Fréttablaðið - 11.05.2001, Page 4
4
FRETTABLAÐIÐ
11. maí 2001 FÖSTUDAGUR
SVONA ERUM VID
ÚTSENDINGARTÍMI ÚTVARPS OG
SJÓNVARPS Fjölmiðlaneysla eykst og
breytist og mikill vöxtur er I framboði á út-
sendu útvarps- og sjónvarpsefni. Hér má
sjá útsendingartlma útvarps og sjónvarps I
HEIMILD: HACSTOFA ISLANDS
Þróunarríki:
Geðsjúkdóm-
ar á hakanum
washington. ap. Þróunarríki þurfa að
taka sig á í meðferð á sjúkdómum
sem tengjast heilanum og viðurkenn-
ingu á þeim er niðurstaða skýrslu
Læknisfræðistofnunar Bandaríkj-
anna. 250 milljón manns í þróunar-
ríkjum líða af slíkum sjúkdómum
sem taka til alls frá geðrænum
vandamálum til flogaveiki. Efna þarf
til heimsátaks til að taka á vandanum
segir stofnunin og bendir á að heil-
brigðisáætlanir í þróunarríkjum hafa
lagt litla áherslu að þessa sjúkdóma
hingað til. Þetta kemur illa niður á
fórnarlömbunum sem mörg þjást af
sjúkdómum sem eru til lyf við. ■
f KAPPHLAUPI
Á Tobago er hefð fyrir veðhlaupi geita sem
haldið hefur verið síðan 1925.
Fornmenn:
Geitur í
uppáhaldi
genarannsóknir Nýjar rannsóknir
benda til þess að fyrir 10.000 árum
hafi geitur verið það húsdýr sem
menn stóluðu á. Menn ferðuðust þá
um með geitur sem gáfu af sér mjólk
auk þess sem þær nýttust í vöruvið-
skiptum. Þannig lögðu geiturnar for-
feðrum okkar lið við að sigrast á nýj-
um landssvæðum og við þróun versl-
unar. Gen í geitum nútímans bera
sögunni vitni en vísindamenn hafa
komist að því að genasaga geita er
öðruvísi en annarra húsdýra eins og
kúa og kinda. Genagreining á 400
geitum frá 44 löndum um heim allan j
sýnir að geitastofninn er blandaðri j
en stofnar annarra dýra sem þykir
renna stoðum undir þá kenningu að
bændur til forna hafi ferðast með
geitur um heim allan. ■
Rússland:
Sambandslaust
við geiminn
moskva. ap. Rússland missti í gær-
morgun samband við fjóra gervi-
hnetti sína vegna eldsvoða í einni af
stjórnstöðvum hersins í Kaluga-hér-
aðinu suður af Moskvu. Talið er að
skammhlaup í rafkerfi stöðvarinnar
hafi valdið eldinum sem breiddist
fljótt út. Einn af yfirmönnum her-
mála í landinu, Anatoly Perminov,
sagði að öllum leynilegum skjölum
hafi "verið bjargað og bjóst hann við
að reynt yrði að ná sambandi við
gervihnettina innan skamms.
Atburðurinn varpar enn á ný fram
spurningum um ástand tækjabúnað-
ar sem snýr að geimáætlun Rússa, en
mikil fjárþurrð er talin hamla nauð-
synlegri endurnýjun. Sérfræðingur í
hermálefnum Rússlands sagði í sam-
tali við Reuters að líklega væri um
70% af 100-130 gervihnöttum þeirra
að verða of gamlir. Ýmsir sérfræð-
ingar óttast að endurteknar bilanir
og slys kunni að hafa alvarlegar af-
leiðingar í framtíðinni. Rússneskir
embættismenn hafa vísað slíkum
áhyggjum á bug. Hinir gömlu gervi-
hnettir muni til dæmis ekki taka upp
GEIMSTÖÐ
Eldsvoði einni af gerfihnattastjómstöðum
Rússa varparfram spurningum um al-
mennt ástand tækjabúnaðar.
á því að gefa rangar upplýsingar um
eldflaugaárásir. ■
ISAFJÖRÐUR
Mörgum kann að þykja að landsbyggðin standi nógu höllum fæti þótt borgaryfirvöld séu ekki að reyna að lokka fólk suður.
