Fréttablaðið - 02.05.2001, Blaðsíða 23
MIÐVIKUPAGUR 2. mai 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
23
Tilbúinn að eyða 15 milljónum dollara í kosningabaráttuna
Bloomberg borgarstjóri í New York?
new york Michael Rubens
Bloomberg, 59 ára auðjöfur, hefur
tilkynnt að hann hyggist taka þátt í
prófkjöri republikana í New York að
fimm mánuðum liðnum með það fyr-
ir augum að verða frambjóðandi
flokksins til kjörs borgarstjóra. Þar
á hann í höggi við Herman Badillo
fyrrverandi þingmanns í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings. Bloomberg
er sagður reiðubúinn að verja 15
milljón dollara af eigin fé í kosn-
ingabaráttuna.
Það heyrir til sögunni að
Bloomberg hefur verið demókrati
lengst af en skipti um flokk á síðasta
ári. Hann nam verkfræði i John
Hopkins háskólanum en útskrifaðist
frá Harvard viðskiptaháskólanum.
Ilann kom sér hjá þátttöku í Ví-
etnamstríðinu vegna þess að hann
var með plattfót. Hann vann hjá
verðbréfafynrtækinu Salomon
Brothers og gerðist meðeigandi í
því. Þegar Salamon Brothers sam-
einuðust Philbro Corp. árið 1981,
missti Bloomberg stöðu sína en fékk
10 milljón dollara skaðabótatékka,
sem hann notaði til þess að stofna
Bloomber L.P. Fyrirtæki hans er nú
einhver öflugasta upplýsingaþjón-
usta sem um getur á fjármálamörk-
uðum og er með 156.000 samninga
um allan heim Það er og í margvís-
legum tengslum við urmul fjölmiðla.
Starfsmenn þess eru um 7.500.
Bloomberg er harður húsbóndi sem
krefst langra vinnudaga af starfs-
fólki sínu en í höfuðstöðvunum í
Princeton, New Jersey, situr hann
meðal starfsmanna, þar sem einka-
skrifstofur og einkaritarar eru
bannaðir í fyrirtækinu.
Þau pólitísku markmið sem hann
hefur kynnt eru mjög keimlík
áhugamálum keppinautanna úr
Demókrataflokknum. Hann setur
endurbætur á skólakerfi borgarinn-
ar í forgang. Hann vill að borgarleg
nefnd rannsaki lögreglulið borgar-
innar og er á móti siðgæðisnefnd
Giulianis borgarstjóra sem á að hafa
eftirlit með list sem nýtur opinberra
styrkja. ■
NÝTT BORGARSTJÓRAEFNi I NEW YORK
„Ég hef dálæti á leikhúsi, góðum mat og eltingarleik við konur. Ég er ókvæntur, gagnkyn-
hneigður milljarðamæringur á Manhattan. Hvað heldurðu? Það er blautur draumur", sagði
Michael Bloomberg m.a. í viðtali við breska blaðið Guardian nýverið.
Fjölmenni var á fundi sjómanna í
Sjómannaskólanum og sam-
staða virtist mikil. Á máli manna
mátti heyra að
margir vilja að
sjómenn grípa til
aðgerða komi til
lagasetningar og
menn hreinlega
hundsi lög, verði
þau sett. Sam-
þykktar voru tvær
tillögur, önnur um
stuðning við samninganefndir sjó-
manna og hin um að sjómannasam-
tökin ráði sér blaðafulltrúa til að
reyna að jafna metin í fjölmiðla-
samkeppninni við útvegsmenn.
Einn fundarmanna hafði á orði að
ekki sé nema von að sjómenn eigi
erfitt uppdráttar og til að rök-
styðja sitt mál sagði ræðumaður-
inn eitthvað á þessa leið; við erum
í Reykjavfk, hér er Grandi, en
hvað er Grandi? Grandi er stærsti
hluthafinn í Haraldi Böðvarssyni, á
stóran hlut í ÚA, Hraðfrystihúsi
Eskifjarðar, Vinnslustöðinni í Eyj-
um og mest allt í Þorlákshöfn.
Hverjir eiga mest í Granda? Þeir
sömu og eiga hluta af olíufélögun-
um og Sjóvá-Almennum og Eim-
skip. Hver er stjórnarformaður
Eimskips og hver á Burðarás sem
hefur fjárfest mest í sjávarútvegi?
Hverjir eiga sölusamtökin? Við
erum alltaf að tala um sömu menn-
ina. Svo eru menn hissa á að við
séum undir í einstaka orrustum.
Afundi sjómanna í Reykjavík
vegna verkfallsins benti einn
fundarmanna á að íslenskir sjó-
menn hafi alltaf
fundið mikið til
þeim rússnesku og
þeim smánarlaun-
um sem þeir eru á.
Þessi fundarmað-
ur, sem er vél-
stjórr og beindi því
ekki síst orðum
sínum að Helga
Laxdal, formanni Vélstjórafélags
íslands, sagði Rússalaunin ekki
svo slæm borin saman við laun ís-
lenskra háseta. Rússarnir hafa um
1.000 dollara á mánuði sem er um
tíu þúsund króna hærri trygging
en íslenskir hásetar hafa og ef
dollarinn heldur áfram að styrkj-
ast er ekki langt að bíða þess að
rússneskir hásetar verði með
hærri laun en kauptrygging ís-
lenskra skipstjóra.
