Fréttablaðið - 11.05.2001, Qupperneq 9
FÖSTUDAGUR 11. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
| stuttar'
Forsætisráðuneytið hefur greint
starfsmönnum Þjóðhagsstofnun-
ar frá því að til standi að leggja
stofnunina niður fyrir áramót. Þetta
kemur fram í svari ráðuneytisins við
spurningu starfsmannafélags Þjóð-
hagsstofnunar. Ríkisútvarpið greindi
frá.
Songbird er nýtt leitarforrit sem
tvítugur tölvuspekingur, Travis
Hill, bjó til. Songbird gerir tónlistar-
fólki kleift að fylgjast með afdrifum
tónverka sinna á Netinu. Leitarfor-
ritið beinist sérstaklega að notkun
hins umdeilda Napster-forrits, og
geta höfundar laga og flytjendur séð
nákvæmlega hvað hver Napster-not-
andi gerir við tónverkin. Hægt er að
ná í Songbird á www.iapu.org.
Eldflaugavarnaáætlun:
Aætlunin kynnt
Evrópubúum
berlIn, kaupmannahöfn. ap. Að sögn
þýskra embættismanna eru þeir
sammála nefnd Bandaríkjaforseta
sem nú ferðast um Evrópu um að
breyttir tímar kalli á ný varnar-
kerfi. Sendinefndinni er ætlað að
vinna stuðning Evrópuríkja við eld-
flaugavarnaáætlun Bush. Hún hélt
til Þýskalands frá Danmörku en
þar hefur áætlunin verið mjög um-
deild vegna þess að ef hún verður
framkvæmd þarf setja upp nýja
ratsjárstöð í herstöðinni í Thule á
Grænlandi. Málefni Thule voru
hins vegar ekki rædd á fundinum.
Mogens Lykketoft, utanríkisráð-
herra Dana, sagði að málefni Thule
væru ekki til umræðu fyrr en
Bandaríkin legðu ákveðnar tillögur
fram en „eldflaugavarnir mættu
ekki hefja nýtt vígbúnaðarkapp-
hlaup." ■
Markhópur:
Allir.
120 tróðust undir á fótboltavelli í Ghana:
Fjórði harmleikurinn á mánuði
flccRA. ghana. flp Aðeins fimm mínútur
voru eftir af leik tveggja stærstu fót-
boltaliðanna í Ghana á fótboltavellin-
um í Accra þegar stuðningsmenn ann-
ars liðsins byrjuðu að henda flöskum
og stólum inn á völlinn. Lögreglan
brást við með því að beita táragasi
með þeim afleiðingum að áhorfendur
flúðu sem fætur toguðu, en þar sem
vallarhliðið var lokað myndaðist gíf-
urlegur troðningur og að minnsta
kosti 123 létu þar lífið.
Þetta er fjórði harmleikurinn og sá
mannskæðasti sem á sér stað vegna
troðnings eða óláta , fótboltavöllum í
Afríku á undanfömum mánuði. Þann
11. apríl fórust 43 manns á fótbolta-
velli í Jóhannesarborg í Suður-Afríku.
29 manns tróðust undir í Lubumbashi
í Kongó þann 29. apríl. Og þann 6. maí
brutust út slagsmál á fótboltaleik á
Fílabeinsströndinni með þeim afleið-
ingum að einn maður lést og 39 slösuð-
ust.
Alþjóðaknattspyrnusambandið
(FIFA) segir þessa hörmulegu atburði
ekki vera tilefni til þess að útiloka
Afríkuríki frá því að taka þátt í sam-
keppni um staðsetningu heimsmeist-
arakeppninnar í fótbolta árið 2010.
„Sú staðreynd að slysum af þessu
tagi hefur fjölgað í Afríku er auðvit-
að áhyggjuefni," segir Andreas Her-
ren, talsmaður FIFE. „En það þýðir
ekki að Afríka verði útilokuð. Þangað
til ættum við að sýna sóma okkar í að
leyfa íbúum í Ghana að jarða hina
látnu.“
Stjórnvöld í Ghana hafa boðað
þriggja daga sorgartímabil í landinu.
Mannfall hefur áður verið mikið
þegar troðningur hefur myndast á
fótboltavöllum, og það er ekki bundið
við Afríkuríki. Mannskæðustu slysin
urðu árið 1982 þegar 340 manns lét-
ust á Evrópubikarleik í Moskvu þeg-
ar öngþveiti myndaðist í áhorfenda-
hópnum, og árið 1964 þegar 318
manns létust og 500 særðust þegar
óeirðir brutust út á fótboltaleikvangi
í Líma, höfuðborg Perú. ■
VEGSUMMERKI SLYSSINS
Brotnir stólar sýna greinilega að
eitthvað hefur gengið á á fótboltavellinum
í Accra I gær.
BORN I DAMASCUS
Arabar veittu Palestínu stuðning í barátt-
unni við israel I gær
Sýrland:
Mótmælaseta
fyrir Palestínu
damascus. flp. Leiðtogar ýmissa
arabasamtaka í Sýrlandi sátu fyrir
framan skrifstofu Sameinuðu þjóð-
anna í Damascus hluta gærdags í
mótmælaskyni vegna aðfara ísra-
els gagnvart Palestínumönnum á
hernumdu svæðunum. í bréfi sem
mótmælendur skiluðu á skrifstofu
Sameinuðu Þjóðanna fóru þeir
fram á að „stefnt verði tafarlaust
að því að stöðva kynþáttaútrým-
ingar ísraelsmanna og öryggi
Palestínumanna verði tryggt."
Veifaði fólkið myndum af korna-
barninu sem lést í árás ísraels-
manna á flóttamannabúðir Palest:
ínumanna í Gaza á mánudag. í
bréfinu var kvartað yfir aðgerðar-
leysi af hálfu S.Þ. sem sagt var
stefna jafnvægi á svæðinu fyrir
botni Miðjarðarhafs í hættu. ■
Fréttablaðið berst alltaf til 61.500 heimila á höfuðborgarsvæðinu.