Fréttablaðið - 11.05.2001, Síða 12
12
FRÉTTABLAÐIÐ
11. maí 2001 FÖSTUDAGUR
Garðabær:
Kært og
kosið á ný
verkalvðsmAl Félagsmenn í Starfs-
mannafélagi Garöabæjar munu
þurfa að kjósa aftur um nýgerðan
kjarasamning við Launanefnd sveit-
arfélaga sem var felldur með eins at-
kvæða meirihluta. Sú atkvæða-
greiðsla hefur verið kærð vegna þess
að félagsskrá var ekki borin saman
við þá sem kusu að afloknum félags-
fundi. Þetta er í annað sinn sem end-
urtaka þarf atkvæðagreiðslu vegna
formgalla í félagi opinberra starfs-
manna. Áður hafði hið sama gerst hjá
Starfsmannafélagi Akraness fyrir
skömmu. ■
Veðurklúbburinn á Dalbæ um Eurovision:
ísland í 10* eða 11. sæti
eurovision „ísland lendir sennileg í tí-
unda eða ellefta sæti. Það fer að vísu
allt eftir veðri. Ef það verður skýjað
og dimmt yfir hér á íslandi, lendum
við í sautjánda sæti. Ef það verður
hinsvegar sunnan átt, léttskýjað og
sól, náum við sjöunda sæti,“ segir
Júlíus Garðar Júlíusson, formaður
Veðurklúbbsins á Dalbæ, Dalvík, um
horfurnar í söngvakeppni sjónvarps-
stöðva.
Klúbburinn er þekktur fyrir veð-
urspár sínar. Þeir ákváðu að bregða
útaf vananum að beiðni Fréttablaðs-
ins og spá fyrir um úrslitin í söng-
vakeppni Evrópu sem fram fer í
Parken Kaupmannahöfn á morgun.
Þetta var einungis til gamans gert
þar sem slík spá fellur ekki undir
þeirra sérsvið. Júlíus segir að spáin
sé byggð á tilfinningu sem og veður-
fari. Klúbbfélagar voru sammála um
að því betra sem veðrið yrði ætti að
skapast betri andi hér heima sem á
eftir að skila sér í hlýjum straumum
til íslensku keppendanna í Two
Tricky.
Veðurklúbburinn hefur verið
starfræktur í rúm fimm ár. í dag eru
tólf virkir meðlimir en nýjir meðlim-
ir bætast jafnt og þétt í hópinn.
Júlíus vildi ekki gefa upp veður-
spá næstu daga en samkvæmt veður-
spá klúbbsins fyrir maí ætti mánuð-
urinn að vera frekar kyrr og finnst
félögum jafnvel að veðrið sé búið að
vera óeðlilega kyrrt í allan vetur,
miðað við venjulegt árferði. Þeir bú-
ast þó við föl í kringum 23. maí þótt
menn hafi ekki verið á eitt sáttir um
það.
Samkvæmt spá Veðurstofu ís-
lands verður hæg breytileg átt og
skýjað með köflum. Hiti á bilinu 7 til
15 stig og hlýjast inn til landsins. Það
verður því úr vöndu að ráða ef marka
má Eurovisionspá Veðurklúbbsins í
Dalbæ, Dalvík. ■
ÞEKKTIR SPÁMENN
Júlíus Júliusson formaður Veðurklúbbsins á
Dalbæ, Dalvík. Samkvæmt spá klúbbsins
ætti maí mánuður að vera frekar kyrr þó
hann búist við föl seinni partinn.
EKTA EÐA FALSAÐ?
Pappírinn sem skýrslan er prentuð á bend-
ir til þess að hún sé ekta.
Skýrsla Gagaríns:
Seld á 16
milljónir
moskva. ap. Skýrsla rússneska
geimfarans Júrí Gagarín sem seld
var á uppboði fyrir 171.000 dollara,
andvirði um 16 milljóna ísl. kr. virð-
ist hafa verið stolið úr rússnesku
skjalasafni. Skjalið, sem er prentað
og undirritað af Júrí Gagarín, var
selt Bandaríkjamanni á uppboði á
hlutum er tengjast geimferðasög-
unni. í skýrslunni er m.a. að finna
lýsingu Gagaríns, sem var fyrsti
geimfarinn, á geimferðinni sem
varði í 108 mínútur.
