Fréttablaðið - 02.05.2001, Side 2
I
KJÖRKASSINN
DAVÍÐ ODDSSON,
FORSÆTISRÁÐ-
HERRA
Vinsæll meðal lands-
manna en góðærið
ekki honum einum að
þakka að mati netverja.
Er góðæri undanfarinna ára
Davið Oddssyni að þakka?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
24%
Spurning dagsins í dag:
Á Samkeppnisstofnun að rannsaka
starfsemi olíufélaganna vegna bensín-
verðshækkana?
Farðu inn á vísi.is og segðu I
þlna skoðun I
___________
SCHENGENSAMSTARF
Allar ferðir til og frá Schengen svæðinu eru
skráðar í gagnagrunn aðildarríkjanna.
Schengen samstarfið:
10 frávísanir
frá gildistöku
iawpamæraeftirlit Sýslumaðurinn á
Keflavíkurflugvelli, sem sér um
landamæraeftirlit á Keflavíkurflug-
velli, hefur vísað 10 einstaklingum
frá landi síðan Schengen samstarfið
hófst 25. mars síðast liðinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
landamæraeftirlitinu voru 8 af þess-
um 10 einstaklingum með fölsuð
vegabréf. Tveimur var vísar frá af
öðrum ástæðum. Aðrar ástæður geta
verið stolin vegabréf, ónóg fjárráð
eða að engar skýringar eru gefnar á
ferðalaginu.
Allar ferðir til og frá Schengen
svæðinu eru skráðar í gagnabanka,
svokallað SIS kerfi (Schengen In-
formation System). Vegna þeirrar
skráningar hefur tekist að hafa hend-
ur í hári þeirra sem ferðast um með
fölsuð vegabréf. Eftirlýstir einstak-
lingar eru geymdir í gagnagrunnin-
um og gefur kerfið til kynna þegar
einhver þeirra kemur inn á Schengen
svæði eða yfirgefur það.
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflug-
velli vísar fólki frá landi áður en það
kemur inn í það. Ef einstaklingur
sleppur fram hjá Iandamæraeftirlit-
inu færist málið til ríkislögreglu-
stjóra og kemur það í hans hlut að
brottvísa hlutaðeigandi frá landi. ■
ERLENT
Eldur kom upp í rússíbana í
skemmtigarði í borginni Bruhl,
skammt frá Köln í Þýskalandi í gær.
A.m.k. 36 manns slösuðust og þús-
undir manna flúðu garðinn í ofboði.
Enginn lét lífið, að sögn lögreglu-
stjórans í bænum, en litlu mátti
muna. Slökkvilið réði niðurlögum
eldsins á tveimur klukkustundum.
—♦—
Fimm manns létust og 22 til við-
bótar slösuðust þegar rúta fór út
af vegi og lenti ofan í skurði á Spáni
í fyrrinótt.
40 ferðamenn voru í rútunni, sem
var á leiðinni frá Madrid til
Malaga. Vitað er til þess að einn
þeirra sem lést var frá Bandaríkjun-
um og tveir þeirra frá Marokkó. Or-
sök slyssins eru enn ókunn og er
máliö í rannsókn hjá lögreglu.
2
FRÉTTABLAÐIÐ
2. maí 2001 MIÐVIKUDAGUR
Útiloka ekki samúðaraðgerðir í sjómannadeilunni:
Aðild að ESB gegn
okri og einokun
i. maí Guðmundur Gunnarsson for-
maður Rafiðnaðarsambands íslands
sagði í 1. maí ræðu sinni á Ingólfs-
torgi í gær að með inngöngu íslands í
Evrópusambandið yrði hægt að
knýja fram eðlilegt verðlag í landinu
og brjóta á bak aftur alla einokun.
