Fréttablaðið - 11.05.2001, Síða 15
F
FÖSTUDAGUR 11. maí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
is
Alltaf gaman á eftirlaunum:
Klaufinn Cantona
klessir á konu
strandknattspyrna Knattspyrnuhetj-
an Eric Cantona, sem nú er fyrirliði
franska landsliðsins í strandknatt-
spyrnu, skemmtir sér þessa dagana í
Tælandi. Þar keppa Frakkarnir við
Tælendinga í fyrsta landsleiknum í
strandknattspyrnu. Dvölin hefur
ekki verið slysalaus. Þegar Cantona
var að leika sér á sjóketti undan
ströndum Pattaya, skammt frá Bang-
kok, nú í vikunni gætti hann ekki að
sér. Kappinn klessti beint á tælenska
konu sem var einnig á sjóketti. Kon-
an, sem sér um að hafa ofan af fyrir
franska landsliðinu, slasaðist lítil-
lega. Cantona slapp ómeiddur enda
þaulvanur samstuðum. Umsjónar-
maður franska landsliðsins, Praput
Khamlangek, borgaði eiganda sjó-
kattaleigunnar 9000 krónur vegna
óhappsins. Cantona skammaðist sín
fyrir óhappið og hótaði því að hætta
við að leika landsleikinn í Tælandi ef
slysið færi í fjölmiðla. Honum varð
ekki að ósk sinni, daginn eftir voru
forsíðumyndir af slysinu í stærstu
dagblöðum landsins. ■
ORÐINN FEITUR
Það er auðséð að Cantona er ekki í jafn góðu formi og forðum daga. Þannig er hann ef-
laust svifaseinni eins og sannaðist á sjókettinum.
FORMAÐURINN I GÓÐRA VINA HÓPI
Eggert Magnússon þakkað fjölmiðlun fyrir að sinna knattspyrnunni og auka þar með al-
mennan áhuga á íþróttinni.
Ahorfendum
fjölgar árlega
KSI hélt kynningarfund í gær. KR á toppnum sam-
kvæmt spá og Hugi.is er vefsvæði Símadeildarinnar.
knattspyrna Knattspyrnusamband ís-
lands efndi til blaðamannafundar í
gær til að kynna Símadeildina í ár.
Þar skrifuðu Agnar Már Jónsson,
framkvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs Símans, Eggert Magnússon,
formaður KSI, og formenn félaga í
efstu deild undir samstarfssamning
um stuðning Símans við deildina.
Þetta er fjórða árið í röð sem Síminn
styrkir úrvalsdeildina, en fyrirtækið
styrkir einnig úrvalsdeild kvenna og
veitir styrki til Hnátumóts KSÍ og
Pollamóts KSÍ.
SPÁ UM SÍMADEILD 2001
Sæti Stig
1. KR........................ 288
2. Grindavík................ 256
3. Fylkir___________________ 250
4. ÍBV_______________________ 173
5. ÍA________________________ 161
6. FH..................... 159
7. Keflavík__________________ 124
8. Breiðablik................. 98
9. Fram ...................... 81
10. Valur______________________ 60
Spána gerdu fyrirliðar, þjálfarar og formenn
knattspyrnudeilda félaga I Slmadeildinni.
SPÁIN MIKLA
Á hverju ári bíða knattspyrnuáhugamenn
spenntir eftir þvi að KSÍ gefi út spána fyrir
úrslit komandi deildarkeppni.
Síminn leggur til skilti, auglýs-
ingadúka, fána, peysur og fleira fyrir
félögin. Þá kostar fyrirtækið starfs-
mann á skrifstofu KSÍ til að fara með
málefni deildarinnar og greiðir um-
talsverðar fjárhæðir til KSÍ.
í ávarpi þakkaði Eggert Magnús-
son fjölmiðlum fyrir útsendingar af
leikjum og umfjallanir sem hann
sagði hafa skilað sér með auknum
áhuga á íþróttinni. Aukinn áhugi
dregur að sér fleiri áhorfendur. Að-
sóknin að leikjum hefur aukist tölu-
vert síðastliðin ár en í fyrra var
heildarfjöldi áhorfenda 80.937 eða
899 að meðaltali á leik.