Ýmislegt er á huldu í sambandi
við skýrsluna að sögn Vladimirs
Kozlovs, þjóðskjalavörðs Rússlands.
Hann segir sérfræðinga á hans veg-
um hafa skoðað hana áður en hún var
boðin upp í New York en ekki orðið
miklu nær. Hann telur að skýrslunni
hafi verið stolið vegna þess að lögum
samkvæmt eigi slíkar heimildir að
vera í ríkisskjalasöfnum.
Ekkja Gagaríns, Valentína, efast
um að skýrslan sé ekta. Kozlov held-
ur því hins vegar fram að svo sé.
Talið er að nokkur eintök hafi verið
gerð af skýrslunni og sumir halda því
fram að þetta eintak sé eintak sem
Krútsjeff, þáverandi ieiðtogi Sovét-
ríkjanna, hafi á sínum tíma gefið
Fidel Castro, leiðtoga Kúbu. ■
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Uppnám í tónlistarheiminum:
Stjórnandi
utan í fússi
Aðalstjórnandi Sinfóníunnar er hlaupinn undan
starfssamningi sínum við hljómsveitina í kjölfar þess
að honum var tilkynnt að starfssamningur hans
yrði ekki endurnýjaður að ári.
tónlist. Aðalstjórnandi Sinfónóníu-
hljómsveitar íslands, Rico Saccani,
hefur yfirgefið Sinfóníuhljómsveit
íslands, ári áður en starfssamningur
hans segir til um. Saccani var til-
kynnt í lok febrúar að tveggja ára
samningur hans yrði ekki endurnýj-
aður þegar hann rennur út að ári en
sú ákvörðun var tekin í kjölfar skoð-
anakönnunar meðal hljóðfæraleikar-
anna þar sem þeir voru inntir eftir
viðhorfi sínu til áframhaldandi sam-
starfs við Saccani.
Aðalstjórnandanum var gerð
^ grein fyrir þessu
þegar æfingar
voru að hefjast
fyrir Ravel tón-
leika sem hann síð-
an stýrði 1. mars
en rauk að því
loknu úr húsi og
hefur ekki sést síð-
Hljóðfæraleikari
segir að sam-
bandið við
Saccani hafi
einmitt verið
mjög gott í
upphafi en að
síðar hafi komið
þreyta í sam-
starfið og sífellt
fleiri hafi ekki
getað fellt sig
við starfsaðferð-
ir hans.
an.
Þorkell Helga-
son, formaður
stjórnar Sinfóní-
unnar, sagði að
unnið hefði verið
að því að skýra
málið á síðustu
dögum en vildi að
öðru leyti ekkert láta hafa eftir sér
um málefni aðalstjórnandans. Þröst-
ur Ólafsson, framkvæmdastjóri
hljómsveitarinnar, sagðist heldur
ekkert vilja segja um málið og neit-
aði eins og Þorkell að staðfesta að
Saccani hefði yfirgefið sinfóníuna.
Skoðanakannanir meðal hljóð-
færaleikara Sinfóníunar eru hefð-
bundið tæki sem stjórnin hefur til að
meta störf stjórnendanna. og sams-
konar könnun um störf Saccanis var
framkvæmd áður en nýr tveggja ára
samningur var gerður við hann í
fyrra. Niðurstöður kannannna eru
trúnaðarmál og aðeins á vitneskju
stjórnarmanna en einn ónefndur
hljómsveitarmeðlima sagði líklegt
að meirihluti hljóðfæraleikaranna
hefðu hafnað Saccani í atkvæða-
greiðslunni á dögunum. Hann hefði
síðan tekið ákvörðun stjórnar hljóm-
sveitarinnar persónulega en ekki
faglega eins og efni stæðu og því lát-
ið sig hverfa í fússi.
Hljóðfæraleikaranir fréttu ekki
af brotthvarfi Saccanis fyrr en um
miðjan mars en þá var þeim tilkynnt
að hann yrði ekki við stjórnvölinn á
tvennum Carmen tónleikum í lok
mánaðarins. Ástæðan sem gefin var
upp fyrir fjarveru Saccinis mun hafa
Saccani vilja vera eins lengi á íslandi
og menn óska eftir honum.“Það er
yndislegt að stjórna tónlist með fólki
sem þekkir mig vel og manni líður
vel með. Á milli okkar hefur mynd-
ast einstakt samband sem ég vona að
fái tækifæri til þess að þróast
áfram,“ sagði stjórnandinn.