Hann hvatti til þess að umræða um
forsendur að hugsanlegri aðild að
ESB yrði sett á dagskrá. Hann sagði
einnig að launafólk ættu að íhuga
samúðaraðgerðir með sjómönnum ef
stjórnvöld mundu grípa í verkfall
sjómanna með lagasetningu.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB lagði áherslu á það í sinni ræðu
að verkalýðshreyfingin héldi vöku
sinni í baráttunni fyrir félagslegu
réttlæti og velferð fyrir alla í glím-
unni við afturhalds- og einokunaröfl-
in.
Talið er að 1-2 þúsund manns hafi
tekið þátt í 1. maí hátíðahöldunum í
Reykjavík í gær að mati töluglöggra
lögreglumanna. Eins og oft áður var
veðrðið ekki hagstætt launafólki því
það gekk á með rigningu og hvössum
vindi þegar verst var. ■
BARÁTTUDAGUR VERKALÝÐSINS
Verkafólk hélt upp á 1. maí með hefðbundinni dagskrá, göngu.ræðum söng og upplestri.
ÞÝSKIR LÖGREGLUÞJÓNAR VAÐA ELD
Mótmælahópar höfðu reist logandi götuvígi í Berlfn f gærmorgun.
Mótmælabannið
í Berlín hunsað
Mótmælendum og lögreglu lenti saman víða um heim 1. maí
BERLÍN oc LONPON. ap Þúsundir rót-
tækra vinstrimanna og stjórnleys-
ingja í Berlín köstuðu grjóti og
flöskum í lögregluna og settu upp
logandi götuvígi í gærmorgun. Átök-
in hörðnuðu síðdegis þegar mótmæl-
endur bjuggu sig af fullri alvöru
undir árvissar óeirðir á 1. maí í
hverfinu Kreuzberg.
Þrátt fyrir að allar mótmælaað-
gerðir í hverfinu hafi verið bannað-
ar og 9.000 manna lögreglulið væri á
götum úti tókst ekki að koma í veg
fyrir átökin, sem árum saman hafa
einkennt alþjóðadag verkalýðsins
þar í borg. Allir draumar stjórn-
málamanna og fjölmargra borgara
um friðsamleg hátíðahöld urðu að
engu.
Þúsundir.verkamanna tóku þátt í
hefðbundnum athöfnum 1. maí víða
um heim í gær, en auk þess lenti lög-
reglu saman við hópa fólks sem voru
að mótmæla alþjóðavæðingu og auð-
valdi í ýmsum borgum.
í London króaði lögreglan nokkur
hundruð mótmæiendur af á Oxford
Circus í hjarta borgarinnar, en lög-
reglan hugðist koma í veg fyrir að
herskár minnihluti efndi til uppþota
í tengslum við tíu þúsund manna
mótmælagöngu. Flöskum og spýtum
var kastað í lögregluna og tugir
manna voru handteknir.
í Sidney í Ástralíu lenti lögreglan
einnig í átökum við mótmælendur
og þurfti að flytja a.m.k. tvo lög-
regluþjóna á sjúkrahús.
Hátíðahöldin 1. maí gengu þó að
venju friðsamlega fyrir sig í Frakk-
landi, en þúsundir manna fóru þar út
á göturnar til þess að taka þátt í
þeim. Þar beindust mótmælin eink-
um gegn nýlegum uppsögnum fjölda
fólks.
í Tyrklandi tóku 20.000 manns
þátt í mótmælagöngu og þúsundir
manna hvöttu stjórnvöld til þess að
semja við vinstrisinnaða fanga sem
hafa verið í hungurverkfalli sem
kostað hefur tuttugu manns lífið.
í Rússlandi tóku hundruð þús-
unda þátt í mótmælagöngum, þar af
nærri 30.000 manns í Moskvu. Sá
fjöldi er þó ekki nema lítið brot mið-
að við þann aragrúa sem fyllti Rauða
torgið á tímum Sovétríkjanna. ■
STING Á TÓNLEIKUM f SVISS Á
MÁNUDAG
Að tónleikunum loknum flaug hann til Ital-
íu þar sem flugvélinni hlekktist á.
