Sæmundur Fróði - 01.03.1874, Page 2
34
3. Stuðlabergssteinar (Basah);
4. Riðfjallasteinar (Trap);
5. Hrufuhellusteinar (Klingstone);
6. Dílagrjót (Porphyr);
7. DoJerif-grjót;
8. Leirsteinar;
9. Sandsteinar;
10. Hraun (Lava);
11. Sambland af j'msum eldsteinategundum, sem al-
mennt eru kallaðar Tuffa.
Jeg skal nú lýsa hverri af þessari steinategund út affyrir
sig, að svo miklu leyti, sem almenningi er ætlandi að geta
greint þessar tegundir hverja frá annari.
I.
Hrufugrjótssteinar.
Hrufugrjót eða Trachyt-f'jöW eru mjög almenná fslandi, og hafa
sumir af þeim jarðmyndunarfræðingum,er hjerhafa ferðaztum land-
ið, ímyndað sjer, að kjarninn í mörgum af vorum stærstu fjöllum,
þ. e. allmörgum jöklnm og eldfjöllum, mundivera hrufugrjót, enda
eru mörg hin minnifjöllin að mestu leyti samsett af hrufugrjóti eða
hrufugrjótskenndum steinum. Það, sem einkum einkennir hrufu-
grjótsfjöll vor, er mynd þeirra og litur. Að því er mynd
þeirra snertir, þá eru þau vanalega sykurtoppsmynduð eða
keilumynduð, en litur þeirra er ýmist bleikhvítur, hvítgrár,
rauðbleikur, eða nærfellt lifrauður. Hin helztu, er jeg þekki
af þcssum fjöllum, eru þessi:
a. Stóra og litla Baula í Borgaríirði;
b. Skarðsheiði syðri;
c. Drápuhlíðarfjall;
d. Fjöllin norður af Miklaholtshreppi;
e. Syðri hluti Esjufjalls;
f. Rauðukambar;
g. Tindastóll;
h. Syðri hluti Balljökuls;
i. Fjöllin langs með Hvalflrði að norðanverðu;
k. Reynivallaháls vestan til;