Fréttablaðið - 05.10.2001, Side 8
8
FRÉTTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDAGUR
ASÍ:
Aukafundur
í miðstjórn
skattamál Miðstjórn ASÍ hefur
verið kölluð saman til aukafundar
n.k. mánudag vegna áforma ríkis-
stjórnarinnar í skattamálum.
Rannveig Sigurðardóttir hag-
fræðingur sambandsins segir að
obbinn af því sem ríkisstjórnin
ætlar að gera muni ekki stuðla að
því að draga úr verðbólgu né held-
ur að lækkun vaxta. Hún bendir
m.a. á að hluti af tekjuskattslækk-
un fyrirtækja sé fjármagnaður
með hækkun á tryggingagjaldinu.
Hún segir að það sé mjög 'fátítt að
miðstjórnin sé kölluð saman til
aukafundar. ■
Jöfnunarsjóður sveitarfé-
laga:
1.325 milljónir
vegna lækkunar
fasteignaskatts
sveitarfélög Félagsmálaráðherra
hefur fallist á að úthlutað verði
1.325 milljónum króna úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga til sveitarfé-
laga til að mæta tekjutapi sem þau
verða fyrir vegna lækkunar tekna
af fasteignaskatti. Alls fá 117
sveitarfélög úthlutað fé úr sjóðn-
um af þessum sökum. Mest fær
Reykjanesbær, rúmar 97 milljón-
ir, en minnst fær Skagahreppur,
234.000 krónur. Fimm sveitarfé-
lög á höfuðborgarsvæðinu fá hins
vegar ekkert en það eru Reykja-
vík, Kópavogur, Hafnarfjörður,
Garðabær og Seltjarnarnes. ■
HÆSTU FRAMLÖG ÚR JÖFNUNARSJÖÐI
Reykjanesbær 97.025.158
Akureyri 96.300.922
Árborg 58369^090
Vestmannaeyjar 56.875.308
ísafjörður 56.548.309
Skagafjörður 54.702.752
1 Sandgerði 48.125.790 [
Fjarðabyggð 44.196.668
Akranes 39.440.733
Snæfellsbær 30.706.511
Krabbameinsfélagið með peningasöfnun:
Leðurhanskar og bleik kirkja
BRJÓSTAKRABBAMEIN Hallgríms-
kirkjuturn verður lýstúr upp í
bleikum lit yfir helgina, líkt og
yfir 200 önnur mannvirki í 40
löndum. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, borgarstjóri í Reykjavík,
kveikti í gærkvöldi á kösturun-
um, en lýsingin er í boði Orku-
veitu Reykjavíkur. Uppákoman
er liður í alþjóðlegu átaki vegna
árvekni um brjóstakrabbamein.
Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélagsins, afhenti
borgarstjóra leðurhanska með al-
þjóðlegu merki átaksins, sem er
bleik slaufa. Hanskar af því tagi
verða til sölu á um 30 sölustöðum
snyrtivörufyrirtækisins Estée
Lauder og verður ágóðanum var-
ið til brýnna verkefna sem valin
verða í samráði við Krabba-
meinsfélagið og Samhjálp kven-
na. Hjá Krabbameinsfélaginu
fengust upplýsingar um að í
fyrra hafi verið boðin taska til
sölu, en peningum hefur verið
safnað með slíku sölustarfi und-
anfarin ár.
í mánuðinum eykur Krabba-
meinsfélagið fræðslu um brjós-
takrabba og hvetur konur til að
nýta sér bóð leitarstöðvár félags-
ins um röntgenmyndatöku. Sam-
kvæmt nýjum útreikningum frá
Krabbameinsskrá getur tíunda
hver kona búist við að fá
brjóstakrabbamein fyrir 85 ára
aldur, en erlendar rannsóknir
benda til að með því að taka
röntgenmyndir af brjóstum
kvenna megi lækka um helming
dánartíðni vegna krabbameins í
brjóstum. ■
HALLGRÍMSKIRKJA
Viðstaddar upplýsinguna í gær voru
milli 30 og 40 konur sém fengið hafa
brjóstakrabbamein.
Hver skuldar hverjum
cifsökunarbeiðni?
Fjármálaráðherra og formaður Samfylkingar deildu hart við umræður um Qárlagafrumvarpið á
Alþingi í gær. Fjármálaráðherra taldi sig eiga inni afsökunarbeiðni. Formaður Frjálslyndra vill
fresta umræðu um fjárlagafrumvörp í framtíðinni.
fjárlöG Geir H. Haarde fjármála-
ráðherra og Össur Skarphéðins-
son tókust harkalega á við 1. um-
___4___ ræðu um fjárlaga-
frumvarpið á Al-
þingi í gær. Fjár-
m á 1 a r á ð h e r r a
sagði Össur skulda
sér afsökunar-
beiðni vegna orða í
sinn stað en Össur
sagði fjármálaráð-
herra skulda skatt-
greiðendum afsök-
unarbeiðni.
