Fréttablaðið - 02.05.2001, Blaðsíða 8
8
FRÉTTABLAÐiÐ
2. maí 2001 MIÐVIKUUDAGUR
FRETTABL\ÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Þverholti 9, 105 Reykjavík
Aðalslmi: 515 75 00
Slm'bréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjóm@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: IP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Vísir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta alft efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
BRÉF |
SiÓMENN ÓÆSKILEGIR
Samtök atvinnulífsins minna á að ekki er
heimilt að ráða í vinnu sjómenn sem eru I
verkfalli.
Ekki ráða sjómenn
Samtök atvinnulífsins sendu frá sér
bréf 26. april sl. sem birtist hér lítið
eitt stytt:
verkföll Samtök atvinnulífsins hafa
beint þeim eindregnu tilmælum til
aðildarfyrirtækja að ráða ekki verk-
fallsmenn til starfa, en samkvæmt
samþykktum SA er félagsmönnum
óheimilt að ráða til sin launþega sem
eru í verkfalli eða verkbanni. Þá eru
þeir sem kunna að hafa ráðið verk-
fallsmenn til vinnu vegna ókunnug-
leika um kjaradeiluna vinsamlegast
beðnir að láta þá hætta störfum.
Samkvæmt 47. gr. samþykkta SA
um vinnustöðvanir er félagsmönnum
óheimilt að ráða til sín launþega sem
eru í verkfalli eða verkbanni. Fregn-
ir hafa borist af því að sjómenn sem
eru í verkfalli hafi ráðið sig til ann-
arra starfa og hafi þannig getað aflað
sér tekna í verkfallinu á sama tíma
og útgerðirnar eru tekjulausar vegna
verkfallsins. Samtök atvinnulífsins
beina þeim eindregnu tilmælum til
aðildarfyrirtækja sinna að ráða ekki
verkfallsmenn til starfa og virða þan-
nig í hvívetna 47. gr. samþykkta SA.
Yfirstandandi vinnustöðvun
(verkfall og verkbann) á fiskiskipum
nær til áhafna fiskiskipa sem eru 12
rúmlestir og stærri.
Verkfall og verkbann nær til eftir-
talinna stöðuheita: Skipstjóri, stýri-
maður, vélstjóri, vélavörður, mat-
sveinn, bátsmaður, netamaður,
Baader maður og háseti.
Komi upp vafaatriði um það hvort
starfsmaður sem hefur verið ráðinn
eftir að verkfallið hófst 15. mars 2001
sé í verkfalli er hægt að ganga úr
skugga um það hjá Landsssambandi
íslenskra útvegsmanna eða Samtök-
um atvinnulífins. ■
Ekkert uppnám vegna sjómannaverkfalls
Það er sérkennilegt að ganga um
Reykjavíkurhöfn í góða veðrinu. Þar
baka sig í sólinni hátt á þriðja tug
togskipa, hvert öðru litfegurra en
með ryðgaða skutrennu. Sjómenn og
dáðadrengir sjást hvergi, enda komn-
ir í önnur störf eða hvíla sig með fjöl-
skyldum sínum heima og á sólar-
strönd. Nokkrir iðn-
aðarmenn eru að
„Sjómannaverk- dytta að skipunum,
fall hefur staðið en annars er allt
samfleytt frá kyrrt í kringum
páskum og það Þau-
líða dagar án Sjómannaverk-
þess að minnst hefur staðið
sé á það í fjöl- samfleytt frá pásk-
miðlum." um °g Það líða dag-
ar án þess að minnst
—^— sé á það j fjölmiðl-
um, enda þokaðist lengi vel lítið í átt
til samkomulags. Öðru vísu mér áður
brá. Þegar loðnu- eða togaraflotinn
sigldu í höfn hér áður fyrr varð allt
vitlaust í þjóðfélaginu. Blöðin voru
með stríðsfyrirsagnir á hverjum degi
og forystumenn sjómanna og útvegs-
manna „grétu“ í hverjum fréttatíma
útvarps og sjónvarps. Það var sífellt
verið að reikna út hve mikil verð-
mæti færu forgörðum og hve hrapa-
lega þjóðarbúið yrði leikið ef veiðar
stöðvuðust í langan tíma. Og þing-
menn hlupu til og settu lög á deilurn-
ar. Það hrikti í þjóðarskútunni frá
reiða og niður í kjöl.
