Fréttablaðið - 05.10.2001, Síða 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDACUR
SPURNINC DACSINS
Hvernig fer landsleikur
íslands og Dana á morgun?
„Ég held að hann fari 1 - 0 fyrir island." R
Þórir Theódórsson, kvikmyndagerðarmaður
Jöfnunarsjóður
sveitaríelaga:
2,3 mill-
jarðar til
grunnskóla
SVEITARFÉlöc Búið er að endur-
skoða útreikninga almennra jöfn-
unarframlaga til sveitarfélaga
vegna kostnaðar við rekstur
grunnskóla á þessu ári en greiðsl-
ur framlagsins á árinu hafa fram
til þessa byggt á bráðabirgðaáætl-
un. Áætlað er að 2,3 milljörðum
króna verði varið í almenn grunn-
skólaframlög en það kann að
breytast í árslok þegar ljóst verð-
ur hverjar áætlaðar tekjur Jöfn-
unarsjóðs verða af hlutdeild í
staðgreiðslu sveitarfélaga. ■
HÆSTU FRAMLÖC
ÚR iÖFNUNARSJÓÐI
Hafnarfjörður 190.576.005
Akureyri 131.181.013
Skagafjörður 78.708.282
Kópavogur 75.049.842
Reykjanesbær 73.310.083
Hornafjörður 71.404.220
Árborg 64.840.547
Akranes 58.625.643
Mosfellsbær 51.928.142
fsafjörður 51.533.550
---♦--
Stolið á írlandi:
Tvö tonn
af osti
belfast. ap Lögreglan á írlandi
leitar nú ákaft að tveimur tonnum
af osti, nánar tiltekið Ulster
Cheddar osti, sem stolið var úr
mjólkurbúi í Dungannon á mið-
vikudaginn. Lögreglan segir að
þýfið sé meira en fimm þúsund
punda virði, eða jafnvirði um
hálfrar milljónar króna. Almenn-
ingur var hvattur til þess að láta
lögregluna vita hið snarasta ef
einhver væri að bjóða til sölu mik-
ið magn af osti. ■
Kosningar á Italíu:
Auka á völd
héraðanna
róm. ap ítalskir stjórnmálamenn
hafa í meira en áratug deila um það
hvort breyta eigi stjórnskipan
landsins með þeim hætti, að völd
verði færð frá ríkisstjórninni til
héraðanna. Á sunnudaginn fá
ítalskir kjósendur loks að gefa sitt
álit í fyrstu stjórnlagakosningum
landsins frá því 1946.
Þeir eiga að greiða atkvæði með
eða á móti lögum, sem samþykkt
voru á þingi í mars síðastliðnum,
en þá hafði hægri stjórn Silvio
Berlusconis ekki tekið við völdum.
Samkvæmt lögunum eiga 20
héruð á Ítalíu að fá í sínar hendur
umráð yfir öllum málaflokkum,
sem ekki verða á hendi ríkisins.
Ríkið á að hafa áfram umráð yfir
lögreglumálum, varnarmálum,
fjármálum og utanríkisstefnu.
Héruðin fá hins vegar aukin völd
um skattamál, menntamál og um-
hverfismál.
Vinstri- og miðjuflokkar á þingi,
sem fóru með stjórn landsins þegar
lögin voru samþykkt, hvetja fólk til
að greiða atkvæði með þeim. For-
BERLUSCONI A MÓTI
Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu,
finnst stjórnarskárbreytingin ekki ganga
nógu langt og hefur hvatt kjósendur til að
fella hana.
sætisráðherrann og fylgismenn
hans hvetja fólk hins vegar til að
hafna þeim, á þeim forsendum að
þau gangi ekki nógu langt. ■
Ráðningar Jórvíkur:
Engin
afskipti
atvinnumál Flugmálastjórn mun
ekki skipta sér af málefnum Jór-
víkur og flugmanna sem félagið
er sagt ráða með þeim skilyrðum
að þeir segi sig úr Félagi íslenskra
atvinnuflugmanna og vinni launa-
laust fyrir félagið gegn því að fá
reynslu í flugi á tveggja hreyfla
flugvélum. Heimir Már Péturs-
son, upplýsingafulltrúi Flugmála-
stjórnar, segir að svo framarlega
sem mennirnir hafi réttindi til að
fljúga þeim flugvélum sem um
ræðir í atvinnuskyni þá muni
Flugmálastjórn ekki gera athuga-
semdir við þetta. ■
Þrír flugræningjanna
tengdir bin Laden
Engar efasemdir, segir Tony Blair, sem kynnti breska þinginu sannanir
gegn bin Laden og samtökum hans í gær.
LONDON. ap Breska þingið kom sam-
an í gær til aukafundar þar sem
Tony Blair forsætisráðherra skýrði
frá þeim sönnunargögnum sem
Bandaríkin hafa sýnt honum um að-
ild Osama bin Ladens að hryðju-
verkunum í Bandaríkjunum.
„Við höfum nákvæmlega engar
efasemdir um að bin Laden og sam-
tök hans báru ábyrgð á árásunum
þann 11. september," sagði Blair.
Hann sagði staðfest, að í það
minnsta þrír af flugræningjunum
nítján, sem voru um borð í flugvél-
unum fjórum sem rænt var þann
11. september, séu samstarfsmenn
bin Ladens. Sömuleiðis sé vitað að
einn þessara þriggja manna hafi
gegnt lykilhlutverki í sprengju-
árásunum á sendiráð Bandaríkj-
anna í Kenía og Tansaníu og árásin-
ni á bandaríska herskipið USS Cole.
