Fréttablaðið - 02.05.2001, Page 18
FRÉTTABLAÐIÐ
2. maí 2001 ÍVIIÐVIKUDACUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Magnús Þór Gylfason
Framkvæmdastjóri SUS
Ég mæli með að menn finni sér reglulega
tækifæri til að gera sér glaðan dag og
bregða út af vananum. Til dæmis með þvf að
sækja listviðburði og flagga íslenska þjóð-
fánanum á hátíðisdögum.
Fyrirlestur um
japanskt handverk
Helgiathafnir
sem tengjast
smíðum
fyrislestub Arkitektinn Michael And-
erson, sern er sérfræöingur í
japönskum arkitektúr og smíðaað-
ferðum, verður með fyrirlestur og
sýnikennslu á vegum umhverfis- og
byggingarverkfræðiskorar Háskóla
íslands, í kvöld kl. 16, í húsi verk-
fræðideildar Hjarðarhaga 2-6, í stofu
158.
Michael Anderson lærði sjálfur
hjá frægum japönskum trésmíða-
meistara og hefur rekið arkitekta-
stofu í Osaka. Hann hefur einnig
starfað víða um lönd og verið kennari
við Berkeley- og Cambridge háskóla.
Michael mun lýsa hefðum og helgiat-
höfnum sem smíðunum tengjast og
loks verður sýning á verkfærunum
og sýnt hvernig þau eru notuð. Ef
áhugi væri á að stuðla að byggingu
japansks tréhúss á íslandi, væri gott
að taka það til umræðu í lok fyrirlest-
ursins.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Fundarstjóri er 'frausti Valsson, arki-
tekt og skipulagsfræðingur. ■
Breakbeat.is á Gafé 22
Allt það
nýjasta í
drum & bass
tónlist Stöðugustu klúbbakvöld
Reykjavíkur eru Breakbeat.is-kvöld-
in sem haldin eru á Café 22. Fyrsta
miðvikudagskvöld hvers mánaðar er
hægt að ganga að nýjustu og fersk-
ustu jungle; drum & bass og break-
beat tónunum vísum á staðnum og í
kvöld er engin undantekning. Þá mun
Breakbeat.is hópurinn snúa skífum
ásamt sérstökum gestum.
Á efri hæðinni leika þeir plötu-
snúðarnir Addi, Eldar og Reynir
ásamt MC Sezar A. Gestaleikari
verður dj. Óskar. Á neðri hæðinni
leika dj. Kristinn og Gauti „tjill og
grúv“ tónlist.
Aðgangseyrir er 300 krónur fyrir
23 en 500 krónur eftir það. Kvöldið
hefst klukkan 21 og er 18 ára aldurs-
takmark. ■
Listasafn Reykjavíkur:
Húmoristi
hversdagsins
sýninc Bandaríkjamaðurinn John
Baldessari er eitt af stóru nöfnunum
í samtímalistasögunni, og af þeirri
ástæðu einni er full ástæða til þess að
skoða sýningu hans í Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Yfir-
skrift sýningarinnar er: „Á meðan
eitthvað er að gerast hér, er eitthvað
annað aö gerast þar“. Baldessari hef-
ur verið nefndur ljóðskáld hinnar öf-
ugsnúnu fagurfræði og húmoristi
hversdagsleikans.
Sýningin er opin til kl. 19 í kvöld,
en hún stendur til 17. júní.
18
Myndasýning í Nanoq
Göngu- og
trukkaferðir
í 83 löndum
mynpasýninc Myndasýning verður
haldin í versluninni Nanoq í Kringl-
unni í kvöld kl. 20.30. Þar verða
kynntar ferðir á vegum Exodus sem
er stærsta ævintýraskrifstofa í heimi
en þessi myndasýning er sú stærsta
sem Nanoq hefur staðið fyrir hingac
til. Kynnir á myndasýningunni verð-
ur Paul Goldstein en hann er þekktur
fararstjóri og atvinnuljósmyndari.
Ævintýraferðaskrifstofan Exodus
er þekktu'st fyrir göngu-, skoðunar-
og trukkaferðir í 83 löndum, auk ann-
arra ferða í öllum álfum heims. ■
MIDVIKUDACURINN
2. MAÍ
FUNDUR______________________________
16.15 María B. Steinarsdóttir heldur
fyrirlestur í dag um 4. árs-verkefni
sitt: Líffræðí ættkvíslarinnar
Harpacticus (Copepoda; Harpact-
icoida) í flotþangi og mikiivægi
hennar sem fæðu hrognkelsa-
seiða (Cydopterus lumpus) Fyrir-
lesturinn verður haldinn í stofu C-
6 að Grensásvegi 12.
