Fréttablaðið - 02.05.2001, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 2. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Lífeyrissjóður Norðurlands kaupir í IV:
íslensk verðbréf
í kröggum
] innlenFT
Ferðaskrifstofa BSÍ, Safariferðir og ís-
lands- og Skandinavíuferðir hafa sam-
einast í eina ferðaþjónustu undir heitinu
ísland DMC. Fyrirtækið mun leggja höf-
uðáherslu á þjónustu við erlenda ferða-
menn, sérferðir, hvataferðir og ráðstefn-
ur. Framkvæmdastjóri íslands DMC er
Knútur Óskarsson en starfandi stjórnar-
formaður er Halldór Bjarnason.
—♦—
Stjórn Stúdentaráðs fagnar því að sam-
komulag hafi náðst í kjaradeilu há-
skólakennara og ríkisins. „[Þjungu fargi
er létt af tæplega sjö þúsund háskólastúd-
entum sem nú geta þreytt próf sam-
kvæmt próftöflu," segir í ályktun. „Stúd-
entaráð hefur barist af fullum krafti fyrir
því að samkomulag náist. Sú barátta hef-
ur skilað árangri og þakkar ráðið stúdent-
um fyrir öflugan stuðning í baráttunni og
óskar þeim góðs gengis í prófunum.“
FjflRMÁLftMARKflÐOR. Fjármálaeftirlitið
bannaði kaup Lífeyrissjóðs Norður-
lands á 50% hlut í íslenskum verð-
bréfum í enda mars s.l. íslensk verð-
bréf voru rekin með 51 milljón króna
tapi á síðasta ári og fóru forsvars-
menn fyrirtækisins að leita leiða til að
styrkja rekstrargrundvöllinn. Spari-
sjóður Norðlendinga á meirihluta í fé-
laginu en aðrir sparisjóðir á lands-
byggðinni eiga um og yfir 10%.
Jón Björnsson, sparisjóðsstjóri
Norðlendinga, segir mikilvægt að
halda úti fjármálastarfsemi á Norðu-
landi. Hann segir Lífeyrissjóðinn geta
nýtt þá þekkingu sem býr í starfsfólki
ÍV til að efla eignastýringu.
„Þetta er liður í því að mynda hér
öflugt fjármálafyrirtæki fyrir norðan
með samstarfi þessara aðila,“ segir
Sveinn Torfi Pálsson, aðstoðarfram-
kvæmdarstjóri ÍV, um kaup Lífeyris-
sjóðs Norðurlands í fyrirtækinu.
Jón Björnsson segir að viðræður
LÍFEYRISSJÓÐUR NORÐURLANDS
Áætluð kaup lífeyrissjóðsins á 50% eignar-
hlut IÍV voru ekki heimi! samkvæmt lög-
um um lífeyrissjóði
hafi verið í gangi, verið sé að ganga
frá formsatriðum og niðurstaðan
verði kynnt á næstu dögum. Hann
vildi ekki greina frekar frá hver nið-
urstaða samningaviðræðanna er og
hve stór eignarhlutur Lífeyrissjóðs
Norðurlands verður. ■
Erlend próf ekki viður-
kennd vegna þröngsýni
Páll Pétursson félagsmálaráðherra telur að illu heilli fari fordómar í garð útlendinga vaxandi hér á landi.
Hann telur þó ekki fordómum um að kenna að faglærðir nýbúar fái ekki störf í samræmi við menntun.
nýbúar Fréttablaðið birti í síðustu
viku viðtöl við fjóra nýbúa sem ekki
hafa fengið störf við sitt hæfi hér á
landi þrátt fyrir mikla leit. Meðal
annars var rætt við tæknifræðing og
þroskaþjálfa en fremur hefur verið
skortur á mannafli í þeim greinum en
hitt undanfarin ár.
„Ég held að
þetta sé ekki af
fjandskap við
einstaklinga. Við
viljum halda
standard og
hafa sérfræð-
inga með sem
besta mennt-
Það er alvarlegt
mál ef íslenskt sam-
félag er ekki tilbúið
til að nýta menntun
og hæfileika fólks
sem hingað flytur
frá öðrum löndum
og var Páll Péturs-
son félagsmálaráð-
herra spurður hver-
ju hann teldi það
sæta að erlendu
fólki gengi illa að fá
— störf í samræmi vði
menntun sína.
Ráðherra sagði liggja ljóst fyrir
að próf hvaðanæfa að úr heiminum
væru ekki viðurkennd hér á landi.
„Fagstéttir passa upp á að ekki sé
verið að lækka standardinn í þeirra
greinum,11 segir Páll og bætir við að
iðnréttindi séu ekki einu sinni sam-
bærileg á EES svæðinu.
„Fólkið hefur væntaniega ekki
fengið viðurkennd próf sem það hef-
ur heiman að frá sér,“ segir Páll um
hugsanlega ástæðu þess að faglærðir
útlendingar fái ekki vinnu í starfs-
greinum sínum. í sumum tilvikum
gæti fólk einnig vantað skírteini upp
á þau próf sem það segist hafa að
mati Páls.
Páll var spurður hvort ekki þyrfti
að endurskoða afstöðu til þess hvern-
ig litið væri á erlend starfsréttindi
hér á landi. „Það er annarra ráðherra
að fjalla um það,“ segir hann og bend-
ir á að starfsréttindi heyri undir við-
komandi fagráðuneyti.
