Fréttablaðið - 05.10.2001, Qupperneq 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
ÚTGJÖLD HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTISINS
Heildarútgjöld heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytisins árið 2002 eru áætluð
um 92,6 milljarðar króna. Heildarútgjöld
ríkissjóðs eru rúmlega 239 milljarðar og
því eru útgjöld til heilbrigðismála lang
stærsti þátturinn. Svona skiptast útgjöldin
eftir málaflokkum árið 2002
Útgjöld ■ milljörðum króna
Heilsugæsla 3,6
® Heilbrigðisstofnanir 4,2
S Sjúkrastofnanir 36,3
■ Tryggingarmál 43,5
Annað 1,6
Sjálfboðaliðar í Banda-
ríkjunum:
Vemda
múslima
san francisco.ap Undanfarið hafa
sjálfboðaliðar út um öll Bandarík-
in tekið sig til og boðist til að veita
múslimskum konum og börnum í
landinu vernd gegn aðkasti frá al-
menningi. Hefur slíkt aðkast auk-
ist gríðarlega eftir að hryðju-
verkaárásin átti sér stað í síðasta
mánuði. Fjölmargir múslimar í
landinu eru hræddir við að fara út
úr húsi af þessum sökum, en
dæmi eru um að hrækt hafi verið
á múslima sem hafa vogað sér út í
gönguferðir. Stuðningsstofnun
araba í New York segir að yfir 500
manns muni á næstunni fá þjálfun
í að veita þeim múslimum sem
búa í borginni vernd. ■
Hagkaup í Smáranum:
Allur matur
uppseldur
verslun Finnur Árnason, fram-
kvæmdastjóri Hagkaupa, segir að
vegna þess hve viðtökur almenn-
ings hafi verið góðar við rýmingar-
sölu Hagkaups í Smáranum verði
útsölunni haldið áfram fram á
mánudag. „Það er uppselt allt sem
heitir matur,“ sagði Finnur en tiltók
að enn væri til fatnaður og sérvara.
„Ástandið hefur verið alveg rosa-
legt, mikið álag og mikið að gera.“
Hann sagði að versluninni hefði
verið lokað klukkan átta á þriðjudag
en síðustu kúnnarnir ekki farið út
fyrr en þremur tímum síðar.
Finnur segir ástæðu útsölunnar
vera flutning verslunarinnar yfir í
Smáralind, en þar verður opnuð
rúmlega 10.000 fermetra vérslun á
miðvikudaginn kemur. „Stór ástæða
er auðvitað, nýjar vörur í nýrri
verslun, og svo notum við líka bara
tækifærið til að vera með lagerút-
sölu. Þessu hefur enda verið mjög
vel tekið. Verðin hafa auðvitað ver-
ið frábær af því er fólk tilbúið til að
leggja á sig bæði bið og erfiði,“
bætti hann við. ■
Leiguverð í verslunarplássum:
Tvöfalt dýrara að
leigja í Smáralind
verslunarhúsnæði Samkvæmt
upplýsingum frá nokkrum fast-
eignasölum um leiguverð í þrem-
ur helstu verslunarkjörnum á höf-
uðborgarsvæðinu er Smáralindin
dýrust og Laugavegurinn ódýrast-
ur. Samkvæmt þeim fer leiguverð
á hvern fermetra á góðum stað í
Smáralind upp í um 3.500 krónur;
það þýðir að sumir verslunareig-
endur greiða 350.000 krónur á
mánuði fyrir 100 fermetra pláss.
Öllu ódýrara sé að leigja verslun-
arvænt pláss í Kringlunni, þar
segja fasteignasalar verð vera á
bilinu 250.000 til 300.000 krónur.
Á Laugavegi fari fermetraverðið
hinsvegar á fáum stöðum yfir
2.000 krónur á mánuði.
