Fréttablaðið - 24.09.2001, Blaðsíða 18
HVAÐA BÓK EKTU AÐ LESA?
FRÉTTABLAÐIÐ
roor i9dm9t(!9í auBACHMáw;
24. september 2001 MÁNUPACUR
ARON VIKAR
bassaleikarí Úlpu
Ég var að Ijúka bókinni Dís sem mér fannst
vera raunsæ bók. |
Hætt við óperuuppsetningu í Egyptalandi:
Aida fjarverandi í ár
ópera Uppsetning óperunnar Aida var tekin eftir að stór hópur
sem áætlað var að sýna fyrír ferðamanna aflýsti flugpöntun-
framan Egypsku pýramídana í um sínum til landsins í ótta um
annað sinn hefur verið aflýst í frekari hryðjuverk. Sýningunni í
kjölfar hryðjuverkaárásarinnar fyrra var frestað vegna þess að
á Bandaríkin. Sýninguna átti að skipuleggjendur vildu leggja fá
setja upp þrjú kvöld í október lengri tíma til að gera sýninguna
fyrir rúmlega 26 þúsund áhorf- í ár sém stórkostlegasta. ■
endur. Aðstandendur sýningar-
innar, sem áætlað er að gera að
árlegum viðburði hér eftir, sögðu
of mikla sorg vera í heiminum í
dag til þess að hægt væri að stan-
da fyrir jafn gleðilegum uppá- . .
komum. Um 1000 manns áttu að A|DA
taka Þátt í uppsetningunni fyrir Áætlað er að gera sýningu óperunnar
Utan kor Og sinfoniusveit. Aida fyrir framan pýramídanna að
Akvörðunin um að hætta við í ár árlegum viðburði.
Ný sýning í Gerðubergi:
60 verk
með bland-
aðri tækni
MYNPLisT Jón Valgard Jörgensen
opnaði sína fimmtu myndlistar-
sýningu á vegum rélagsstarfs í
Gerðubergi á laugardag.
Sýningin er opnuð í tilefni af 70
ára afmæli myndlistarmannsins
á þessu ári og 40 ára hjúskaparaf-
mæli hans. A sýningunni eru um
60 verk: olíuverk, krítarpastel, ol-
íupastel, og teikningar sem Val-
gard hefur unnið að í gegnum
árin með blandaðri tækni.
Sýningin stendur til 9. nóvem-
ber. ■
Skáldsögur, ljóð, ferða-
lög og flökkusögur
Það kennir ýmissa grasa á útgáfulista Bjarts fyrir jólabókaflóðið.
Islenskar skáldsögur og að sjálfsögðu Harry Potter.
jólabókaflóð Útgáfulisti bókaútgáf-
unnar Bjarts fyrir væntanlega
jólabókavertíð liggur nú fyrir. Þar
er ýmislegt forvitnilegt á ferð.
Fyrst má nefna að Bragi Ólafsson
gefur út aðra skáldsögu sína,
Gæludýrin. Bragi fékk tilnefn-
ingu til íslensku bókmenntaverð-
launanna fyrir fyrstu skáldsögu
sína Hvíldardaga og eflaust marg-
ir sem bíða verks hans með eftir-
væntingu. Gæludýrin munu vera
Reykjavíkursaga úr nútímanum.
Þorvaldur Þorsteinsson sendir
frá sér sína fyrstu skáldsögu. Hún
fjallar um tvöfalt líf Haraldar
Haraldsson kennara og glímu
hans við hana. „Þetta er bók sem
er mjög í anda Þorvaldar, fyndin,
óvænt, skemmtileg og frumleg.
En hreppir eflaust titilinn djarfas-
ta skáldsaga vertíðarinnar,“ segir
í tilkynningu útgefanda. Þorvald-
ur gefur einnig út barnabókina
Vettlingarnir hans afa sem er hug-
ljúf jólasaga.
Einnig er von á nýrri skáldsögu
eftir Jón Kalman Stefánsson og
fjallar hún um tíu ára strák sem
fer utan í vist hjá ættingjum. Jón
fékk á síðasta ári tilnefningu til
bókmenntaverðlauna Norður-
landaráðs fyrir aðra bókina í
sveitatrílógiu sinni (Skurðir í rig-
iningu, Sumarið bak við brekkuna
og Birtan á fjöllunum.) Nú hefur
Jón fært sögusvið sitt til útlanda
og segir sagan frá tíu ára strák
sem fer utan í vist hjá ættingjum.
Ekki ástarsaga er heiti nýrrar
skáldsögu Haraldar Jónssonar,
sem að sögn útgefanda mun koma
lesendum hans á óvart.
