Fréttablaðið - 11.05.2001, Page 18
FRÉTTABLAÐIÐ
11. ma! 2001 FÖSTUDAGUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MED?
18.
Baldur Rafn
hárgreiðslumeistari og eigandi
Mojo og Monroe
Ég mæli með þvi að i kvöld hafi fólk það
„kósý" en föstudagskvöld eru draumakvöldin
min því þá slaka ég á eftir erilsama viku. Ég
slekk þá á öllum símum og læt ekkert trufla
mig. I kvöld eftir vinnu ætla ég að byrja á því
að fara í Ijós, fara síðan heim, elda góðan
mat, kveikja á kertaljósum, fá mér rauðvín
og osta og spjalla og spila. Einnig vil ég
benda fólki á að kíkja inn um gluggann hjá
mér á morgun á hárgreiðslustofuna Mojo,
Vegamótastíg, en þar hefur breskur listamað-
ur, Peter, sett upp málverk. Einn listamaður,
eitt málverk. Svo mæli ég náttúrulega með
þvi að fólk skelli sér í Eurovision-partý.
Áfram ísland!
TIC-kvöld:
Stuðboltar á
Gauknum
skemmtun Umboðsskrifstofan T.I.C.
heldur skemmtikvöld á Gauki á
Stöng í kvöld og byrjar það kl. 22. Það
eru þvílíkir stuðboltar sem fram
koma um kvöldið og má þar nefna
Helgu Braga, dj. Exos Fun og hljóm-
sveitina Jagúar. Hljómsveitin Butt-
ercup slær síðan botninn í kvöldið og
er lofað brjáluðum dansleik.
Okkar
landsfrægu
KAFFI
alla sunnudaga
SkíðaskáCinn
í Hveradötum
Sími. 567 2020
Fífl í hófi í Gamla bíói:
Hver mætir með mesta
fíflið í matarboðið?
leikrit Leikritið Fífl í hófi eftir Franc-
is Veber er sýnt í kvöld í Gamla bíói.
Um er að ræða franskan gamanleik
eftir Francis Veber í þýðingu Krist-
jáns Þórðar Hrafnssonar. Leikritið
heitir á frummálinu „Le Diner de
Cons“.Leikstjóri er María Sigurðar-
dóttir og í aðalhlutverkum eru Bald-
ur Trausti Hreinsson, Þórhallur Sig-
urðsson (Laddi), Laufey Brá Jóns-
ÞÓRHALLUR SIGURÐSSON
Matarboð, í líkingu við það sem í leikrtinu
er, voru nokkuð vinsæl í París um tíma.
dóttir, Elva Ósk Óiafsdóttir og Ari
Matthíasson.
Vinahópur Pierre heldur kvöld-
verðarboð reglulega, þar sem hver
meðlimur hópsins býður með sér að-
ila sem hann telur vera sem „fíflaieg-
astan“.. Hver og einn kappkostar við
að koma með „mesta fíflið" og í lok
kvöldsins er valinn „sigurvegari".
Tilgangurinn með þessu er að gera
grín að boðsgestunum allt kvöldið ,
en gestirnir eru fullkomlega grun-
lausir um tilgang klúbbsins Það er
fyrirtækið Sögn ehf. (Blueeyes prod-
uctions) sem setur leikritið upp.
Magi úr
ull hangir
í portinu
PATRICK MAROLD VIÐ UPPSETNINGU Á VERKINU
Þetta útilistaverk tekur við öllum sveiflum veðurs og umhverfis, og mun ásýnd þess
breytast eftir því sem áhrif Ijóss, þyngdarafls og hreyfingar loftsins gefa tilefni til.
Ungur Bandaríkjamað-
ur vinnur að listsköpun
með íslenskri ull.
Segist hrifinn af íslensku
menningarlífi.
innsetning Bandaríkjamaðurinn
Patrick Marold hefur breytt porti
Hafnarhússins í hangandi maga úr
ull og kallar sýninguna HUM. Sýn-
ingin opnar formlega í dag kl. 17.
Þetta útilistaverk tekur við öllum
sveiflum veðurs og umhverfis, og
mun ásýnd þess breytast eftir því
sem
áhrif ljóss, þyngdarafls og
hreyfingar loftsins gefa tilefni til.
