Alþýðublaðið - 31.03.1960, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 31.03.1960, Blaðsíða 13
■msBHsssa?.; m » ■ ■ B B ■ ■ ■ ■ ■ ■ n^sssasssmnaHKBaB^isssassBiCBEBBsassBssasBsaHKiaBBBiBBESBBSBaBBi UKsnBiHisnsninnnnHuuinni TILKY ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ B ■ ■ ■ ■ B ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ B um söluskaft af innlendum víðskiptum samkvæmt lögum nr. 10. 22. marz 1960 ■ ■ B ■ ■ B B B B B B ■ B B B B B B B B B B ■ H B ■ B B ■ B B B B B B B B B B B B m E H B B B B B ■ B B B B B B I. Frá 1. apríl 1980 skál greiða 3% söluskatt af andvirði seldrar vöru og verðmæta og endurgjaldi fyrir hverskonar starfsemi og þjónustu. Til skattskyldra viðskipta telst öll sala eða afhending vöru, þar með talin sala pöntunarfélaga, umiboðssala, sala við frjá'ls uppfooð, svo og öU vinna og þjónusta, sem látin er í té af iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, ein- staklingumi eða stofnunum, er stunda hverskonar siálfstæða starfsemi. Einnig er skattskyld úttekt eiganda úr eigin fyrirtæki, jafnt vara, vinna og þjónusta. II. Söluskattskyldir eru allir þeir, sem annast söluskattskyld viðskipti og skiptir ekki máli í því samfoandi hvort hlutaðeigandi er einstaklingur, firma eða félag, opinber stofnun, fyrirtæki ríkis eða sveitarfélags, eða aðrir aðilar, þótt undanþegnir séu skattskyldu samkv. lögum nr. 46/1954 um tekjuskatt og eignarskatt eða öðrum lögum. Einnig eru umiboðs- menn og fyrirsvarsmenn erlendra aðila, sem hafa söluskattskylda starfsemi hér á landi, skattskyldir af siíkri starfsemi. III.. Skattskylda er almennt bundin við síðasta stig viðskipta. Það er því aðalregla að sala til neytanda er skattskyld, sala til endurseljanda skatt- frjáls. Neytandi telst sá, sem kaupir vöru, vinnu eða þjónustu til elgin nota eða neyzlu, endurseljandi sá, sem kaupir vöru eða vinnu til að selja aftur eða notar vöruna sem efni í vöru, sem framleidd er í at- vinnuskyni. Þetta gildir þó ekki um óvaranlegar rekstrarvörur og ihjálp- arefni til framleiðslustarfsemi, sem ekki mynda efnisþátt framleiðsl- unnar, og skal endurseljandi greiða söluskatt af kaupverði slíkra vara. •■:'.. ;. ■.::\vry: IV. Því aðeins er heimilt að selja endurseljanda vöru, vinnu eða þjónustu án söluskatts að foann hafi tilkynnt skattyfirvöldum um starfsemi sína og sýni skírteini er sanni að hann hafi heimild til að kaupa viðkomandi vöru án söluskatts sem endurseljandi. — Eyðubiöð þessi ásamt leiðbein- mgum fást hiá skattstofum og skattanefndum. Skulu allir söluskatt- skyidir aðilar; í síðasta lagi 1. maí n. k. hafa tilkynnt skattyfirvöldum um atvinnurekstur sinn eða starfsemi eftir því sem fyrir er mælt og fengið viðurkenningu sem bráðabirgða heimild til kaupa á vöru án söluskatts. Þeir sem hefja starfsemi eftir að lögin öðlast gildi skulu til- kynna það áður en starfsemi hefst. Ef söluskattskyldur aðili hættir starfsemi þeirri, sem tilkynnt'hefur verið, fellur umrædd heimild úr gildi, og skal tilkynnt um það til skattyfirvalda. V. Eftirfarandi sérákvæði gilda um inhheimtu söluskatts af neðantalinni starfsemi og viðskiptum: a. Seljendur skulu taka söluskatt af verði allrar vöru og þjónustu, sem seld er í smásölu og skiptir þá ekki máli, hvort um er að ræða sölu til neytenda eða endurseljenda, þó skal ekki innhéimta söluskatt af timbri, trjávörum, steypustyrktarjárni og sementi til endurseljenda. b- Söluskattur af aðgangseyri að skemmtunum skal innheimtur með skemmtanaskatti. c. Af vörum þeim, sem Tóbakseinkasala ríkisins sélur, greiða þeir aðil- ar, sem hafa með höndum smásölu slíkra vara, einkasölunni sölu- ' skatt af þeim vörum um leið og þeir greiðfi kaupverð varanna og er skatturinn miðaður við smásöluverð. d. Innflytjendur olíu og benzíns skulu taka söluskatt við sölu eða af- 'hendingu þessara vara fil umfooðsmanna sinna eða annarra aðila.