Fréttablaðið - 11.05.2001, Qupperneq 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
11. maí 2001 FÖSTUDAGUR
/ Ef þér hefur
fundist EUROVISION
spennandi prófadu þá
að kaupa sjónvarp j
49.999
|T[L 20:00 FÖSTUDAG
^OC 18.00 LAUGARDAG.
______/ BT Skeifunni - S:550-4444 • BT Hafnarfirði - S:550-4020
—----------- BT Kringlunni - S:550-4499 • BT Grafarvogi - S:577-7744
BT Reykjanesbæ - S:421-4040 • BT Akureyri - S:461-5500 • BT Egilsstöðum - S:471-3880
Sólarplús
í tvær vikur
w T ■ ik
íMallorca f ÍPortugaly
1 28. maí J l 29. maí l
L J /
46.200
miðað við ferð fyrir 2 fullorðna og 2 börn 2ja -11 ára.
Innifalið er flug, gisting (staðfestur gististaður viku fyrir brottförl, ferðir til
og frá flugvelli erlendis, íslenskir fararstjórar og allir flugvallarskattar.
kr.
Ef 2 ferðast saman er verðið 62.465 kr.
www.plusferdir. is
*5S*
Blönduós Borgarnes ísafjörður Sauðárkrókur Akureyrí Egilsstaðir Solfoss Vestmannaoyjar Keflavik Grindavík
S: 452 4168 S: 437 1040 S: 456 5111 S: 453 6262 S: 585 4200 S: 471 2000 S: 482 1666 S: 481 1450 S: 585 4250 S: 426 8060
Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hlíðasmára 15 • 200 Kópavogi
Sími 535 2100 • Fax 535 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is
f>íus
FERÐIR
www.firmaskra.is
Upplýsingar um íslensk fyrirtæki á netinu
ítalir veijast ásökunum frá Þýskalandi:
Jafnréttislög í útflutningi
löcciöf Hvað sem fólki finnst um inn-
lenda jafnréttislöggjöf þá virðist hún
vekja athygli útlendinga og þá einkum
meðal Eystrasaltsríkja. í það minnsta
hafa sendinefndir á vegum þeirra ver-
ið að koma hingað til lands til að kynna
sér þennan málaflokk í stað þess að
fara til annarra Norðurianda. Meðal
annars kemur hingað í næstu viku
sendinefnd frá Litháen.
Sigríður Lillý Baldursdóttir skrif-
stofustjóri í félagsmálaráðuneytinu
segir að það sem veki athygli útlend-
inga sé m.a. að í nýju jafnréttislöggjöf-
inni séu öll gögn í öllum gagnasöfnum
kyngreind. Með því sé hægt að búa til
góðan grundvöll fyrir rannsóknir á
samfélaginu. Hún segir að ekki sé vit-
að til að slíkt
ákvæði sé að
finna í sambæri-
legum löggjöfum
annarra þjóða. Þá
sé ýmislegt annað
í jafnréttismálum
sem hefur vakið
forvitni útlend-
inga. Þessutan séu
útlendingar ein-
nig forvitnir að
fræðast um lögin
um nálgunar-
bannið hjá dóms-
málaráðuneytinu
og greiðslu bóta til þeirra sem verða
fyrir ofbeldi svo nokkuð sé nefnt. ■
SIGRÍÐUR LILLÝ
BALDURSDÓTTIR
Kyngreind gögn í
gagnsöfnum vekja
athygli
PASTA f PISA
Löng hefð er fyrir pastaframleiðslu á Italíu og er það á meðal
mikilvægustu útflutningsafurða þeirra.
ítalir verjast ásökunum frá Þýskalandi:
Geislavirkni ekki
notuð á pastað
rqm. ap. ítalski landbúnaðarráðherr-
ann, Pecoraro Scanio, vísaði á bug
frétt sem birtist í dagblaðinu Frank-
furter Allgemeine Zeitung þar sem
fullyrt er að ítalskt hveiti sé geisla-
virkt. Blaðið hafði þetta eftir austur-
rískri kjarnorkurannsóknarstofu sem
segir að ítalir noti geislavirkni til að
galdra fram ný afbrigði og tegundir af
ávöxtum.
Sagði Scanio fréttina vera „fárán-
lega árás og algjörlega tilbúnar upp-
lýsingar." ítalskir vísindamenn sem
AP fréttastofan hafði samband við
sögðu hinsvegar að geislavirkni væri
notuð, en ekki í þannig mæli að hún
ógnaði heislu manna. Rúmlega 2.200
ný plöntu- og ávaxtaafbrigði hafi ver-
ið búin til síðan árið 1963 með ýmsum
aðferðum, þar á meðal geislavirkni. ■
Önnur hlið á deilu Kína og Bandaríkjanna:
Vopnahlé í tölvustríði
tölvur. Óformleg samtök tölvuþrjóta
í Kína hafa lýst því yfir þau muni
fresta frekari aðgerðum gegn banda-
rískum vefsíðum. Segjast samtökin
hafa brotist inn á meira en 1000 vef-
síður síðan „tölvustríðið" hófst þann
1. apríl síðastliðfnn, sama dag og
bandaríska njósnaflugvélin brotlenti
í Kína. Samtökin halda því fram að
innbrotin hafi verið framin í varnar-
skyni, en bandarískir kollegar þeirra
herjuðu á kínverskar vefsíður á með-
an áhöfn flugvélarinnar var ^haldi
stjórnvalda. Bandarísku tölvuþrjót-
arnir brutust inn á síður og skildu
meðal annars eftir sig skilaboðin:
„Við munum hata Kínverja að eilífu
og brjótast inn á vefsíður þeirra."
Kínverskir netverjar sáu sér því
þann kost vænstan að gera gagnárás,
en þeir telja sig eins og áður sagði
NJÓSNAFLUGVÉLIN
Tölvuþrjótar í Bandaríkjunum tóku ró sína
aftur þegar áhöfn vélarinnar var sleppt.
hafa gert nóg, í bili að minnsta kosti.
Ekki er ljóst hvor þjóð hafði sigur en
sérfræðingar telja að „stríöið" muni í
báðum löndum stuðla að bættum vef-
síðuvörnum. ■