Steinar Bragi, sem hefur getið
sér orð sem eitt athyglisverðasta
unga ljóðskáld íslands, sendir frá
sér Ijóðabókina Ljúgðu Gosi
ljúgðu. Hann sendi í fyrra frá sér
nóvelluna Túrninn. Lakkrísgerðin
eftir Óskar Árni Óskarsson er bók
með stuttum frásögnum.
Unnendur ferðasagna fá eitt-
hvað fyrir sinn snúð hjá Bjarti. Út
kemur ferðasaga eftir Sigfús
Bjartmarsson sem er „mergjuð
ferðasaga um bakgarða Suður-
Ameríku og skæruliðaslóðir skrif-
uð af mögnuðum sögumanni,“ seg-
ir útgefandi. Sólskinsrútan er sein
í kvöld er nafnið á sögunni.
Mjög spennandi er einnig bók
Rakelar Pálsdóttur þjóðfræð-
ings. Rakel hefur safnið saman
BRAGI ÓLAFSSON
Ný skáldsaga eftir hann er væntanleg
fyrir jól.
samtíma flökkusögum í hund-
raðatali. Þetta eru sagnir sem
hafa gengið manna á milli hér á
íslandi. „Rakel segir sögurnar,
sem allar eru bráðskemmtilegar,
sumar fyndnar aðrar hryllilegar
og ber þær saman við erlendar
sögur og reynir að útskýra hvers
vegna sögurnar ganga manna á
milli.“
Auk ofantalinna bóka koma út
nokkrar þýddar bækur, þar á
meðal bók um gulldreng Bjarts,
galdradrenginn Harry Potter, og
er nú komið að fjórðu bók serí-
unnar. ■
1 METSÖLULISTI |
Mesf seldu bækurnar
á amazon.com
Judíth Miller
GERMS: BIOLOGICAL WEAPONS...
Q Jack Welch
JACK: STRAIGHT FROM THE GUT
Cá Angus Kress Gillsespie
TWINSTOWERSlTHE UFE OFH Y.S WTC
o Stephen King og Peter Straub
BLACK HOUSE
Tim F. Lahaye og Jerry B. Jenkis
ANTICHRIST TAKES THE THRONE
C) Ahmed Rashid
TALIBAN: MILITANT ISLAM...
Benjamin R. Barber og Andrea Sculz
JIHAD VS. MCWORLD...
Terry Brooks
ANTRAX-
Cl Stephen E. Ambrose
BAND OF BROTHERS
ffj) Yossef Bodansky
BIN LADEN...
Metsölulistinn:
Bækur um
hryðjuverk
bækur Það þarf ekki að koma
mörgum á óvart að hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin setja
mark sitt á amazon-bókalistann
um þessar mundir. í þriðja sæti
almenna listans yfir mest seldu
bækur á amazon.com er saga
World Trade Center turnanna. í
fyrsta sæti listans er Germs:
Bilological Weapons and Amer-
ica's Secret War sem fjallar um
efnavopn og hlutverk þeirra í
styrjöldum. Fleiri bækur eru á
listanum sem minna á hörmung-
ar síðustu vikna. 110. sæti er bók
um Osama bin Laden: manninn
sem lýsti stríði á hendur Banda-
ríkjunum. í sjöunda sæti listans
er einnig athyglisverð bók um
árekstra alþjóðavæðingar og
þjóðernishyggju. Skáldsagan
Black House, sem sem hroll-
vekjumeistararnir Stephen King
og Peter Straub skrifa í samein-
ingu, er í fjórða sæti. Bókin er
sjálfstætt framhald The Talism-
an sem þeir félagar skrifuðu um
miðjan níunda áratuginn og f jall-
ar um ævintýri Jack Sawyer í
huliðsheimum. ■
: MÁNUDACURINN
24. SEPTEMBER
TÓNLEIKAR ___________________
21.00 Hljómsyeitirnar Ensím og Úlpa
leika tónleikum á Gauki á Stöng.
Miðáverð 750 kf.
FUNPIR
18.00 Aðalfundur Heimdallar verður
haldinn í dag í Valhöll. Á dagkrá
er kosning nýrrar stjórnar auk
venjulegra aðalfundarstarfa.
MYNPLIST ___________________________
Jón Valgard Jörgensen opnaði á laugar-
dag sína fimmtu myndlistarsýningu í Fé-
lagsstarfi Gerðubergs. Sýndar eru lands-
lagsmyndir, fantasíur, portrait teikningar
og dýramyndir. Sýningin stendur til 9.
nóvember. Opnunartímar sýningarinnar:
mán. - fös. kl. 10-17 og um helgar kl.
13-16.