„Enginn bróðir
í viðskiptum“
Skólamenn kynnast samkeppni um vinnuafl. Hörð barátta skóla- og fræðsluyfirvalda
um kennara. Borgin reynir að lokka kennara frá landsbyggð. Isfirðingum sárnar.
grunnskólinn Mikil og hörð sam-
keppni er á milli skóla- og fræðslu-
yfirvalda um kennara fyrir næsta
skólaár. í þeim efnum reyna menn
að gylla sína staði eins og frekast
er. Það fór því heldur betur fyrir
brjóstið á Kristni Breiðfjörð skóla-
stjóra grunnskólans í ísafjarðarbæ
þegar Gerður Óskarsdóttir
fræðslustjóri Reykjavíkur sendi
fastráðnum kennurum skólans
bækling Fræðslumiðstöðvar undir
yfirskriftinni: „Veldu kennslu,
veldu Reykjavík". Kristinn segist
strax hafa hafl samband við Gerði
og kvartað harðlega yfir þessari
sendingu. Hann segir að hún hefði
svarað að það „væri enginn bróðir í
viðskiptum." Þar vestra vantar 7-8
kennara en hátt í 300 í borginni.
Skólastjórinn segir að sér og
fleirum þar vestra hefði sárnað
þessi skilaboð frá fræðsluyfirvöld-
um í borginni. Sérstaklega með til-
liti til íbúaþróunarinnar á lands-
byggðinni og þá einkum á Vest-
fjörðum. Þessutan séu menn að
reyna að halda í þá kennara sem
fyrir eru og reyna að fá aðra í þær
stöður sem losna. Það sé því nóg að
gera í þeim efnum þótt fræðsluyfir-
völd í borginni séu ekki einnig að
reyna að lokka fólk frá landsbyggð
inni og suður.
Kristinn býst við það að verði á
brattann að sækja í baráttunni við
aðra skóla um kennara. Hinsvegar
sé ekki lengur hægt að semja við
kennara um viðbótarkjör umfram
kennarasamninginn. Hann segir að
í þeim efnum sé búið að drepa sveit-
arfélög á landsbyggðinni í dróma.
Hann segir að borgin og sveitarfé-
lögin á höfuðborgarsvæðinu hafi
gengið fram fyrir skjöldu að koma
því til leiðar í síðustu samningum.
Engu að síður reyna menn að koma
til móts við nýja kennara og m.a.
með því að bjóða þeim uppá ókeyp-
is flutningskostnað og niður-
greiðslu á húsnæðiskostnaði. f
reynd þýðir það að aðfluttur kenn-
ari á ísafirði þarf að greiða um 25
þúsund krónur í húsaleigu á mánuði
og er þá meðtalið bæði hiti og raf-
magn.
-grh@frettabladid.is
MARAÞON VÍTAMÍN FYRIR KRÖFUHARÐA (SLENDINGA
Styrkjandi og uppbyggjandi vltamln ag steinefni fyrir nútlma athafnafólk.
KAUPAUKI
Frábært tilboð!
Meðhverju keyptu Maraþon vftamíni
fylgir C-vítamín 300 mg með ávaxta-
bragði ókeypis! Gildir til 11. maí.
BETRI LÍÐAN
Lyf&heilsa
Fj áramálaráðuneytið:
Gengið á enn
eftir að
efnahagsmAl. Flestar efnahagslegar
forsendur benda til að gengið eigi
eftir að styrkjast enn frekar á næst-
unni, samkvæmt vefriti fjármála-
ráðuneytisins í gær. Þar segir að
kröfur um sérstakar aðgerðir af
hálfu stjórnvalda vegna gengisþró-
unarinnar séu tímaskekkja við ríkj-
andi aðstæður og endurhljómur frá
liðinni tíð, þegar forsjárhyggja og af-
skiptasemi stjórnvalda hefðu ráðið
ríkjum.
„Verulega hefur dregið úr inn-
lendri eftirspurn að undanförnu og
það hefur þegar birst í minni vöru-
tyrkjast
skiptahalla," segir í vefritinu. „Enn-
fremur má gera ráð fyrir því að
ákvarðanir um sölu Landssímans og
ríkisbankanna sem nú eru til með-
ferðar á Alþingi leiði til aukins inn-
streymis erlends fjármagns og verði
þannig til að styrkja gengið."