„Ég valdi að vinna með íslensku ull-
ina fyrst og fremst vegna hlutverks
hennar í íslensku þjóðlífi fyrr og nú
og einnig fyrir það hversu lifandi
hún er.“
Patrick Marold er ungur banda-
rískur listamaður, sem hlotið hefur
Fulbright-styrk til að dvelja og star-
fa að list sinni hér á landi í vetur.
Hann stundaði m.a. listnám í
Rhode Island School of Design, og
hefur undanfarin ár einkum starfað
við Colorado Institute of Art. Eftir
dvöl sína hér á landi mun hann snúa
aftur til Colorado í Bandaríkjunum.
Patrick sagðist hafa valið ísland
m.a. vegna þessarar sérstæðu birtu
sem í landinu er. „Ég sá þarna tæki-
færi til að geta unnið með þessa sér-
stöku birtu og tengja hana saman
listsköpun minni. Einnig hafði
ósnortið landslagið, sem mér finnst
iða af lífi, mikið aðdráttarafl." Pat-
rick sagðist hafa komið hingað til
lands einu sinni áður og líkað vel við
íslenskt menningarlíf og jafnframt
fólkið hafa verið mjög vinsamlegt.
HUM innsetningin er líkt og lif-
andi verk og ber að nálgast hana sem
slíka. Samstilling hinna fjölmörgu
ullarstrengja við orku vindsins gerir
verkinu mögulegt að ná fram við-
kvæmri og jafnri hreyfingu, sem
takmarkast þó af eiginleikum efnis-
ins. Einstakir þræðir munu tengjast
og flækjast til að finna stuðning hver
í öðrum, þar til þeir verða að einni
flækju, sem vindurinn tekur minna í.
Þannig munu náttúruöflin ráða lok-
um sýningarinnar. „Þegar mér finnst
verkið hefur drukkið í sig það sem
það getur af ytri náttúruöflum tek ég
það niður og nota til að búa til nýtt
verk sem inniheldur þá þessa orku
náttúrunnar," sagði Patrick að lok-
um.
kolbrun@frettabladid.is
FÖSTUDAGURINN
11. MÁI
FUNDUR______________________________
17.30 Málfundur um sjómannaverk-
fallið, baráttu og kjör sjómanna
og sjávarútveg í kapítalismanum
verður haldinn föstudaginn 11.
maí kl. 17.30 að Skólavörðustíg 6
b (bakvið). Framsaga og umræð-
ur. Að fundinum standa Ungir
sósíalistar og aðstandendur sós-
íalíska vikublaðsins Militant
LEIKLIST____________________________
20.00 í Þjóðleikhúsinu er sýning á
Syngjandi i rigningunní eftir
Comden, Green, Brown og Fred.
Á sýningunni er dansað, steppað
og sungið af hjartans lyst. Við
erum stödd í Hollywood þegar
fyrsta talmyndin lítur dagsins Ijós.
Þöglu myndirnar hverfa á auga-
bragði og gömlu stjörnurnar fá
skyndilega málið.
20.00 Píkusögur eftir Eve Ensler eru
sýndar í kvöld í Borgarleikhús-
inu. Leikritið er byggt á viðtöl-
um leikskáldsins við konur,
gamlar konur og ungar, um
þeirra leyndustu parta, píkuna.
Leikarar eru Halldóra Geirharðs-
dóttir, Sóley Elíasdóttir og Jó-
hanna Vigdís Arnardóttir.
20.00 Nemendaleikhúsið og Hafnar-
fjarðarleikhúsið sýna í kvöld
Platanof eftir Tsjekhov. Miðinn
kostar 700 kr.
20.00 Leikritið Á sama tíma síðar verð-
ur sýnt í kvöld klukkan 20 í Loft-
kastalanum. Leikritið er sjálfstætt
framhald af hinu geysivinsæla Á
sama tíma að ári. (leikritinu tök-
um við upp þráðinn (lífi Georgs
og Dóru. Skin og skúrir skiptast á
hjá ástvinunum sem deilt hafa
súru og sætu í óhefðbundu sam-
bandi sínu í aldarfjórðung. Með
aðalhlutverk fara Tinna Gunn-
laugsdóttir og Sigurður Sigur-
jónsson.
20.00 Leikritið Kontrabassinn eftir Pat-
rick Suskind verður sýnt í kvöld
Litla sviði Borgarleikhússins. Líf
kontrabassaleikara er ekkert
sældarbrauð þrátt fyrir að kontra-
bassinn sé lang mikilvægasta
hljóðfæri hljómsveitar - sjálfur
grunnurinn sem allt byggist á. Ell-
ert A. Ingimundarson fer með
hlutverk kontrabassaleikarans.
