Fréttablaðið - 05.10.2001, Blaðsíða 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
5. október 2001 FÖSTUDACUR
FRETTABLAÐIÐ
Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf.
Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson
Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson
Fréttastjóri: Pétur Gunnarsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifíng:
Þverholti 9, 105 Reykjavik
Aðalsimi: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Sfmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf.
Plötugerð: ÍP-prentþjónustan ehf.
Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf.
Dreifing: Póstflutningar ehf.
Fréttaþjónusta á Netinu: Visir.is
Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf-
uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn
greiðslu sendingarkostnaðar: kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins (stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Jöfnunarsjóður
sveitarfélaga:
583 millj-
ónir til 65
sveitarfé-
laga
SVEITARFélöc Páll Pétursson, fé-
lagsmálaráðherra, hefur fallist á
tillögu ráðgjafanefndar Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga um að úthluta
583 milljónum króna úr sjóðnum
til að jafna tekjur á milli sveitar-
félaga. Alls fá 65 sveitarfélög
framlög úr sjóðnum að þessu
sinni. Sú breyting hefur átt sér
stað á útreikningi framlaganna í
ár frá fyrri tímum að framlögum
til einstakra sveitarfélaga um
jöfnun tekjutaps vegna lækkunar
tekna af fasteignaskatti er bætt
við heildartekjur sveitarfélaga
áður en hámarkstekjur á íbúa í
sveitarfélagi eru reiknaðar út. ■
HÆSTU FRAMLÖC
ÚR JÖFNUNARSJÓDI
Akureyri 63.235.281
Skagafjörður 42.641.118
Eyjafjarðarsveit 35.434.798
Dalvíkurbyggð 34.239.527
Hrunamannahreppur 26.716.102
Hveragerði 25.475.775
Gerðahreppur 24.485.777
Norður-Hérað 19.424.308
Austur-Hérað 18.861.404
Eyrarsveit 17.899.227
ÖRYGGISKERFI
ÍQI Raflagnir íslands
Sími 511 1122
Sea Shepard gœlusamtök í Bandaríkjunum
„Veita Paul
Watson stuðn-
ing og skjól"
Oalfur Hannibalsson blaðamað-
ur ritar snjalla grein í Morg-
unblaðið í gær. Þar hvetur hann
íslensk stjórnvöld til að gera þá
lágmarkskröfu að Bandaríkja-
+ stjórn afnemi fríð-
indi sem samtökin
Sea Shepard njóta.
Samtökin eru
skráð sem góð-
gerðarsamtök með
viðurkenningu bandarískra
stjórnvalda og eru sem slík und-
anþegin skattgreiðslum og fram-
lög til þeirra frádráttarbær frá
skatti.
Paul Watson, forystumaður
samtakanna, er útilokaður frá
landvist í öllum Evropulöndum
eftir aðild sína að skemmdarverk-
um á hvalbátum í Hvalfirði 1986. í
sömu atlögu var tveimur hvalbát-
um sökkt í Reykjavíkurhöfn. Það
er ljóst að Bandaríkjastjórn veitir
þessum hryðjuverkasamtökum,
„stuðning og skjól“, en öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna skuldbatt öll
aðildarríki samtakanna í síðustu
viku til að gera það ekki.
Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, staðhæfir
að hryðjuverkanet Osama Bin
Ladens hafi verið starfrækt í 50 -
60 löndum.
Af því að dæma verða ríkis-
stjórnir um allan heim að líta yfir
sinn heimavöll og hætta að sýna
lögbrjótum og ofstækisfólki, sem
nýtir sér mál- og ritfrelsi til þess
að ýta undir og framkvæma
ÍVLál...manna
Einar Karl Haraldsson
tekur undir með Ólafi Hannibalssyni
óhæfuverk, umbyrðarlyndi og
óbeinan stuðning. Athyglin hefur í
þessu sambandi ekki síður beinst
að ýmsum svokölluðum góðgerð-
arsamtökum í löndum múslima.
Þau hafa komist upp með að grafa
undan frjálslyndum stjórnvöldum
í eigin löndum og í öðrum löndum
þar sem eru stórir hópar múslím-
skra innflytjenda. Það er gert með
því að skilyrða fjárstuðning og
gjafir til þurfandi þannig, að við-
takendur taki upp lifnaðarhætti
ofsatrúarfólks, aðskilnað kynja,
klæðaburð strangtrúaðra, og hlíti
boðvaldi trúarleiðtoga en ekki
landslögum. í Danmörku og Bret-
landi t.d. hefur það verið látið gott
heita að áhangendur ofsatrúar-
hópa lýsi stuðningi við dauða-
dóma sem múslímskir trúarleið-
togar hafa kveðið upp yfir t.d. rit-
höfundum á Vesturlöndum. Ekki
meir, ekki meir. ■
FISKVINNSLUNEFNDIN
Gámafiskurinn hefur iðulega verið kallaður „sparibaukurinn" af sjómönnum vegna þess að hann hefur gefið þeim meira i aðra hönd en
afli sem fer til vinnslu innanlands.