Söngvarinn Sting:
Slapp ómeiddur
úr flugslysi
flugslys Söngvarinn og tónlistarmað-
urinn Sting slapp ómeiddur þegar
einkaflugvél hans af gerðinni Cessna
Citation 5 fór út af flugbraut í lend-
ingu í Flórens á ftalíu á mánudaginn.
Söngvarinn var að koma úr tónleika-
ferð til Sviss þegar óhappið átti sér
stað. Svo virðist sem bremsur flug-
vélarinnar hafi verið í ólagi, því flug-
vélin lenti eðlilega en nam ekki stað-
ar fyrr en á grasflöt rétt við girðingu
umhverfis flugvöllinn. Alls voru
fimm manns um borð, en engan þeir-
ra sakaði. ■
—♦—
l.maí, Reykjavík:
Gáfu rósir og
grænmeti
grænmetismál. Félagsmenn í Sam-
bandi garðyrkjubænda settu svip
sinn á 1. maí-hátíðahöldin í gær með
því að gefa verkafólki rósir og græn-
meti á leið þess á Ingólfstorg. Með
því vildu þeir minna á hagsmuni sína
og fá „gott“ veður hjá launafólki.
Talsmenn garðyrkjubænda bentu
m.a. á að þeir fengu aðeins um 50
krónur af hverri rós sem seldi væri á
400-500 krónur í blómabúð. Talið er
að garðyrkjubændur hafi gefið nokk-
ur þúsund rósir og töluvert magn af
grænmeti í þessari aðgerð sinni í
gær. ■
Skilar af sér á næstu dögum
Endurskoðunarnefnd í málefnum öryrkja átti skila af sér fyrir hálfum mánuði
öryrkjar „Við munum skila þessu af
okkur alveg á næstunni", segir Ólaf-
ur Davíðsson, ráðuneytisstjóri í for-
sætisráðuneytinu, um starf nefndar á
vegum ráðuneytisins sem hefur unn-
ið að endurskoðun á málefnum ör-
yrkja. „Ég þori ekki að segja ná-
kvæmlega daginn en efnislega erum
við búnir að fjalla um þetta.“
Nokkuð hefur tafist að skila nið-
urstöðum hópsins sem átti upphaf-
lega að skila af sér fyrir hálfum mán-
uði síðan. „Það var talað um 15. apríl.
Síðan reyndist það nauðsynlegt fyrir
okkur að taka nokkra daga í viðbót
við þetta“, segir Ólafur en neitar því
að nokkuð óvænt hafi komið upp á.
Aðalástæðuna segir hann vera þá að
apríl hafi verið fremur ódrjúgur
mánuður til starfa og 15. apríl meðal
annars komið upp á páskum. „Þess
vegna reyndist nauðsynlegt að taka
nokkra daga í viðbót í þetta. Þetta er
spurning um að ljúka fráganginum.
Þetta er talsvert umfangsmikið verk
með miklu af útreikningum og svolít-
ið flókin framsetning." ■
ÓLAFUR DAVÍÐSSON
Frídagar í apríl seinkuðu
starfi nefndarinnar
STUTT
25.500 börn og unglingar undir 18
ára aldri eru með debetkort frá
bönkum og þremur stærstu spari-
sjóðum. Mismunandi kröfur eru
gerðar áður en kortin eru afhent.
Fimm af sex bönkum og sparisjóð-
um gera kröfu um samþykki for-
ráðamanns barna undir 16 ára aldri
og helmingur þegar umsækjandi er
16 eða 17 ára. SPRON veitir einn
möguleika á yfirdráttarheimild en
einungis til þeirra sem fá lán hjá
Lánasjóði íslenskra námsmanna.
—♦—
40 manns slösuðust þegar farþega-
lest á leið frá Nice til Feneyja
lenti í árekstri við þjónustuvagn ná-
lægt landamærum Ítalíu og Frakk-
lands í fyrrinótt. Um 150 manns
voru í farþegalestinni. Fjórir farþeg-
anna eru alvarlega slasaðir.
_