Saccani mun strax hafa verið afar
vel liðinn af meðlimum Sinfóníunnar
en hljóðfæraleikarinn, sem áður er
sú að hann væri veikur en hann hef-
ur átt við veikindi í raddböndum að
stríða um skeið.
Samstarf Saccanis og Sinfóníu-
hljómsveitarinnar nær aftur til árs-
ins 1992 en þá stýrði hann hljóm-
sveitinni fyrst sem gestastjórnandi.
Hann kom hingað reglulega eftir það
og var loks ráðinn aðalstjórnandi til
tveggja ára árið 1998. í viðtali á
heimasíðu Sinfóníunnar sagðist
Sumarbúðirnar Ævintýraland, Reykjum í Hrútafirði
SUNDLAUG
SKARTGRIPAGERÐ
TRAMPÓLÍN
BÁTAR
FÖNDUR
SMÍÐAR
KASSABÍLAR
FLUGDREKAGERÐ
TILRAUNIR
yv\ -------------------------------
Námskeið í kvikmyndagerð,
leiklist, myndlist, grímugerð,
tónlist og íþróttum.
§típifl§ö$jrfiiir
Æmtmmmé
Ennþa eru orfa
pláss laus
27/6-4/7 7-11 ára
4/7-11/7 7-12 ára
18/7-25/7 10-12 ára
25/7-1/8 10-12 ára
1/8-8/8 13-15 ára
8/8-15/8 13-15 ára
Hetjan heiðruð
Jón Gestur kom í veg fyrir stórbruna á Hótel Sögu með snarræði sínu.
hetjupáð Jón Gestur Ófeigsson, 26
ára gamall næturvörður á Hótel
Sögu, var í gær heiðraður fyrir hetju-
lega framgöngu sína þegar bruni
kom upp í Súlnasal Hótels Sögu að-
faranótt 2. maí. Það var Hótel Saga
og VÍS sem veittu Jóni viðurkenning-
una í hófi sem haldin var honum til
heiðurs. Auk Jóns hlutu nokkrir sam-
starfsmenn hans viðurkenningu en
þeir voru með Jóni á næturvakt
þessa umrædda nótt. „Ég vil fyrst og
fremst þakka samstarfsmönnum
mínum sem voru með mér á vakt og
má segja að þetta hafi verið alþjóð-
Iegt samstarf en tveir þeirra eru út-
lendingar," sagði Jón Gestur í stuttu
spjalli við Fréttablaðið.
Aðspurður um fyrstu viðbrögðin
eftir að gestamóttakan hafði tilkynnt
honum um brunann sagðist Jón Gestur
strax hafa farið á vettvang. „Það lagði
á móti mér mikinn reyk og gaf ég þá
strax fyrirmæli um að hringja í
slökkviliðið. Síðan flýtti ég mér að
sækja tvö slökkvitæki sem ég vissi af
í gestamóttökunni og tæmdi þau á eld-
inn. Að því loknu sótti ég önnur tvö
sem voru í eldhúsinu og tæmdi þau
einnig." Jóni barst síðan liðsauki þjóns
úr Skrúði og í sameiningu dældu þeir
úr fimmta og sjötta slökkvitækinu
sem réði niðurlögum eldsins.
Jón fékk að launum fyrir hetjudáð
sína gjafabréf frá Samvinnuferðum
Landsýn og gistingu á Radison SAS
hóteli að eigin vali. „Ég hef hugsað
mér að verða mér úti um bækling
sem sýnir hvar gististaðir Radison
eru niðurkomnir og taka síðan
ákvörðun um hvert leið liggur," sagði
Jón að endingu en þess má geta að
hann hefur verið starfsmaður Hótels
Sögu síðan hann var 13 ára gamall.
Að sögn Péturs Más Jónssonai',
fi’amkvæmdastjóra atvinnutrygg-
inga VÍS, er fyrii’hugað að gefa út
bækling sem fjallar um hvað gera
skuli ef eldsvoði kemur upp á hótel-
um. Sagði hann viðbrögð Jóns Gests
sanna það að hægt sé að koma í veg
fyrir stórbruna með þvílíku snar-
ræði.
Um upptök eldsins er það að segja
að þau eru enn ókunn en talið er að
um íkveikju hafi verið að ræða.
kolbrun@frettabladis.is