„Ég held að þetta sé ekki af fjand-
skap við einstaklinga. Við viljum
halda standard og hafa sérfræðinga
með sem besta menntun," segir Páll
og telur ekki að fordómum sé um að
kenna að fagmenntað fólk fái ekki
vinnu við sitt hæfi.
EKKI FJANDSKAPUR VIÐ EINSTAKLINGA
Páll Pétursson félagsmálaráðherra telur ástæð-
una fyrir því hversu erfiðlega mörgum nýbúum
gengur að fá störf við hæfi vera á að fagstéttir
gæti þess vel að standardinn i greínum þeirra
lækki ekki. „Fagstéttir passa upp á að ekki sé
verjð að lækka standardinn í þeirra greinum,"
se'gir Páll og bætir við að iðnréttindi séu ekki
einu sinni sambærileg á EES svæðinu.
„Mér finnst þó sem átt hafi sér
stað viðhorfsbreyting til hins verra á
síðustu mánuðum og menn líti með
meiri tortryggni til útlendinga nú en
fyrir nokkrum árum.“ Aðspurður um
hvers vegna hann haldi að þróunin sé
þessi svarar hann: „Þröngsýni og vit-
leysisgangur," og segist hafa illan
grun um að fordómar aukist með
vaxandi fjölda útlendinga hér á
landi.
steinunn@frettabladid.is
Helgi Hjörvar hjá Öryrkjabandalaginu:
Sambýlum fjölgar
öryrkjar Helgi Hjörvar, formaður
Hússjóðs Öryrkjabandalags íslands,
segir að segir að vel gangi að fylgja
eftir áformum félagsins um uppbygg-
ingu sambýla.
„Það er búið að hanna nýtt sambýli
á Barðastöðum í Grafary.pgi. þúið .er
að hanna og bjóða út sámbýli í Hólma-
sundi og unnið er að kaupum á þriðja
sambýlinu."
„Það var talað um að reisa 20 - 25
sambýli á fimm ára tímabili", segir
Helgi um samkomulag sem gert var
við félagsmálaráðuneyti um fjár-
mögnun byggingar og kaupa á hús-
næði fyrir sambýli sem eiga að full-
nægja þörf allra þeirra sem nú eru á
biðlistum. „Með þeim sambýlum sem
við kaupum komast tvö í gagnið í ár
og þgð er. byrjað að byggja tvö af
þeim stóru sambýlum sem eru á dag-
skrá. Svo eru eftir útfærslur á frek-
ari atriðum." Auk þeirra fram-
kvæmda sem Helgi greinir frá hér að
framan hefur bæijarráð Hafnarfjarð-
ar nýlega úthlutað Hússjóðnum ióð
HELGI HJÖRVAR FORMAÐUR
HÚSSJÓÐS ÖBÍ
Þörf á sambýlum verður mætt.
við Svöluás í Hafnarfirði þar sem
stefnt er að því að byggja sambýli
með sex íbúðum. ■
Njósnaflugvélin í Eana:
Bandarískir
sérfræðingar
komnir
beijinc. ap Hópur bandarískra sér-
fræðinga kom á þriðjudag til kín-
versku eyjunnar Hainan til þess að
skoða bandarísku njósnaflugvélina
sem þar er geymd, löskuð eftir
árekstur við kínverska flugvél.
Bandaríkjamennirnir ætla að fá botn
í það hvernig unnt væri að koma vél-
inni aftur til Bandaríkjanna, fáist til
þess leyfi kínverskra stjórnvalda. ■
Árni Johnsen alþingismaður
Ósk ráðherra
skoðuð
þincmál „Nei, nei. Hann segir okkur
ekkert. Hann biður nefndina að vinna
málið þannig að
skilja að ákveðna
þætti og það verður
tekið til skoðunar,"
sagði Árni Johnsen,
formaður sam-
göngunefndar Al-
þmgis, þegar hann
var spurður hvort
vegið væri að sjálf-
stæði nefndarinnar.
Sturla Böðvarsson
hefur lagt til að
nefndin felli úr
frumvarpi ákvæði
um fækkun sjómanna í áhöfnum
fiskiskipa.
Árni segir að hann hafi verið iát-
inn vita áður en ráðherra sagði frá
vilja sínum. ■
—-♦—
Grétar Mar Jónsson:
Ekkert tilboð
í mönnunar-
málum
sjómannaverkfall. Ekkert hefur þok-
ast í deilu sjómanna og útvegsmanna.
Vélstjórafélag íslands hafði frum-
kvæði að tilboði í mönnunarmálum
þar sem gert var
meðal annars ráð
fyrir að fjöldi sjó-
manna á skipi taki
mið að því sem hef-
ur verið síðustu ár,
en miði ekki við
eldri viðmiðanir.
Farmanna- og fiski-
mannasamband
grétar MAR taldi tilboðið þess
jónsson virði að skoða það -
Hann segir þe meg þv{ skilyrði
ekkert hafa gerst i að Sjómannasam-
síðustudaga bandið samþykkti
það einnig. Það varð
ekki og því var til-
boðið ekki lagt fram.
Grétar Mar Jónsson segir enga
hreyfingu vera á málinu og enginn
fundur sé boðaður. ■
Herbalife
Dermajestic-Colour
4ra ára
starfsreynsla
Visa - Euro
- Póstkrafa
Klara
Guðmundsdóttir
sjálfstæður dreifingaraðili
Sími 866-1132
Herbalife
Dermajestic Colour
3ja ára
starfsreynsla
Þekking
þjónusta
Edda Sigurjónsdóttir
Sjálfstæður
dreifingaraðili
sími 861-7513