Andstaða við
lögþvingaða ráð-
stöfun á gámafiski
Sjómenn og útvegsmenn sammála. Fiskvinnslunefnd leggur til að
vinnslan fái að bjóða í gámafisk til jafns við erlenda kaupendur.
Um 32 þúsund tonn af botnfiski fluttur óunninn út á ári.
SJÁvarútvegur Bæði útvegsmenn
og sjómenn leggjast gegn þeirri
tillögu að áður en ísvarinn heill
fiskur er settur í gáma til út-
flutnings á erlenda fiskmarkaði
skuli hann boðinn til sölu á ís-
lenskum fiskmörkuðum. Þessi
tillaga er meðal þess sem nefnd
um framtíðarmöguleika fisk-
vinnslunnar hefur lagt til í því
skyni að auka framboð af fiski til
innlendrar vinnslu. Friðrik Arn-
gnmsson framkvæmdastjóri
LÍÚ segir að það sé út úr öllu
korti að ætla að lögþvinga menn
í þessum efnum sem jafnvel get-
ur leitt til þess að menn fái lægra
verð fyrir aflann en ella. Hann
segir að ef vinnslan geti boðið
samkeppnishæft verð í gáma-
fiskinn þá hafi hún alla mögu-
leika til að gera það að óbreyttu.
Sævar Gunnarsson formaður
Sjómannasambandsins segir að
tilgangurinn með þessari tillögu
sé að reyna að stöðva gámaút-
flutninginn. Nær væri ef nefndin
hefði lagt til að allur fiskur færi
á markað.
í tillögum nefndarinnar kem-
ur m.a. fram að 7% botnfiskafl-
ans, eða 32 þúsund tonn fara ár-
lega óunninn á erlenda markaði
og kemur því ekki til vinnslu
hérlendis. Einar K. Guðfinnsson
formaður fiskvinnslunefndar-
innar segir að með þessari gáma-
tillögu felist ekki brot á viður-
kenndum reglum um milliríkja-
viðskipti. Það sé vegna þess að
tryggt verði að vinnslan og fisk-
kaupendur erlendis geti keypt
fiskinn gegnum íslenska fisk-
markaði á grundvelli nútíma
fjarskiptatækni. Þess utan gæti
þetta stuðlað að hönnun og sölu á
íslenskum hugbúnaði á þessu
sviði til fiskkaupenda.
Hann segir eðlilegt að slík
breyting verði í áföngum og
fyrsta skrefið í því væri að koma
á fót almennri tilkynningaskyldu
sem allar útgerðir sem flytja út
óunnið hráefni verða að hlíta.
Það felst m.a. í því að þær til-
kynni með formlegum hætti um
áformaðan útflutning svo vinnsl-
an hafi kost á að bjóða í aflann til
jafns við erlenda kaupendur.
grh@frettabladid.is
Vandamál á Hawai:
Koffín
notað til
að drepa
froska
HONOLÚLÚ.AP Umhverfisverndar-
stofnun Bandaríkjanna hefur
samþykkt að notað verði koffín til
að drepa agnarsmáa trjáfroska
frá Karabíska hafinu sem fjölgað
hefur gífurlega undanfarið á
Hawai. Froskarnir, sem eru að-
eins 1,5 cm langir, eru þekktir fyr-
ir hávaðasöm mökunaróp sín. Það
var landbúnaðarráðuneyti lands-
ins sem óskaði eftir undanþágu
frá lögum til að hægt væri að úða
koffeini, sem veldur hjartabilun í
froskunum, yfir íverustaði þeirra
til að halda fjölda þeirra í skefj-
um. ■
] LÖGREGLUFRÉTTIR~~|
Tveir menn voru handteknir í
gær, grunaður um að hafa
brotist inn í íbúðarhúsnæði á
Miklubraut Hafði verið tilkynnt
um innbrotið og bárust böndin
fljótlega að nágranna íbúðareig-
andans. Við nánari eftirgrennslan
fundust munirnir sem teknir
höfðu verið úr íbúðinni. Að auki
fundust fleiri munir sem talið er
að séu úr öðrum innbrotum.
—#—
Tilkynnt var um fimm innbrot í
bifreiðar í gær. Fjögur voru
framin á Reykjavíkurflugvelli.
Höfðu rúður verið brotnar í bif-
reiðunum en ekki hægt að sjá að
nokkru hefði verið stolið. Þá var
brotin rúða í bifreið við Háskóla-
bíó en engu stolið.
—*—.
veir menn voru teknir fyrir
ölvunarakstur í gær. í öðru
tilfellinu hafði ökumaður ekið á
staur á Sæbrautinni. Hlupu tveir
menn, sem í bifreiðinni voru, á
brott og náðist annar þeirra í
garði rétt hjá vettvanginum. Ekki
var vitað hvort um ökumann eða
farþega var að ræða en að sögn
lögreglunnar ætti það að upplýs-
ast fljótlega.
O 1 9 1
8.000 verslamr = 1 - -- - ægra verð