TÓNLIST_____________________________
20.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir leikur
í kvöld á Gauki á Stöng. Hljóm-
sveitin Dúndurfréttir mun hrista
fram hvern slagarann á fætur öðr-
um. Ekki missa af því.
21.00 Jungle, breakbeat og drum & bass
tónar og víbrar verða í aðalhlut-
verki á Café 22 f kvöld. Tilefnið er
að hið mánaðarlega BreakbeaLis
kvöld. Plötusnúðar Breakbeatis
eru; Dj. Addi og dj. Eldar (Skýj-
um ofar) og dj. Reynir (Tækni/El-
ectronica). Auk þeirra munu svo
dj. Óskar og MC Sezar A snúa
skífum. Dj. Kristinn og dj. Ingvi
verða með „tjill" og „grúv" á neðri
hæðinni. Aðgangseyrir á Break-
beatis er 300 krónur (500 krónur
eftir 23) og aldurstakmarkið mið-
ast við 18 ár.
22.00 Dj Tommi White og félagar hans
halda uppi grúvaðri djúp hús
stemmningu á Café Ozio á mið-
vikudagskvöldum. Enginn að-
gangseyrir.
LEIKLIST____________________________
10.00 Möguleikhúsið er á ferð um
landið með Lómu. I dag verður
hún á Sæluviku í Skagafirðinúm
og sýnir þar leikrið Mér er alveg
sama þótt einhver sé að hlæja
að mér.
20.00 Nemendaleikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið sýna í kvöld
Platanof eftir Anton Tsjekhov.
Miðaverð 700 kr.
20.00 i Þjóðleikhúsinu er sýning á leik-
ritinu Laufin í Toscana eftir Lars
Norén. Leikritið fjallar í stuttu máli
um skandinavíska stórfjölskyldu
sem kemur árlega saman á Ítalíu
til að treysta böndin, en smám
saman áttar hún sig á því að
heimurinn er að breytast. Meðal
leikenda eru Erlingur Gíslason og
Valdimar Flygering. Leikstjóri er
Viðar Eggertsson.
20.00 í anddyri Borgarleikhússins í kvöld
fjallar Hrafnhildur Hagalín Guð-
mundsdóttir um Dag vonar eftir
Birgi Sigurðsson.
20.00 Með fulla vasa af grjóti eftir
Marie Jones verður sýnt í kvöld í
Þjóðleikhúsinu. Leikritið fjallar á
gamansaman hátt um samskipti
írskra statista við framleiðendur
Waldoifskólinn
Listrænt og
verklegt nám
lagt að jöfnu
sýning Waldorfleikskólinn Ylur og
Waldorfskólinn Lækjarbotnum fagna
10 ára starfsafmæli um þessar mund-
ir. Af því tilefni er kynning á starf-
semi skólanna í Borgarbókasafni
Reykjavíkur, Tryggvagötu 15, til 6.
maí. Skólarnir starfa út frá hug-
myndum Rudolf Steiners þar sem
listrænt, verklegt og bóklegt nám er
lagt að jöfnu.
BÖRN AÐ LEIK
Ein myndanna sem sjá
má á sýningunni.
Hrafnhildur Hagalín Guðmundsdóttir fjallar um leikrit aldarinnar:
„Hafði mikil áhrif á mig“
leiklist Borgarleikhúsið hefur í vet-
ur fengið valinkunna rithöfunda til
þess að velja sér leikrit til að fjalla
um. í kvöld er komin röðin að
Hrafnhildi Hagalín Guðmundsdótt-
ur, sem ætlar að fjalla um Dag von-
ar eftir Birgi Sigurðsson.
Leikfélag' Reykjavíkur frum-
sýndi Dag vonar í Iðnó 11. janúar
1987, á 90 ára afmæli Leikfélags
Reykjavíkur. Leikstjóri var Stefán
Baldursson og leikarar voru Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Þröstur
Leó Gunnarsson, Valdimar Örn
Flygenring, Guðrún S. Gísladóttir,
Sigríður Hagalín og Sigurður
Karlsson.
„Auðvitað er erfitt að tína eitt
leikrit út og segja að það sé besta
leikrit aldarinnar," segir Hrafnhild-
ur. „En þegar ég sá að það mætti
líka vera leikrit sem hefði haft mik-
il áhrif á mig sem höfund, þá kom
bara eitt verk upp í hugann.“
- Hafði þetta verk mikil áhrif á
þig?
„Á sínum tíma, já. Þetta er frá-
bært verk, mjög vel skrifað, og sýn-
ingin í Iðnó var líka virkilega fín.
Þetta var áður en ég byrjaði skrifa
og það hafði mjög mótandi áhrif á
mig,“ segir hún. „Ég las það aftur
núna. Auðvitað er hefðbundið form
á því og maður er kominn sjálfur út
í aðrar pælingar. En mér finnst
verkið samt ekkert hafa fölnað. Það
er svo óvenjulegt að sjá íslenskt
leikrit þar sem höfundurinn leggur
svona mikið undir. Hann er mjög
einlægur í þessu verki."