Leikstjóri er Kjartan Ragnarsson.
20.00 Gamanleikritið Fífl í hófi verður
sýnt klukkan 20 í kvöld í Gamla
bíóí (hús (slensku óperunnar).
Leíkstjóri er María Sigurðardóttir.
TÓNLEIKAR___________________________
20.00 Skagfirska söngsveitin heldur
tónleika i Selfosskirkju í kvöld.
Söngsveitin fagnar 30 ára afmæli
sínu í vetur og af því tilefni verða
tónleikarnir með glæsilegasta
móti. Á tónleikunum syngja ein-
söng með Skagfirsku söngsveit-
inni þau Ragna Bjarnadóttir
sópran, Dóra Steinunn Ár-
mannsdóttir sópran, Magnús
Sigurjónsson tenór og Eiður
Otto Guðlaugsson bariton.
Stjórnandi Skagfirsku söngsveitar-
innar er Björgvin Þ. Valdimars-
son. Píanóundirleikur er í hönd-
um Sigurðar Marteinssonar.
Einnig mun Kammerkór Skag-
firsku söngsveitarinnar koma
fram. Á tónleikunum mun kórinn
meðal annars flytja syrpu úr Leð-
urblökunni eftir Jóhann Strauss
og syrpu úr söngleikjum eftir þá
Rodgers og Hammerstein. Einnig
verður fluttur Sígaunakórinn
(Coro di Zingarelle) úr óperunni
La Traviata eftir Verdi. Auk þess
eru á dagskránni verk eftir inn-
lenda höfunda.
20.30 Jórukórinn og Karlakór Selfoss
haida sameiginlega tónleika í
kvöld í Ými, húsi Karlakórs
Reykjavíkur við Skógarhlíð.
Jórukórinn er skipaður 48 kon-
um sem búa á Selfossi og í ná-
grenni. Stjórnandi hans er Helena
Káradóttir og undirleikari Þór-
laug Bjarnadóttir. Kórin býður
upp á fjölbreytta og skemmtilega
efnisskrá; hefðbundin sönglög,
djass og dægurlög, erlend og inn-
lend. Karlakór Selfoss er skípað-
ur rúmlega 50 körlum. Stjórnandi
er Loftur Erlingsson og undirleik-
ari Helena Káradóttir. Efnisskráin
karlakórsins er fjölbreytt, bæði ný
og eldri karlakórslög. Þess má
geta að lag Eiriks Bjarnasonar frá
Bóli, Ljósbrá, er á söngskránni.
20.00 í kvöld leika Kuai og Dust á
föstudagsbræðingi Hins Hússins
á Geysi Kakóbar. Hljómsveitin
Kuai sem er fjögurra manna
instrumental rokkhljómsveit er
skipuð Sigurði Þór Rögnvalds-
syni gítar, Guðmundi St. Gunn-
arssyni gítar, Agli Antonssyni
bassa og Baldri Ingvari Sigurðs-
syni trommur. Hún hefur verið
starfandi i u.þ.b. 2 ár og mun í
júní gefa út breiðskifu sem þeir
hafa unnið að frá því í september.
(júní mun hún einnig hita upp
fyrir bandarísku rokkhljómsveitina
Blonde Redhead á upprisuhátið
Hljómalindar.
SKEMMTANIR_________________________
Á Broadway í kvöld verður sýningin
"Country Show." Á sýningunni koma
fram aragrúi af söngvurum sem syngja
munu vinsæl kántrýlög og stiginn verður
línudans. Eftir sýninguna leikur hljóm-
sveit Geirmundar Valtýssonar fyrir
dansi.
T.I.C. kvöldið byrjar snemma á Gaukn-
um í kvöld eða um kl. 22. Meðal þeirra
sem koma fram eru Helga Braga, dj.
Exos Fun, hljómsveitin Jagúar og siðan
mun Buttercup slá botnin í kvöldið
með brjáluðum dansleik.
Útvarpskonan Andrea Jónsdóttir sér
um gleðina og þeytir skífum fram undir
fyrir alla fjölskylduna á sunnudögum frá kl. 18:00
ASKUR
pr.mann, frítt fyrir börn yngri en 6 ára
og 50% afsl. fyrir börn 6-12 ára
SIWHfe