Linda Oddsdóttir opnaði í gær sína
fyrstu einkasýningu á Cafe Presto Hlíða-
smára 15. Á sýningunni eru eingöngu
olíumálverk sem eru unnin á þessu ári.
Myndefnið er aðalega sótt í náttúru
landsins. Opnunartímar virka daga frá
10 til 23 og um helgar frá 12 til 18. Sýn-
ingin stendur til 19 október.
Kristján Guðmundsson opnaði einka-
sýningu í Listasafni Reykjavíkur, Kjar-
valsstöðum s.l. laugardag. Sýningin er
opin 10-17 alla daga nema miðviku-
daga 10-19.
Arngunnur Ýr sýnir nú verk sín í Galler-
íi Sævars Karls. Sýningin nefnist Allt og
ekkert og eru verkin á sýningunni öll
unnin á þessu ári. Sýningin hefur verið
framlengd um viku, til 27. september.
I Listhúsinu í Laugardal stendur mál-
verkasýning Elisabetar Stacy Hurley.
Elisabet er af íslenskum ættum en er
búsett í Bandaríkjunum.
Ekkert er yfirskrift sýningar Bjama Sig-
urbjörnsson I Hafnarborg. Bjami málar
á plexígler með blöndu af oliulitum og
vatni, efnum sem hrinda hvert öðru frá
sér og skilja svo eftir ummerki um þau
átök á myndfletinum sém (fnörgum
verkanna er gríðarstór. Sýningin stendur
til 24. septembér og er opin alla daga
nema þriðjudaga frá 11 til 17.
I kaffistofu Hafnarborgar sýnir Andri
Egilitis frá Lettlandi Ijósmyndir. Við-
fangsefni hans er landslagið og ( mynd-
um hans eru sjónræn tilþrif þess notuð
til hins itrasta án þess að farið sé yfir
strikið. Hafnarborg er opin alla daga
nema þriðjudaga frá kl. 11 til 17 og
stendur sýningin til 24. september.
Torfi Jónsson hefur opnað sýningu í
Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustlg 5.
Torfi sýnír kalligrafíu og vatnslitaverk
sem unnin eru á ríspapplr (japanskan
pappír). Sýningin er opin milli kl. 10 og
18 virka daga og frá 11.00 til 16.00, á
laugardögum og stendur til 19. septem-
ber.
Björg Örvar sýnir náttúrulífsmyndir I
sýningarsal verslunarinnar Álafoss, Ála-
fosshvos I Mosfellsbæ. Opið er virka
daga kl. 9 til 18 og laugardaga kl. 9 til
16 og stendur sýningin til 27. október.
Sýning Bjama H. Þórarinssonar sjón-
háttarfræðings stendur nú I Reykjavík-
urAkademíunni I JL-húsinu Hringbraut
121 en hann er meðal þeirra lista-
manna sem hljóta starfslaun Reykjavík-
urborgar á þessu ári. Bjarni sýnir úrval af
verkum slnum undanfarin ár. Sýning
Bjarna er opin 9 til 17 virka daga og
stendur til 1. október.
Gunnar Gunnarsson sálfræðingur og
myndlistamaður sýnir I Lóuhreiðrinu I
Kjörgarði. Sýningin er opin virka daga frá
9 til 18 og stendur út september.
Hefst í kvöld
mánud. 24. sept
6 tímar á 6 vikum
Verð 11.000
Tónskóli Hörpunnar
Gítarnámskeið fyrir fullorðna
Tónskóli Hörpunnar, Bæjarflöt 17, Grafarvogi
Innritun í síma: 567-0399
. Myrkradansarinn:
Á svið í
Þýskalandi
leikhús Kvikmyndin umdeilda
Myrkradansarinnn (e. Dancer in
the Dark) sem Daniim Lars von TH-
er stýrði og Björk Guðmundsdóttir
lék aðalhlutverk í hefur nú verið
sett á svið í Þýskalandi. Það er leik-
húsið Diisseldorfer Schauspielhaus
sem setur söngleikinn upp í leik-
Stjórn Burkhard C. Kosminski, sem
að sögn danska dagblaðsins Politi-
ken er einn athyglisverðasti leik-
stjóri Þjóðverja. Kosminski leik-
stýrði einnig leikhúsuppfærslu á
kvikmynd danska leikstjórans
Thomas Vinterbergs, Festen eða
Veislan. Þjóðleikhúsið setur í haust
upp leikrit byggt á mynd Vinter-
bergs í leikstjórn Stefáns Baldurs-
sonar, Þjóðleikhússtjóra. ■
BJÖRK GUÐMUNDSDÓTTIR
Var lofuð í hástert fyrir hlutverk sitt í kvik-
mynd Lars Von Triers.