Nú er sjómannaverkfalli tekið
með jafnaðargeði. Ég hef t.d. ekki
enn séð hvað hver verkfallsdagur
kostar þjóðarbúið eða hve mikil verð-
...MáLmamia
EINAR KARL HARALDSSON
veltir fyrir sér logninu
kringum sjómannaverkfall
mæti eru þegar farin í súginn.
Margt getur skýrt þetta tómlæti.
Með því að sækja stífar er hægt að
fylla upp í þorskkvótann á fiskveiði-
árinu þótt stopp verði í nokkrar vik-
ur. Og það má vera að annar stíll sé í
viðræðum sjómanna og útvegsmanna
en áður. En mestu ræður þó eflaust
að efnahagslífið er orðið margbreytt-
ara en fyrrum og þjóðlífið ekki bara
saltfiskur. Menn með mikla yfirsýn
eins og Kristján Ragnarsson og Guð-
jón A. Kristjánsson muna tímana
tvenna og eru sammála um að nú
fyrst sé að koma verulegur þrýsting-
ur á lausn sjómannaverkfallins.l
FLOTINN I HÖFN
Skuttogararnir liggja svo tugum skiptir aðgerðarlausir I Reykjavíkurhöfn og fólkið I landinu lætur sér fátt um finnast. Hvenær komast Baldvin Þorsteinsson,
Gissur og Helganesið, og hvað þeir nú heita togarnir, á sjó?
Við erum upptekin við þjónustuna
Hlutdeild sjávarútvegsins í efnahagsheildinni hefur minnkað hratt
þjónustuhackerfio Á árinu 2000 komst
framlag þjónustu (á vegum einkaað-
ila og hins opinbera) til landsfram-
leiðslunnar upp í 62.4% borið saman
við 52% árið 1980. Iðnaður (án fisk-
vinnslu) hafði þá 25.5% hlutdeild,
0.5% meira en 1980. Sjávarútvegur
hefur dregist saman (veiðar og
vinnsla) og var skerfur hans til
landsframleiðslunnar 10.2% árið
2000, borið saman við 17% árið 1980.
Þessi þróun skýrist af því að lands-
framleiðslan hefur vaxið örar síðan
1980 en aflaverðmæti úr sjó, þar sem
fiskistofnar eru fullnýttir og ríflega
það. Landbúnaður hefur líka skropp-
ið saman: hlutdeild hans er komin
niður í 1.8% en var 5% 1980. Hlut-
deild gömlu forgangsatvinnuveg-
anna til sjós og lands í mannafla og
landsframleiðslu hefur því á innan
ÞiÓN USTUHAGKERFIÐ
1980 2000
1980 2000
81 Þjónusta 52,0% 62.5%
□ Iðnaður 25,0% 25.5%
□ Sjávarútvegur 17,0% 10,2%
□ Landbúnaður 5,0% 1,8%
við 20 árum minnkað úr 22% niður í
12%.
Ef málið er tekið frá annarri hlið
þá stefnir hlutdeild sjávarútvegsins í
útflutningsverðmætum niður í 40% á
þessu ári samkvæmt spá Þjóðhags-
stofnunar en var 60% fyrir tuttugu
árum. Á árinu 2000 var hlutdeildin
44,6%. Og svo hefur sjómönnum
fækkað á síðasta áratug um 2000.
Engum blöðum er um það að fletta
að sjávarútvegur og útvegsklasinn
(með afleiddum hátækniiðnaði) verð-
ur áfram mikilvægur atvinnuvegur á
íslandi, og seint mun koma hér upp
ástand þar sem landbúnaðar og sjáv-
arútvegur vega samanlagt ekki
meira en 2-3% í landsframleiðslu
eins og víðast er í 24 ríkjum OECD.