Geir sagði að
Össur skuldaði sér
(andsvörum
sagði Geir að
Össur hefði
orðið sjálfum
sér til fullkom-
innar minn-
kunnar með
orðum sínum
og aðdróttun-
um í sinn
garð.
...♦—
afsökunarbeiðni fyrir að brigsla
sér um falsanir, sviksemi og lög-
brot vegna vinnu við gerð fjár-
laga. Össur svaraði því hins vegar
til að fjárlagafrumvarpið væri
hrákasmíð, forsendur þess ótrú-
verðugar og trú manna á því ekki
meiri en svo að gripið hefði verið
inn í gengismarkað til að koma í
veg fyrir gengisfall. Frumvarpið
væri þannig úr garði gert að at-
vinnulífið væri mergsogið og því
spurning hver skuldaði hverjum
afsökunarbeiðni.
í andsvörum sagði Geir að Öss-
ur hefði orðið sjálfum sér til full-
kominnar minnkunnar með orð-
um sínum og aðdróttunum í sinn
garð. Össur sagðist ekki minnast
þess að hafa kallað Geir brota-
mann. Hann hefði aðspurður svar-
að því að fjárlagagerðin stangað-
ist á við lög sem um þau giltu.
Fjármálaráðherra sagði að
ástæða þess að ekki hefði verið
MÆLT FYRIR FJÁRLÖGUM
Hart var tekist á í þingsal þegar fjárlaga-
frumvarpið var tekið til fyrstu umræðu.
tekið mið af spá Þjóðhagsstofnun-
ar við fjárlagagerðina væri sú að
hún hefði ekki borist fyrr en of
seint. Spá um eins prósent hag-
vöxt hefði borist 4. september, 10.
september hefði reiknilíkani ver-
ið lokað og spá stofnunarinnar um
0,3% samdrátt ekki borist fyrr en
14. september.
Ólafur Örn Haraldsson, for-
maður fjárlaganefndar, sagði að
þrátt fyrir að fjárlagafrumvarpið
gerði ráð fyrir myndarlegum af-
gangi væri stór hluti þeirra vegna
sölu eigna. Því væri brýnna en
stundum áður að gæta þess að rík-
isútgjöld fari ekki jafn mikið um-
fram fjárlög og gerst hefði. Um-
ræðan um fjárlögin varð Sverri
Hermannssyni að umræðuefni og
sagði hann að rétt væri að fresta
umræðu um fjárlögin þar til eins
og viku eftir að þau væru lögð
fram svo menn hefðu tækifæri til
að kynna sér frumvarpið til hlýtar
áður en þeir færu að ræða það.
binni@frettabladid.is
PINGIÐ MINNIST HINNA LÁTNU
29 manns létust í sprengingunni í Toulouse föstudaginn 21. september. Hundruð manna
slösuðust og fjölmargar byggingar í nágrenninu skemmdust.
Sprengingin í Frakklandi:
Grunur um hryðjuverk
í efnaverksmiðjunni
parís. ap Maður, sem franska lög-
reglan vissi að aðhylltist íslamska
bókstafstrú, fannst látinn í efna-
verksmiðjunni í Toulouse í Frakk-
landi eftir sprenginguna sem varð
þar þann 21. september. Maður-
inn, sem hét Hassan Jandoubi og
var fæddur í Túnis, var klæddur
„að hætti sjálfsmorðsárás-
armanna," að því er franska dag-
blaðið Le Figaro sagði í gær, en
hins vegar var hann ekki að finna
á opinberum lista frá stjórnvöld-
um yfir þá sem létust í sprenging-
unni.
Enn hefur ekki verið fullyrt
neitt um orsök sprengingarinnar,
en yfirmaður rannsóknarinnar
fullyrti í síðustu viku að hann
væri „níutíu og níu prósent" viss
um að sprengingin hafi ekki verið
vísvitandi gerð af mannavöldum.
Le Figaro segir að sama dag og
sprengingin varð hafi maðurinn
staðið í deilum við samstarfsmenn
sína í verksmiðjunni, sem flögg-
uðu bandaríska fánanum í samúð-
arskyni vegna árásanna í Banda-
ríkjunum þann 11. september.
I viðtali við franska dagblaðið
Le Parisienne, sagði einn þeirra
sem vinna að rannsókn málsins,
að fimm daga töf hafi orðið á því
að leyfi fengist til að leita í íbúð
mannsins. Þessi töf hafi spillt fyr-
ir rannsókninni.
„Það var búið að hreinsa allt út
úr íbúðinni. Engin föt, engar ljós-
myndir, ekkert," sagði rannsókn-
armaðurinn. „Ef við hefðum feng-
ið að vinna vinnuna okkar, þá ríkti
e.t.v. ekki þessi óvissa." ■