— Skatturinn miðast við smásöluverð. — Smásalar og umboðssalar sem að kveldi hins 31. marz 1960 eiga óseldar slíkar vörur skulu. inn- 'heimta söluskatt af söluverði þeirra og standa skil á honum í ríkis- sjóð. VI. Skatturinn miðast við heildarandvirði eða heildarendurgjald vöru, vinnu eða þjónustu, án frádráttar nokkurs kostnaðar. Verð vöru, vinnu og þjónustu má hækka sem söluskatti nemur. — Vanræki einhver að taka söluskatt af skattskyldum viðskiptum, ber honum eigi að síður að standa skil á skattinum. VII. Undanþegin söluskatti er sala eftirtalinna vara og verðmæta: Vörur seldar úr landi, nýmjólk, nema í veitingasölu, fiskumbúðir og kjötpokar, fiskinet, fiskilínur, önglar og öngultaumar, (þó ekki sport- tæki), salt, annað en í smásöluumbúðum, beitusíld, tilbúinn áburður, annar en í smásöluumfoúðum, grasfræ, fóðurvörur, flugvélaeldsneyfi, innlend dagfolöð og hliðstæð folöð, svo og tímarit, sem ekki eru gefin út í ágóðaskyni. Ennfremur fasteignir, skip, flugvélar og flugvélavara- hlutar, einnig lausafé, sem seljandi hefur notað í eigin þágu eða við starfsemi sína, enda geti salan ekki talist til atvinnurekstrar. Ekki skal skattlögð heimlisontkun framleiðenda landfoúnaðar og sjávarafurða á eigin framleiðsluvörum. VIII. Undanþegin söluskatti er eftirtalin starfsemi og þjónusta: a. Vinna við húsfoyggingar og aðra mannvirkjagerð eða við endurbætur og viðhald slíkra eigna. Undanþágan tekur þó.einvörðungu til þeirr- ar vinnu, sem unnin er á foyggingarstað, en ekki til vinnu við fram- leiðslu eða að vinnslu byggingarvara í verksmiðju, verkstæði eða starfsstöð. b. Vinna við skipa- og flugvélaviðgerðir, vöruflutningar, enn fremur fólksflutningar almlennra leigúbifreiða á stöð. c. Húsaleiga, þó ekki leiga gistihúsa og samkomúhúsa, útfararþjónusta, rekstur sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, héilsuhæla og annarra því- líkra stofnana, sala fasteigna, skipa, flugvéla, verðbréfa og annarra þvílíkra verðmæta. Ennfremur lækningar, lögfræðistörf og önnur hliðs'tæð þjónusta, sala listamanna á eigin verkum, sala neyzluvatns, póst- og símaþjónutsa, svo og þjónusta banka og sparisjóða. IX. Allir söluskattskyldir aðilar skulu senda hlutaðeigandi skattýfirvaldi skýrslu um heildarveltu sína hvern ársfjórðung á þar til gerðum eyðu- blöðum, ásamt upplýsingum um einkaúttekt, skattfrjálsa sölu og annað er máli skiptir við ákvörðun skattsins. — Sölusfcattskýrsla skal hafa borizt skattyfirvöldum í síðasta lagi innan 15 daga frá lokum hvers ársfjórðungs. X. Söluskatt skal greiða til innheimtumanns ríkissjóðs í síðasta lagi fyrir lok framtalsfrests hvers ársfjórðungs. Hafi einihver, sem greiða skal söluskatt, eigi skilað honum til innhemtu- manns ríkissjóðs innan mánaðar frá gjalddaga, skal hann greiða 114% í dráttarvexti fyrir hvern foyrjaðan mánuð frá gjalddaga. Verði vanskil á greiðslu skattsins, má innheimtumaður láta lögreglu- stjóra stöðva atvinnurekstur þess, sem eigi hefur staðið í skilum, þar til full skil eru gerð, með þv£ m. a. að setja verkstofur, skrfstofur, út- sölur, tæki og vörur undir innsigli. Hér eru aðeins rakin höfuöatriði hinna nýju söluskattslaga og því nauðsynlegt að allir söluskattskyldir aði’lar fcynni séx sem foezt lögin í heild, og söluskattsreglugerð sem birt verður. Reykjavík, 30. marz 1960. SKATTSTJÓRINN I REYKJAVIK. B ■ H ■ ■ ■ ■ ■ B ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ ■ H ■ ■ ■ ■ H H H H H H H H ■ H H H B B B H H H H ■ H B B H m B H H B I ■HaBHBBiaBBHBBimHHBHIBBBBBBaHBaHHaBHHHBBBBaHHBHHHHHHHHHHHHHHHHBBHHHHHHHHHBHBHHHaHHHHBBBHHHHHHBBHHBHHBHHBBHHHtlHHBBHHHH Alþýðublaðið —- 31. marz 1960

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.