn uppskurð á |
hné og um tíma leit jafnvel |
út fyrir, að hann yrði að 1
hætta íþróttakeppni fyrir =
fullt og allt. Svo fór þó ekki, §
sem betur fer. Jón þakkar |
það mikið Sigurði Helgásyni |
íþróttakennara, sem hvatti |
hann ávallt til að gefast |
ekki upp. |
Eftir 1,98 m. stökk Jóns |
um síðustu helgi og ágæta =
tilraun við 2,01 m. bendir |
allt til þess, að hann verði |
fyrstur íslendinga til að yfir |
vinna 2 m. múrinn. |
Bezti árangur Jóns í nokkr |
um greinum: §
m. 1
Hástökk (innanhúss) 1,98 |
Hástökk (utánhúss) 1,95 f
Þrístökk 14,56 |
Kúluvarp 14,48 |
Kringlukast 45,69 1
KFR (b) vann SKF
ÍSLANDSMÓTIÐ í körfu-
knattleik hélt áfram að Há-
logalandi á mánudaginn var.
Léku þá í II. fl- karla KR og
Á-a og í mfl. karla ÍKF og
KFR-b-lið.
Úrslit í II. fl. urðu þau að
A sigraði með 39 stigum gegn
27. Höfðu þeir talsverða yf-
irburði í fyrri hálfleik, sem
lauk 23:11 þeim í vil. Seinni
hálfleikur var hins vegar jafn
og skoruðu bæði liðin þá jafn
mörg stig.
Lið Ármenninga var nokk-
uð þungt í vöfum og samleik-
ur ekki eins lipur og oft áður,
einkum í seinni hálfleik. Bezt
ir voru Birgir, Magnús og
Davíð.
KR-ingum hefur augsýni-
lega farið verulega fram frá
í fyrra. Þeim er og talsverð-
ur styrkur af Skúla, sem áður
lék með ÍR, hann skaut þó ó-
þarflega mikið af færi og ætti
að halda sig meira undir körf-
unum til að nýta betur hæð-
ina.
Beztur KR-inga var Jón
Otti. Aðrir leikmenn lofa og
góðu einkum Guttormur, sem
er kornungur og Halldór, sem
sýndi mikinn baráttuvilja.
Dómarar voru Guðm. Aðal-
steinsson og Viðar Hjartarson
og dæmdu vel, enda leikurinn
prúður.
I mfl. karla urðu úrslit þau,
að KFR sigraði ÍKF með
nokkrum yfirburðum. Segja
má. að úrslitin hafi komið
nokkuð á óvart. ÍKF hefur
aldrei komið jafn veikt í ís-
landsmeistaramótið og nú.
Aðalástæðan mun vera slæm
æfingaskilyrði og fjarvera
sumra leikmanna liðsins. Hins
vegar hefur liðið á að skipa
efnilegum nýliðum og von-
andi verður bess ekki langt
að bíða, að liðið nái sér á strik
.aftur.
Eins kom geta b-liðs KFR
nokkuð á óvart og er ánægju-
legt, að KFR skuli hafa svo
mörgum leikmönnum á að
skina í mfl., sem raun ber
vitni.
Leikurinn var vfirleitt jafn
framan af og ÍKF-ingar þó
fremur með forystuna. Leik-
urinn var nokkuð þungur og
harður. Eftir nokkrar mín. er
staðan 11—10 ÍKF í vil. en
þá ná KFR-ingar ágætum
snretti og komast í 16:11.
Juku þeir smám saman bilið
og lauk hálfleiknum 22:14.
'S’einni hálfleikur var jafn-
a'ri. en bó juku KFR-ingar
forskotið um 4 stig og urðu
endanleg úrslit 51:39.
í heild var leikurinn mjöff
misjafnlega leikinn. Bæði
liðin, og þó einkum KFR
náðu góðum leikköflum, en
bess í milli var leikurinn bóf-
kenndur og skinulagslítill og
t.alsvert um ónákvæmar send-
ingar og grip einstakra leik-
manria.
Stighæsti maður leiksins
var óvænt Birgir Helgason,
semi er nýliði hjá KFR. Birgir
átti mörg lagleg körfuskot af
færi. Hann á samt margt eftir
ólært í sambandi við samleik-
inn,_ en engum dylst að þarna
er um upprennandi fyrsta
klassa körfuknattleiksmann
að ræða. Leikmenn KFR voru
annars mjög jafnir. Helgi átti
ágætan seinni hálfleik og
skoraði 14 stig. Guðm. og
Ágúst sýndu liprasta samleik-
inn og Ágúst byggði einkar
vel upp. Guðm. gekk illa að
hitta í körfuna í fyrri hálf-
leik, en náði sér á strik í þeim
síðari og skoraði 8 stig. Sig-
urður skoraði 7 stig.
í liði ÍKF voru beztu menn
og lang stigahæstir þeir
Bjarni og Hjálmar.
Bjarni er ungur og mjög
efnilegur leikmaður, skoraði
hann 17 stig. Honum hættir
til að taka of mörg skref með
knöttinn og missti hann af a.
m. k. 4 stigum þess vegna.
Hiálmar skoraði 15 stig. Aðr-
ir leikmenn liðsins voru lak-
ari, t. d. voru Friðrik og Magn
ús langt frá sínu bezta. Dóm-
arar voru Helgi Jóh. og Þórir
Arinbiarnar og héldu leikn-
EINS og áður hefur verið
getið í blaðinu, fór 6. umferð
bikarkeppninnar' fram s. 1.
laugardag. Um 227000 áhorf-
endur sáu þessa fjóra leiki eða
að meðaltali 55400 hvern leik.
Aston Villa lék mun betur
en Freston og sigraði örugg-
lega. Miðherji þeirra, Hitchens,
skoraði fyrra mark þeirra á 10,
mín., hinn marksækni McPar-
land það síðara á 78. mín. Me-
Parland skoraði sem kunnugt
er bæði mö k Villa í úrslita-
leik bikarkeppninnar gegn
Manch. Utd. fyrir þremur ár-
um, og virðist hafa fullan hug
á að nælá í bikarinn að nýju.
f leik Burnley og Blackburn
gekk á ýmsu. í hléi stóð 0:0,
en er 15. mín. voru af síðari
hálfleik hafði Burnley skorað
þrívegis. Eftir það snéri gæfan
við þeim bakinu og- Blackburn
tókst að jafna skömmu fyrir
leikslok. Þessi tvö lið leika að
um vel í skefjum.
'nýju í Blackburn í. kvöld.
^ Úlfarnir voru heppnir gegn
■ í
immm
■
Þettia er Sidebottom, markvörður Wolverhampton.
10 16. marz 1960 — Alþýðublaðið