Fasteignasalarnir tóku þó fram
að upphæð leigu færi mikið eftir
staðsetningu innan verslunar-
kjarna og því væri erfitt að gera
nákvæman samanburð. Þannig sé
pláss við rúllustiga að jafnaði
mun dýrara í verslunarmiðstöðv-
SMÁRALIND
Mun dýrara er að leigja verslunarpláss í
Smáralind heldur en á Laugavegi, segja
fasteignasalar.
unum en pláss annarsstaðar. Þá sé
algengt að leiguverð á plássum til
veitingareksturs sé að hluta til
ákveðin prósenta af veltu bæði á
Laugavegi og í verslunarmið-
stöðvunum. ■
„Eins og enginn væri
að hugsa um félagið“
Segir Sigurður Guðni Jónsson, apótekari, en sala á 8% hlut hans í Kefla-
víkurverktökum kom nýjum eiganda yfir 50% markið. Stjórnarformað-
urinn hefur áhyggjur af því að „fyrirtækjagleypir" hafi með þessu náð
völdum í félaginu. Ný stjórn skipuð á hluthafafundi í dag.
viðskipti „Við vonum að nýr meiri-
hlutaeigandi í félaginu hafi hags-
muni fyrirtækisins að leiðarljósi,"
segir Guðrún S. Jakobsdóttir, nú-
verandi stjórnarformaður Kefla-
víkurverktaka, en í Viðskiptablað-
inu kom fram að félagið Eisch
Holding SA, sem er í eigu Bjarna
Pálssonar, ungs athafnamanns,
hafi á stuttum tíma
dreifðri eign. Guð-
rún segir fram-
vinduna hafa kom-
ið valdhöfum í fyr-
irtækinu í opna
skjöldu og staðfestir að tal um
fjandsamlega yfirtöku eigi við rök
að styðjast. Fyrrum stærsti hlut-
hafinn er Jakob Árnason, faðir
Guðrúnar og stofnandi Byggingar-
verktaka sem síðar gekk inn í
Keflavíkurverktaka.
Guðrún segir að áhyggjur fyrr-
um valdhafa í félaginu byggist
meðal annars á þvi að þeim sé
kunnugt um yfirtöku Bjarna Páls-
sonar og föður hans, Páls Jónsson-
ar í Brautarholti á Kjalarnesi,
með aðstoð Kaupþings, á Fóður-
blöndunni á síðasta ári, en þar
högnuðust þeir verulega á skuld-
setningu og eignasölu. Líkt og var
hjá Fóðurblöndunni er efnahags-
leg staða Keflavíkurverktaka með
besta móti.
Félagið var skráð á Verðbréfa-
þing íslands þann 15. maí síðast-
liðinn og var fjöldi hluthafa þá
280. „Við bjuggumst auðvitað við
því að viðskipti yrðu með bréfin,
náð að kaupa
50,3% hlutafjár í
fyrirtækinu. I gær
gerði Kaupþing yf-
irtökutilboð f.h.
Eisch Holding í
þau 49,7% félags-
ins sem eftir eru í
„Ekki fyllilega,"
sagði Sigurður
Guðni að-
spurður hvort
hann hafi átt-
að sig á þvi
að viðskiptin
myndu full-
komna yfir-
töku Eisch
Holding
VARNARSVÆÐIÐ
Keflavikurverktakar eru stöndugt fyrirtæki með 5 ára samnimning við Varnarliðið á
keflavíkurflugvelli.
JAKOB ÁRNASON
Stofnaði Bygginga-
verktaka sem gengu
inn I Keflavíkurverk-
taka á sínum tíma.
Þangað til fyrir um
mánuði var hann
en ekki að einn
aðili myndi
komast yfir
meirihluta í fé-
laginu. Þeim
tókst þetta með
því að hringja í
hluthafa og
bjóða í stðra
hluti,“ segir
Guðrún. Eftir
stutta kauplotu
nú í haust náði
Eisch Holding
loks meirihluta
í fyrirtækinu sl.
mánudag með
stærsti eigandi Kefla-
víkurverktaka. kaupum á 8%
hluti af Sigurði Guðna Jónssyni,
apótekara.
„Ekki fyllilega,“ sagði Sigurður
Guðni aðspurður hvort hann hafi
áttað sig á því að viðskiptin myndu
fullkomna yfirtöku Eisch Holding,
hann hafi verið í fríi og Kaupþing
komið að viðskiptunum í umboði
hans. „Það hafði reyndar komið
mér á óvart hvað fyrri eigendur
sejdú mikið, það var eins og enginn
væri að hugsa um félagið." Sigurð-
ur keypti hlut sinn í júlí sl. og segir
engin áform hafa verið uppi þá,
honum vitanlega, um að taka þátt í
yfirtöku félagsins. Tilboðið hafi
hins vegar verið ásættanlegt.
matti@frettabladid.is
Ránið í verslun 11-11
Þrír játa á sig
verknaðinn
innbrot Þrír menn voru handtekn-
ir í fyrradag grunaðir um ránið í
verslun 11-11 í Skipholti á þriðju-
dag. Hafa mennirnir allir játað á
sig verknaðinn. Að sögn lögregl-
unnar var ránið framið til greiðs-
lu á fíkniefnaskuldum og til frek-
ari fjármögnunar fíkniefna-
neyslu.