Uppákoman hefst kl. 20 og verð-
ur í forsal Borgarleikhússins. ■
ÚR UPPFÆRSLU LEIKFÉLAGS REYKJAVÍKUR Á DEGI VONAR
Valdimar Örn Flygering og Sigríður Hagalín í hlutverkum sínum.
og leikara stórrar Hollywood-
myndar. Leikarar eru aðeins tveir:
Stefán Karl Stefánsson og Hilm-
ir Snær Guðnason.
MYNPUST__________________________
Höskuldur Skagfjörð hefur opnað
myndlistarsýningu í Ráðhúsi Reykjavík-
ur. Höskuldur er sjálfmenntaður lista-
maðar og málar aðallega akrýl- og
pastelmyndir. Sýningin stendur til 2.
maí.
Jón Gunnarsson, listmálari, hefur opn-
að sýningu á olíu- og vatnslitamyndum f
Hafnarborg í Hafnarfirði. Jón er þekktur
fyrir sjávarmyndir sinar þar sem hann
sýnir störf við fiskveiðar og -vinnslu. Á
undanförnum árum hefur Jón ( auknum
mæli sótt efnivið sinn í íslenskt landslag,
ekki sist í uppland Hafnarfjarðar. Sýning-
in er opin milli kl. 11 og 17 alla daga
nema þriðjudaga og lýkur 14. maí nk.
Jean Posocco sýnír í Sverrissal, Hafnar-
borg. Yfirskrift sýningarinnar er Stemmn-
ing eða „Ambiance". Á sýningunni eru
vatnslitamyndir, flestar unnar á þessu
ári. Posocco stundaði nám í Myndlista-
| MÁLVERKASÝNING
Hugrekki til að
Eftir að hafa séð Odd Nedrum í
Silfri Egils vissi ég að ég
þyrfti að sjá sýningu hans á Kjar-
valsstöðum. Þetta var maðurinn
sem bað gagnrýnendur sína afsök-
unar á því að hafa kallað sig lista-
mann! Hann hefur lýst listsköpun
sinni sem skítnum í baðkerinu eft-
ir að listamenn fóru að þrífa af
sér allt það óþægilega og tendra
verk sín fallegri ásýnd modernis-
mans, sem Odd fyrirleit.
Odd er greinilega hugsjóna-
maður. Hann heldur uppi hugsjón-
um manna til að geta hlaupið aftur
til einhvers sem var. Hvort sem
það er ríkisvaldið, listagagn-
; rýnendur eða sýningastjórar, þá
Kjarvalstaðir: opið fimmtd.-þriðjud. 10-17
Sýningin stendur til 27. maí
Aðgangseyrir: kr. 400 fullorðnir.
var allt til fyrir þeirra tíma - þeir
skipta engu máli og hafa tilhneig-
ingu til að kæfa það sem satt er.
Ríkið kæfir tjáninguna, gagn-
rýnendur frumleikann og sýninga-
stjórar djarfleikann.
Björgvin Guðmundsson
Verkín eru laus við upphafn-
íngu uppskafninga; foringja
herja eða stjórnmálaflokka.
Ínmhmmhwm
Þjóðarbókhlaða:
Sýning á útsaumuð-
um smámyndum
sýning Sýningin Myndir úr
Maríu sögu eftir Elsu E.
Guðjónsson er haldin í
Þjóðarbókhlöðu. Á sýning-
unni eru átján útsaumaðar
smámyndir ásamt frum-
sömdum vísum sem skír-
skota til sögu hinnar helgu
meyjar eins og hún er sögð
í Maríu sögu, íslenskri
helgisögu frá 13. öld. Þá er á sýning-
unni veggteppi með sömu myndum.
Myndirnar eru allar unnar í
stramma eftir reitarmunstrum,
ísaumsbandið er íslenskt kambgarn
og saumgerðin gamli krosssaumur-
inn sem tíðkaðist hér á
landi undir lok miðalda og
fram á 19. öld.
Elsa E. Guðjónsson lauk
BA-prófi í textíl- og bún-
ingafræðum og list- og
listasögu frá Washington
háskóla í Seattle í Banda-
ríkjunum 1945 og MA-prófi
í sömu aðalgreinum ásamt
miðaldarsögu frá sama háskóla 1961.
Elsa starfaði sem sérfræðingur og
síðar deildarstjóri Textíl- og búninga-
deildar Þjóðminjasafns íslands í rúm
þrjátíu ár þar til hún fór á eftirlaun
1994. ■
) l ¥i wfi!