Fréttablaðið - 05.10.2001, Blaðsíða 22
H RAOSOÐIÐ
* ' r - ' 1 ;—'
VIÐAR KARLSSON,
skipstjóri á Víkingi AK
VÍKINGUR AK 100
Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK 100,
bíður eftir tækifæri til að mæla loðnuna út
af landinu.
Leitar að
loðnu
HVAÐ ertu að aðhafast núna?
Við erum tveir bátar hérna, Beitir
og við, staddir á Grænlandshafi, um
15 mílur vestur af Hala, þar sem við
erum að leita að loðnu.
HVERNIG gengur leitin?
Við höfum séð eitthvað af loðnu
hérna núna, en hún hefur verið svo
dreifð og leiðinleg að við höfum ekki
náð að taka prufur. Svo er líka búin
að vera kaldabræla á okkur. Við von-
um að við fáum veður í kvöld [gær-
kvöld] til að geta skoða þetta og sjá
hvernig þetta lítur út. Þá kemur von-
andi í ljós hvort þetta sé eitthvað
sem er hægt að nota, þetta getur líka
verið svo blönduð loðna að ekki sé
hægt að nota hana, við vitum það
bara ekki fyrr en við erum búnir að
prufa það. Það er þó alveg greinilegt
að hún er að færa sig inn á svæðið.
Hún kemur hérna einhverstaðar
suðvestanað, eins og við reyndar átt-
um von á.
HVENÆR áttu þá von á að geta
farið að veiða?
Það spáir reyndar brælu á okkur aft-
ur núna fljótlega. Við gerum nú ekki
meiri kröfur en að fá að taka prufu á
þessu, og sjá hvaða stærðir þetta
eru, svo við getum verið búnir undir
það þegar veðrið lagast aftur eftir
einhverja daga.
HVAÐ þarf að leita mikið að loðnunni?
Reynsla okkar er sú að þetta er
aldrei eins frá ári til árs. Þannig að
það er ekki um annað að ræða en að
gá að því. Við höfum enga þekkingu
á því af hverju þetta kemur svona
seint stundum og stundum snemma.
Hafró gerir þetta ekki og þá er ekki
um annað að ræða en að leita bara
sjálfur. Við erum búnir að vera hér í
viku, tókum alveg útkantinn á svæð-
inu alla leið austur á Héraðsflóa. Svo
fórum við að leita innkantinn á
þessu núna og þá sáum við nú þróun-
ina í þessu. En við getum lítið um
þetta sagt fyrr en við erum búnir að
þreifa á þessu. En ég held nú samt
að þetta sé í áttina.
Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK 100, bíð-
ur eftir tækifæri til að mæla loðnuna út af land-
22
FRETTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDAGUR
ITT f * * J T T * .f.T 1 * T | f 'f 'T ■
rnL,*,T J % » "
Bréf frá Lennon til McGartneyhjónanna á uppboð:
Hlaðið blótsyrðum
og skömmum
TÓNList Bréf sem John Lennon skrif-
aði til hjónanna Paul og Lindu
McCartney stuttu eftir endalok Bítl-
anna verður selt á uppboði á næstu
dögum. Talið er að er að bréfið verði
selt á allt að tæpum 12 milljónum
króna þar sem innihald þess þykir
fremur áhugavert. Bréfið er ekki
með vinalegasta móti, hlaðið blóts-
yrðum og skömmum í garð þeirra
hjóna. Bréfið er upp á 6 síður og er
það greinilegt við lestur þess að
ósætti var á milli Lennons og Lindu.
í bréfinu segir Lennon meðal ann-
ars. „Ég vona að þið gerið ykkur
grein fyrir þeim sora sem við Yoko
höfum þurft að þola síðan við byrj-
uðum saman, komnum frá fólki af
mínu sauðhúsi, óeigingjörnum vin-
um.“ Annarsstaðar í bréfinu segist
hann vorkenna Paul og spáir að
samband hans og Lindu verði búið
eftir tvö ár. Talið er að bréfið sé
svar Lennons við bréfi frá Lindu,
þar sem hún kvartaði yfir hlutum
sem Lennon hafði sagt í fjölmiðlum
um samstarfsslit Bítlanna. í bréfinu
spyr Lennon vin sinn hvort hann
LENNON OG IMCCARTNEY
Á meðan allt lék í lyndi gengu engin skammarbréf á milli Bítlanna en það átti eftir að
breytast.
„trúi því ennþá“ að þeir séu yfir
aðra hafnir og segist svara spurn-
ingum um Bítlanna á eins heiðarleg-
an máta og hann geti. En svo, þrátt
fyrir reiðilesturinn, skrifar Lennon
í endann; „...en þrátt fyrir allt, ást-
arkveðjur til ykkar beggja, frá okk-
FRÉTTIR AF FÓLKI
Þorsteinn Yngvi Guðmundsson
var nýlega ráðinn fram-
kvæmdastjóri hugbúnaðarhússins
Eskils ehf. sem er
ráðgjafar- og
þjónustufyrirtæki
á sviði upplýs-
ingatækni, með
sérstaka áherslu á
hugbúnaðarþróun,
veflausnir og
gagnvirka upplýs-
ingastanda (Kioska). Þorsteinn
kom til fyrirtækisins frá OZ.COM
þar sem hann fékkst við ýmis
rekstrartengd verkefni. Þor-
steinn starfaði að sölu og mark-
aðsmálum hjá EJS frá 1997-1999.