Mennirnir höfðu farið inn bak-
dyramegin í verslunina. Voru þeir
allir grímuklæddir og hótuðu af-
greiðslufólki líkamsmeiðingum.
Mennirnir höfðu á brott með sér
um hundrað þúsund krónur í pen-
ingum. ■
SORG
Arik Harpaz stendur við gröf dóttur sinnar
við jarðarför hennar í fyrradag. Lést hún
ásamt kærasta sínum í skotárás Palestínu-
manna á landnemabyggð gyðinga á Gaza-
svæðinu. Vinkona hennar grætur á öxl
hans.
Atök halda áfram þrátt
fyrir vopnahlé:
Tveir létust í
skotárás við
rútubílastöð
jerúsalem-AP Tveir fsraelsmenn
létust og 10 særðust þegar
palestínskur byssumaður, dulbú-
inn sem ísraelskur hermaður,
skaut á ferðamenn við rútubíla-
stöð í bænum Afula í ísrael.
Byssumaðurinn var síðan skot-
inn til bana.
fsraelar og Palestínumenn
lýstu því yfir í gær að þeir ætli
að halda friðarviðræðum áfram
þrátt fyrir átökin sem brutust út
í fyrradag á Gaza-svæðinu þegar
átta Palestínumenn og tveir
ísraelar létu lífið. Ekki er þó bú-
ist við því að fundur á milli
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra fsraels, og tveggja palest-
ínskra samningamanna muni
verða til þess að dragi úr átökun-
um. Erindreki Evrópusambands-
ins í Mið-Austurlöndum, Miguel
Moratinos, hitti Peres og Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínu-
manna, sitt í hvoru lagi á mið-
vikudaginn og hvatti þá til að
hefja friðarviðræöur að nýju.
Skriðdrekar ísraela um-
kringja enn palestínska bæi á
Gaza-svæðinu og verða þeir þar
áfram eitthvað um sinn, vegna
árása Palestínumanna á land-
nemabyggðir gyðinga. ■
Suðurlandsbraut 32 - Sími 533 1300 - Fax 533 1305
www.fasteiaansalan.is - Netfana: arund@fasteianasalan.is
Oddný I. Björgvinsdóttir Guðmundur Ó. Björgvinsson
- framkvæmdastj. hdl. og lögg. fasteignasali
Baldur Hauksson Halldór H. Backamn
-sölustjóri hdl. og lögg. fasteignasali
Víghólastígur - Kópavogur
Erum með í einkasölu sérstaklega gott
og vinalegt 158 fm einbýlishús með
70 fm bílskúr. Húsið og lagnir eru
mikið endurnýjaðar. Glæsilegur heitur
pottur í suður garði, Eign sem gefur
mikla möguleika. V. 20.5millj.
Ný úthringiþjónusta:
Hægt að boða með talskilaboðum
samskiptakerfi Tekið hefur verið í
notkun ný úthringiþjónusta sem
hlotið hefur nafnið Boði og nær
það til alls landsins. Með því er
hægt að boða bæði einstaklinga
og hópa með talskilaboðum og
sannreyna strax hvort boðin hafi
komist til skila. Skilaboðin má
senda í allar tegundir síma; GSM-
síma, NMT-síma og talsíma. Hall-
grímur Sigurðsson hjá Flugmála-
stjórn sagði þetta nýja kerfi hafa
ýmsa kost í för með sér. „Boðin
eru með þessu kerfi að fara
markvissari út í talformi og þeir
sem fá boðin vita nákvæmlega
hvað sé í gangi hverju sinni og
geta þannig brugðist betur við en
áður. Einnig er kerfið gríðarlega
NY UTHRINGIÞJONUSTA kynnt
Nýja boðunarkerfið var kynnt I gær af fulltrúum frá Slmanum, Neyðarlínunni, Ríkislög-
reglustjóra, Almannavörnum, Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu og Flugmálastjórn Islands.
mikilvægt sem skráningartæki
eftir aðgerðir."
Boði stendur almenningi til
boða og er þjónustan gjaldfrjáls til
15. október nk. Nánari upplýsingar
eru á vefsíðunni www.siminn.is. ■