Á fundinum var kynnt vefsvæði
Símadeildarinnar á vefnum Hugi.is.
Þar verður komið upp sérstöku vef-
svæði fyrir öll félög Símadeildarinn-
ar þar sem hvert lið hefur sína um-
sjónarmenn. Með þessu móti geta
stuðningsmenn og liðsmenn átt í
skoðanaskiptum á vefnum. Vefsvæði
Símadeildarinnar á Hugi.is verður
opið á meðan deildin er í gangi nú í
sumar.
Á fundinn mættu fyrirliðar, þjálf-
arar og formenn allra félaga í deild-
inni. Birtir voru allir leikmannalistar
ársins, breytingar á dómgæslu
kynntar auk þess sem hin sívinsæla
spá um lokastöðu deildarinnar var
kunngerð. ■
Blóðheitur knattspyrnubransi Ekvador:
Lífshættulegt þjálfarastarf
á lausu enn á ný
knattspyrna Það er hægara sagt en
gert að vera fótboltaþjálfari á
Ekvador. Landsliðsþjálfari Ekvador,
Hernan Gomez, liggur á spítala eftir
skotárás sem hann lenti í á þriðju-
dagskvöld. Gomez, sem er Kól-
umbískur og kallaður Prófessorinn
af leikmönnum, var staddur á veit-
ingastað Hilton hótelsins í Guayaquil
þegar hann var sleginn í andlitið með
byssuskafti og skotinn þremur skot-
um í fótinn. Árásarmaðurinn var einn
af fjórum lífvörðum sem fylgdu Jos-
elo Rodriguez, eiganda annarar
deildar liðsins Santa Rita. Ástæða
árásarinnar var vegna þess að
Gomez valdi ekki Dalo Bucaram í U-
20 landsliðshópinn sem spilar á U-20
HM í Argentínu í júlí. Dalo er sonur
Abdala Bucaram, fyrrum forseta
Ekvador, og leikmaður Santa Rita.
Fyrrum forsetinn Bucaram, sem var
rekinn úr embætti 1997, sagði eftir
árásina: „Auðvitað er þetta slæmt. En
þetta snýst um fótbolta. Þá æsist fólk
upp og vill hefna sín.“
Gomez sat og snæddi með fram-
kvæmdastjóra knattspyrnusam-
bands Ekvador þegar Rodriguez vík-
ur sér að honum og húðskammar
hann fyrir að velja leikmann sinn
ekki í hópinn. Hann hætti fljótlega
talinu og lét lífvörðinn sjá um af-
ganginn. Rodrigez þessi var meðlim-
ur stjórnmálaflokks Bucaran en var
vísað úr embætti vegna geðveilu.
Fyrir einungis mánuði síðan
hætti fyrrum U-20 landsliðsþjálfari
Ekvador, Hugo Gallego, einnig Kól-
umbískur, eftir að hann var barinn
af fótboltabullum fyrir lélegt val í
liðið. ■
ÉG ER HÆTTUR
Hernan Gomez segist ætla að fara heim til
Kólumbíu við fyrsta tækifæri.
• Að námi loknu ejga nemendur að geta starfað sjálfstætt á tölvuverkstæðum
og séð um uppsetningu, viðhald tölvu og netkerfa fyrirtækja
# Kennt verður 3x4 iklukkustundir á viku íí cglæsilegri kennsluaðstöðu
*/MM\ Takmarkaður'fjöldi nemenda
H5fflimían®T:: (FtiiiðiilkSSaJteiSi, IHHpiuirSoœiiiliiffinpssm Itop <S.. Swaitia®6iti>
iEingitijjalli 2C0D iKápawogur Sími: S54 7750 Errtaii: stolyuvicifarciir@tolyuvicigerciir.is