Einnig er bent á að áform um
frekari uppbyggingu stóriðju á
næstu árum muni hafa jákvæð áhrif
á gengið og einnig megi reikna með
að lækkun fyrirtækjaskatta, jafnt
tekju- sem eignarskatta, geti skapað
skilyrði fyrir frekari hækkun gengis-
ins og auknum hagvexti. ■
Akureyri:
Ráðherra
í línudansi
menntun. Valgerður Sverrisdóttir iðn-
aðar- og tryggingaráðherra brá undir
sig betri stígvélunum og setti upp
kúrekahatt og kom í heimsókn í
Menntaskólann á Akureyri í gær þar
sem hún kenndi nemendum nokkur
grundvallaratriði í Hnudansi fyrir
svokallað „deitball“ í gærkvöldi.
í fréttatilkynningu frá MA segir
að Valgerður sé annálaður línudans-
ari og hún hafi náð mjög vel til nem-
endanna sem léku eftir henni listirn-
ar vel og lengi. Samkvæmt upplýs-
ingum frá MA var mikil þátttaka í
dansinum. ■
Portúgal:
1,5 tonn af
hassi upptæk
ussABQN. ap. 1,5 tonn af hassi voru
gerð upptæk undan ströndum Portú-
gal á þriðjudag sögðu portúgalskir
embættismenn í gær. Söluverðmæti
hassins er talið vera 5,3 milljónir
dollara, andvirði um 520 milljóna ísl.
kr. Skipið var á leið frá Marakkó og
var ætlunin að flytja hassið til Portú-
gal og Spánar. Það var portúgalski
sjóherinn sem stóð að aðgerðinni og
sigu hermenn úr þyrlum í skipið og
handtóku áhöfnina. Sex manns voru í
áhöfn skipsins og er talið að þeir séu
meðlimir alþjóðlegs glæpahrings. ■
.—+—
Halló Norðurlönd:
Hjálparlína
gegn kerfinu
búferlaflutningar „Halló Norður-
lönd“ nefnist upplýsingaþjónusta
fyrir fólk sem er að flytja búferlum
milli Norðurlandanna og lenda
kannski í strand í
kerfinu. Þangað
geta einstaklingar
leitað annað hvort í
síma eða á Netinu
og fengið gagnlegar
upplýsingar um
reglur sem gilda í
hverju landi um
skattamál, sjúkra-
tryggingar, náms-
lán, lífeyrismál og
fleira af því taginu.
Miklir fólks-
flutningar eiga sér
stað á hverju ári
milli Norðurland-
anna. Nú eru fjórt-
án þúsund íslend-
ingar búsettir á öðrum Norðurlönd-
um en íslandi og á árinu 1999 fluttu
2.300 íslendingar búferlum til ann-
arra Norðurlanda. Jafnframt því að
veita upplýsingar er ætlunin að
greina þau vandamál sem helst koma
upp hjá fóiki sem flytur á milli landa
og koma þeim upplýsingum áfram til
stjórnvalda svo hægt verði að bæta
úr.
Síminn hjá „Halló Norðurlönd" er
5111808 og netfangið er www.nor-
den.org/hallonorden/is. ■
I STUTTAR I
SITUR VIÐ
SÍMANN
Esther Sigurðar-
dóttir svarar
spurningum þeir-
ra sem flytja á
milli Norðurlanda.
Igær var blíðskaparveður á Austur-
og Suð-Austurlandi. Hitinn klukk-
an 10 í gærmorgun var víða að nálg-
ast 15 gráður og á Egilsstöðum var
hitinn kominn í 16 til 17 gráður. Bú-
ist var við 20 gráðu hita þar sem
best lætur þennan fyrsta alvöru
sumardag ársins á Austurlandi.
—♦—
Ríkisstjórn Brasilíu hefur tilkynnt
áform um að bólusetja um 13
milljónir nautgripa gegn gin- og
klaufaveiki. Þetta er gert til þess að
reyna að koma í veg fyrir að gin- og
klaufaveiki breiðist út í landinu en
staðfest var um helgina að ellefu
nautgripir væru sýktir af veikinni á
bóndabæ nálægt landamærum Bras-
ilíu og Úrúguay.