„Frá því árásimar áttu sér stað
höfum við fengið eftirfarandi upp-
lýsingar: Skömmu fyrir 11. septem-
ber sagði bin Laden samstarfs-
mönnum sínum að hann væri með
meiriháttar aðgerð gegn Banda-
ríkjunum í undirbúningi; allmargir
einstaklingar voru varaðir við því
að snúa aftur til Afganistan vegna
aðgerða sem yrðu þann 11. septem-
ber eða nálægt þeim degi; og, það
sem mikilvægast er, einn af nán-
ustu liðsforingjum bin Ladens hef-
ur sagt hreint út að hann hafi að-
stoðað við að skipuleggja árásirnar
þann 11. september og hann hefur
viðurkennt tengsl við al-Qaida sam-
tökin. Til eru aðrar upplýsingar
sem við getum ekki skýrt frá, en
sýna með enn beinari hætti fram á
sekt,“ sagði Tony Blair í morgun.
í ljósi þessara sannana, sagði
Blair, er ljóst að hverju stefna skal.
„Við verðum að draga bin Laden og
aðra leiðtoga al-Qaida fyrir dóm
réttvísinnar og útrýma þeirri
hryðjuverkaógn sem af þeim sta-
far. Og við verðum að tryggja að
Afganistan hætti að veita alþjóðleg-
um hryðjuverkamönnum skjól og
stuðning."
Hann sagði gögnin einnig sýna
ótvírætt að talibanastjórnin og bin
Laden vinni náið saman. Bin Laden
hafi veitt talibönum bæði fjármagn
og hernaðaraðstoð, en talibanar
hafi á móti veitt honum skjól.
Jafnframt sagði hann, að ef tali-
banastjórnin í Afganistan lúti ekki
þessu markmiði, „þá verðum við að
gera breytingar á þeirri stjórn til
að tryggja að tengls Afganistans
við alþjóðlega hryðjuverkastarf-
semi rofni.“ ■
PATREKSFIÖRÐUR
Fólk á staðnum vill vinna gegn ólátum
tengdum unglingadrykkju.
Patreksfjörður:
Fundur
vegna óláta
fundur Borgarafundur á vegum
sýslumannsins á Patreksfirði og
bæjarstjórnar Vesturbyggðar var
haldinn í gær á Patreksfirði í kjöl-
far skrílslæta er urðu í bænum
síðustu helgi. Þá fór hópur fram-
haldsskólanema um bæinn og
unnu skemmdarverk á umferðar-
merkjum og brutu bflrúðu. Óljóst
er með framvindu mála en það er
í rannsókn.
Að sögn Þórólfs Halldórssonar,
sýslumanns á Patreksfirði, var
fundurinn fyrst og fremst haldinn
til að fara yfir stöðu mála og finna
út með jákvæðum hætti hvernig
taka ætti á hlutunum. „Fólk hefur
auðvitað áhyggjur af því þegar
menn ganga um með svona lát-
um.“ Þórólfur sagði fólk líta þetta
atvik misjöfnum augun og benti á
að nálægðin í litlu bæjarfélagi
væri talsvert meiri en á höfuð-
borgarsvæðinu. ■
| STJÓRNMÁL |
Landsfundur Vinstrihreyfing-
arinnar - græns framboðs
verður haldinn í Reykjavík dag-
ana 19. - 21. október n.k. Helstu
verkefni fundarins verða mál-
efnastarf með fjölbreytni sem
meginþema, lagabreytingar í
ljósi nýrrar kjördæmaskipunar,
umfjöllun um flokksstarf og fé-
lagslega uppbyggingu og áhersl-
ur í sveitarstjórnarmálum. Gest-
ur fundarins verður Kristin Hal-
vorsen formaður Sósíalíska
vinstriflokksins í Noregi.
Gróðrarstöðin &
mmw ♦
Námskeið
í Haustskreytingum
Námskeið hefjast í október
Einnig er hægt fyrir hópa að skrá sig á námskeið
eftir samkomulagi.
Innritun í veslun eða síma: 564 2480
Blómabúðin Birkihlíð
Hús blómanna
Dalvegi 32, 201 Kóp.
Tillögur í níu liðum til að efla fiskvinnslu:
Innlend vinnsla bjódi í gámafisk
sjávarútvecur í skýrslu átta manna
nefndar um framtíðarmöguleika
fiskvinnslunnar eru lagðar fram
tillögur í níu liðum til að efla fisk-
vinnsluna og skilaði enginn nefnd-
armanna séráliti. Þessar tillögur
verða síðan til frekari umfjöllunar í
sjávarútvegsráðuneytinu og er bú-
ist við að þeim verði hrint í fram-
kvæmd áður en langt um líður, ým-
ist með laga-og reglugerðarbreyt-
ingum eftir því sem þurfa þykir.
Meðal annars er lagt til að afli
verði ávallt í boði innanlands og
m.a. með því að gefa innlendri
vinnslu kost á að bjóða í gámafisk.
Þá er lagt til að allur afli verði
vigtaður hérlendis og að fiskvinnsl-
ur fái kvóta og komið verði á fót
fleiri landamærastöðvum til að
auðvelda aðgang að hráefni á
heimsmarkaði. Ennfremur eru
gerðar tillögur sem miða að verð-
FISKVINNSLA
Miklir framtíðarmöguleikar eru taldir vera I fiskvinnslu
mætaaukningu og nýsköpun og að
starfshættir fiskmarkaða verði
endurmetnir. Lagt er til að ráðist
verði í átak til að kynna sjávarút-
veginn í grunn- og framhaldsskól-
um og stóraukin áhersla verði lögð
á endurmenntun og símenntun. Þá
leggur nefndin til að úrvinnsla
gagna um sjávarútveg verði efld til
muna. ■