En fólk hefur um annað að hugsa en
útveginn, og fréttir vikunnar voru af
íslenskri erfðagreiningu og árangri
Össurar í útlöndum og 2 milljarða
rannsóknarsamningi Hjartaverndar.
Það sýnir að mannauðurinn, sem er
undirstaða þjónustu og hátækniðnað-
1 SPENNUFALL [
Spennufall
Frestun verkfalls.
Mok vertíðarbáta á þorski.
Kvótakerfið.
Góður afli smábáta.
Engar timabundnar veiðar
Þrýstingur
Tímabundnar veiðar:
Úthafskarfi I maí og júní.
Norsk-íslenska síldin I maí og júní.
Afkomutap útgerða og sjómanna.
Útflutningsstopp.
Gengisórói.
ar á framtíðina fyrir sér og honum
eru engin þau takmörk sett sem nátt-
úrulegar auðlindir setja okkur.
einarkarl@frettabladid.is
AÐALFUNDUR 2001
Aðalfundur Félags rafeindavirkja 2001
verður haldinn að Stórhöfða 31 1. hæð,
(gengið inn að norðanverðu)
fimmtudaginn 3. maí n.k. kl. 18:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórn Félags rafeindavirkja
TVÆR HLIÐAR |
r
Obærilegt ástand
sjómannaverkfall „Við þurfum tíma til þess
að taka þessi 33 þúsund tonn sem við meg-
um veiða úr djúpsjávarkarfanum í lokaða
hólfinu út af Reykjaneshrygg. Þess vegna
má verkfall ekki dragast mikið úr þessu án
þess að mikil verðmæti fari í súginn," seg-
ir Kristján Ragnarsson formaður Lands-
sambands íslenskra útvegsmanna. Hið
sama má segja um síldveiðar sem fara að
hefjast. Sjávarútvegur skiptir enn gríðar-
legu máli fyrir þjóðarbúið. „Mér er til
dæmis tjáð að gengislækkunina að undan-
förnu megi að verulegu leyti rekja til þess
að nú er ekkert flutt út af sjávarafurðum,
en einungis fluttar inn vörur af öllu tagi.
En kvótinn skapar meiri ró en áður: „Nú
geta menn tekið sinn aflakvóta síðar á ár-
inu og einnig er heimilt að flytja 20% á milli ára.- Það er ekki
eins mikill hamagangur í þessu og var fyrir daga kvótakerf-
isins. En þetta er þó óbærilegt ástand." ■
KRISTJÁN
RAGNARSSON,
FORMAÐUR LÍÚ
Kvótakerfið róar
umræður um
sjómannaverkfall
en nú eru að
hefjast veiðar
sem eru takmark-
aðar við tíma.
Nú kemur þrýstingur
sjómannaverkfall „Með frestun verkfalls-
ins var hægt að klára loðnuvertíðina eft-
ir föngum og vertíðarbátarnir mokuðu
upp fiski“, sagði Guðjón A. Kristjánsson
alþingismaður. „ Sjómenn voru fegnir að
komast í frí eftir lætin og hvorugum
deiluaðilanna lá á að semja um og eftir
páska. „Smábátaflotinn hefur á góðviðr-
isdögum farið langt með að anna eftir-
spurn -á fiskmörkuðum svo almenningur
hefur ekki fundið fyrir verkfallinu. En nú
eru framundan tímabundnar veiðar. Þá
fer þrýstingur að aukast. í raun eru það
stórútgerðirnar sem öllu ráða innan LÍÚ
og það er fyrst þegar verkfallið fer að
koma við hagsmuni þeirra að þrýstingur
verður á að semja.“ Guðjón telur það í
sjálfu sér ánægjulegt að það séu fleiri út-
vegir á íslandi heldur en sjávarútvegur, og heldur að
kvótakerfið hafi einnig sitt að segja um tómlætið. ■
GUÐJÓN A.
KRISTJÁNSSON
ÞINGMAÐUR
Það hefur eng-
inn þrýstingur
verið á lausn.