Guðjón Þórðarson, fram-
kvæmdastjóri Stoke City er nú
kominn með Stoke í sömu stöðu og
í fyrravor. Gangi
vel í leiknum á
móti Swindon
Town á heimavelli
á laugardag, þá er
framundan fjög-
urra liða útsláttar-
keppni um eitt
sæti í 1. deild. Og
nú er Guðjón hætt-
ur að skammast og byrjaður að
hrósa leikmönnum sínum og stuðn-
ingsmönnum í hástert. í fyrra
missti hann tvo leikmenn út af í
úrslitakeppninni á örlagastundu á
móti Gillingham og féll úr leik. En
Guðjón gerir ekki sömu mistök
tvisvar. Stoke kemst upp.
Erlendir fjárfestar hafa nú aðgang að www.bonds.is
Kynning á íslenskum
skuldabréfamarkaði
OPNUN Á BOND.IS
Geir H. Haarde fjármálaráðherra opnaði nýja vefinn um islensk efnahagsmál og fjár-
málamarkað við athöfn í Þingholti.
skuldabréf íslenskt efnahagslíf er
komið inn í ókyrra lendingu, en
horfur til næstu missera benda til
þess að staða krónunnar og þróun
verðbólgunnar muni verða hag-
stæðari en verið hefur að undan-
förnu. Ýmiskonar misgengi getur
þó ráðið því að lendingin dragist á
langinn og þess vegna þurfa fjár-
festar að sýna þolinmæði á næst-
unni. Glíman við verðbólguna gæti
orðið erfið á næstu mánuðum en
þegar litið er til næstu missera má
gera ráð fyrir að sjálfstæðari
Seðlabanki muni skila sér i meiri
áherslu á verðbólguhamlandi að-
gerðir. Það ætti að leiða til stöðugra
gengi krónunnar þegar fram í sæk-
ir.
Þetta er mat Jóns Óskars Sól-
ness, fyrrum fréttamanns á sjón-
varpinu, sem nú er einn af fjármála-
greinendum Kaupþings, á vefsetr-
inu bonds.is sem opnað var í 30. apr-
íl sl. Þar gefa greinendur frá öllum
íslensku bönkunum álit sitt á stöðu
íslensks efnahagslífs og þróun fjár-
málamarkaðarins. Tilgangurinn er
að vekja áhuga erlendra fjárfesta á
kaupum á íslenskum skuldabréfum
og er vefurinn því á ensku.
Á bak við vefinn standa stærstu
útgefendur ríkisverðbréfa og öll
fjármálafyrirtæki sem eru viður-
kenndir viðskiptavakar á ríkis-
skuldabréfamarkaði svo og Verð-
bréfaþing íslands. Erlendir fjárfest-
ar hafa ekki verið virkir á íslensk-
um verðbréfamarkaði til þessa þó
áhugi þeirra hafi verið að aukast
hratt upp á síðkastið. Ein af forsend-
unum fyrir aukinni þátttöku er að
upplýsingar af markaðnum séu er-
lendum fjárfestum jafnaðgengileg-
ar og innlendum fjárfestum. Að baki
www.bonds.is, sem er hluti af stær-
ra samstarfsverkefni, standa Lána-
sýsla ríkisins, íbúðalánasjóður, Bún-
aðarbanki íslands, Landsbanki fs-
lands, Íslandsbanki-FBA, Kaupþing,
Sparisjóðabankinn og Verðbréfa-
þing fslands. ■
Rektorskipan:
Kennarar MR
styðjaYngva
stöðuveiting Kennarar í Menntaskól-
anum í Reykjavík (MR) lýsa ein-
dregnum stuðningi við umsókn
Yngva Péturssonar um stöðu rektors
við skólann. Yngvi er konrektor MR
og auk hans sækir konrektorinn í
Menntaskólanum við Sund (MS) ein-
nig um rektorsstöðuna.
Ályktun um stuðning við Yngva
var samþykkt á almennum fundi Fé-
lags kennara við MR og send skóla-
nefnd. ■
—♦—
Iðnnemar
Fögnuðu 1. maí
í Laugardal
iðnnemar Iðnnemasamband íslands
og fleiri stóðu fyrir sérstökum fjöl-
skyldudegi í Laugardalnum í gær, 1.
maí með tilheyrandi skemmtiatriðum
og ræðum.Tilgangurinn með því var
að reyna að rífa upp þátttöku ungs
fólks í verkalýðshreyfingunni og
glæða áhuga þess á gildi stéttarfé-
laga. Meðal annars var efnt til Lands-
móts iðnnema í Laugardalnum þar
sem keppt var í ýmsum iðngreinum.
Ekki er útilokað að þessi tilraun verði
til þess að iðnnemar taki þátt í
Ólympíuleikjum iðnnema sem er ár-
leg keppni erlendis. ■
/ u / 1 ITSAI FU LLUM LAN GANGI
h^hhhhhhhhhhhhhhhhh
HÚSGÖGN Á ÆVINTÝRALEGU VERÐI.
10% afsláttur gegti staðgreiðslu
af þeim vörum sem ekki eru
á útsölunni.
I , M2
| SYNINGARSALUR
mán. - fös. 10:00 - 18:00 • laugard. 11:00 - 16:00 • sunnud. 13:00 -16:00
TM - HUSGOGN
SíSumúla 30 -Sími 568 6822
- œvintýri líkust