Hann stofnaði hugbúnaðarfyrir-
tækið Hugsandi menn ásamt
fleirum árið 1999. Það sameinað-
ist síðar öðru hugbúnaðarfyrir-
tæki undir nafninu Mens mentis.
Þorsteinn er viðskiptafræðingur
frá Háskólanum í Reykjavík. í
námi sínu lagði hann áherslu á
frumkvöðlastarfsemi, alþjóðavið-
skipti og markaðsfræði. Hann er
einnig menntaður skrúðgarð-
yrkjufræðingur og starfaði um
skeið á þeim vettvangi.
Glöggir munu taka eftir því að
staðan sem Þorsteinn hefur
verið ráðinn í var áður í höndum
Vilhjálms Vilhjálmssonar, sem
nýverið var staðinn að því að
hafa tekið þriðjung kandidatsrit-
gerðar sinnar orðrétt frá öðrum
aðila án þess að geta heimildar.
Vilhjálmur hefur nú stefnt laga-
deild fyrir þá ákvörðun að ógilda
ritgerðina.
Ibreytingum á stjórnskipulagi
Olíufélagsins felst að rekstri
þess verður skipt í fjögur megin-
svið: fjármálasvið, fyrirtækjasvið,
neytendasvið og upplýsingasvið.
Framkvæmdastjórar þeirra verða
Bjarni Bjarnason, Ragnar Boga-
son, Heimir Sigurðsson og Jónas
Guðbjörnsson. Skipulagsbreyting-
arnar eiga að einfalda reksturinn
og gera hann hagkvæmari.
Aðstandendur
verði með í ráðum
I dag verður málþing í Norræna húsinu þar sem fjallað verður um
þjónustu við geðfatlaða utan hefðbundinna stofnana. Að mati Guð-
bjargar Sveinsdóttur, forstöðumanns Vinjar, er nauðsynlegt að sam-
ræma þá aðstoð sem í boði er.
málþing Málefni geðfatlaðra
verða í brennidepli á málþingi
um þjónustu við geðfatlaða utan
stofnana sem fram fer í Norræna
húsinu í dag. Að sögn Guðbjargar
Sveinsdóttur, forstöðumanns
Vinjar, athvarfs Rauða kross ís-
lands fyrir geðfatlaða, sem stend-
ur að málþinginu í samvinnu við
Félagsþjónustuna í Reykjavík,
eru ýmis meðferðarúrræði í boði
fyrir einstaklinga sem útskrifast
af geðdeildum. Vandinn, að henn-
ar mati, er hins vegar að eftir er
að kortleggja þá þjónustu sem í
boði er og samræma starfsemi
ólíkra aðila sem fást við málefni
geðfatlaðra.
„Það sem vantar er ákveðin
stefnumótun. í dag eru heil-
brigðisyfirvöld að fást við sína
hluti og félagsmálayfirvöld
sömuleiðis. Þá eru félagasamtök
að gera sitt og Geðhjálp einnig
auk Rauða krossins. Geðfatlaður
einstaklingur sækir þjónustu og
lyf á geðheilbrigðissviðinu.
Hann þarf á venjulegri læknis-
aðstoð að halda og sækir hana
annars staðar. Þá býr hann í hús-
næði á vegum einhverra af þeim
hjálparsamtökum sem bjóða
fram aðstoð, fær liðveislu hjá
Félagsþjónustunni og svona
mætti telja,“ segir Guðbjörg.
Hún segir að skjólstæðingar
kvarti gjarnan undan því að
skortur sé á samhæfingu í starfi
þessara aðila og sér fyrir sér að
skipa mætti hóp sérfræðinga á
þverfaglegum grunni sem hefði
MÁLEFNI GEÐFATLAÐRA
Mikilvægt er að hafa aðstandendur með í ráðum þegar unnið er að þróun nýrra meðferð
arúrræða, að mati Guðbjargar Sveinsdóttur, forstöðumanns Vinjar.
yfirsýn yfir málefni hvers og
eins.
Aðalfyrirlesari á málþinginu er
Paul O'Halloran sem starfar hjá
Sainsbury Centre for Mental
Health á Bretlandi sem er miðstöð
fræða, rannsókna og áætlanagerð-
ar fyrir málefni geðfatlaðra.
O'Halloran mun greina frá þróun
og uppbyggingu starfseminnar
ytra og samstarfi stofnunarinnar
og breskra heilbrigðisyfirvalda
sem hefur gengið vonum framar.
Guðbjörg segir að þátttaka að-
standenda skipti ekki síður máli
þegar staðið sé frammi fyrir þró-
un og uppbyggingu nýrra með-
ferðarúrræða. Hún segir mikil-
vægt að koma upp tengslaneti og
hafa notendur og aðstandendur
með í ráðum þegar ákvarðanir
eru teknar er varða framtíð þeir-
ra. Þess má geta að málþingið
stendur frá 13 - 17 en skráning
fer fram hjá Rauða krossinum.
Aðgangur er ókeypis og eru allir
velkomnir.
kristjangeir@frettabladíd.is
nnrommun
N YTT
,:U«i >
Afsláttartiíboð af speglum
Q/ afsláttur af
innrömmuðum
Súper gler.
Glampa frítt
glært gler
Komió og sjáiö
munin
0 píakötum
Opió 9°°-18a0og laugardaga
RAMMA
MIÐSTOÐIN
jióumóia 34 • Sími: 533 3331